Línuskautar á degi menningarnætur

Eins og mörg ykkar hafa eflaust frétt, þá hafa skipuleggjendur Reykjavíkurmaraþonsins ákveðið að blása af línuskautahlaupið í ár. Þetta er náttúrlega fúlt fyrir okkur sem höfum tekið þátt undanfarin ár því línuskautar eru orðnir partur af degi menningarnætur.

Við höfum því ákveðið að skipuleggja skemmtiferð á línuskautum á sama tíma og Reykjavíkurmaraþonið verður, þ.e. kl. 11:00 á laugardaginn kemur. Þetta verður skemmtiferð opin öllum og þátttaka er ókeypis. Farið verður frá Sundlaug Seltjarnaless upp að Árbæjarlauginni eftir göngustígakerfinu: meðfram Ægissíðu, um Fossvogsdal og Elliðaárdal. Þeir duglegu geta svo rennt sér aftur til baka. Samkomulag hefur náðst við forsvarsmenn beggja sundlauganna um að veita þátttakendum í þessari línuskautaferð ókeypis í sund á eftir (gegn því að koma á línuskautum í þessar sundlaugar frá kl. 11:30-14:00). Hlaupið er öllum opið. Ekki er um keppni að ræða heldur getur öll fjölskyldan rennt sér saman og haft gaman af.

Tilgangur þessa uppátækis er fyrst og fremst að veita línuskautafólki tækifæri á að renna sér á degi menningarnætur. Einnig má líta á þetta sem jákvæða áskorun til aðstandanda Reykjavíkurmaraþons um að gleyma ekki línuskautafólki aftur á degi menningarnætur og bjóða uppá línuskautahlaup samhliða Reykjavíkurmaraþoni í framtíðinni.

Kveðja,
Útivistarhópurinn Kommasso!

Nánari upplýsingar veita

Ketill B. Magnússon, gsm 898 4989 og
Arnar Þór Sævarsson, gsm 892 6487