![]() |
Þessi síða var síðast uppfærð:
04.02.2009![]() ![]() ![]() ![]() |
Líney Maria
Hjálmarsdóttir kemur frá Tunguhálsi 2 í Skagafirði og er dóttir
Hjálmars S Guðjónssonar(heitins) og Þóreyjar Helgadóttur. Líney byrjaði mjög
ung að hafa áhuga á hestum með dyggum stuðningi foreldra sinna. Líney útskrifaðist sem þjálfari og reiðkennari C vorið 2006. Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson kemur frá Syðstu-Grund í Skagafirði og er sonur Sæmundar S Sigurbjörnssonar og Þorbjargar Eyhildar Gísladóttur. Sæmundur byrjaði ungur að hafa áhuga á hestum enda ekki langt að sækja genin. Sæmundur og Líney eru búin að vinna í Þýskalandi, hér og þar á
Suðurlandi og Skagafirði en búa núna á Tunguhálsi 2, þar sem þau eru
með sína tamningarstöð. Á Tunguhálsi 2 býr einnig móðir Líneyjar,
Þórey Helgadóttir og sér hún um að mjólka kýrnar, en á Tunguhálsi 2
er einnig rekið kúabú.
|
|
Sæmundur og
Líney - Tunguhálsi II - 560 Varmahlíð |
|