Á döfinni -

 

 

Hugað að flutningi.....bloggs
Eftir að hafa verið í vandræðum af og til með Blogger.com, hef ég ákveðið að flytja yfir í notendavænna umhverfi. Maður gæti fengið einhvern til að smíða eigins bloggkerfi, en bara nenni ekki að læra á það. Ákvað að flytja mig yfir á daglegurdenni.blog.is. Þetta hefur engin áhrif á okkar sambúð Sæunnar. Enda er þetta gert í góðu samkomulagi við hana:). Fylgist með frá byrjun!

Þetta skrifaði Denni klukkan 20:52

 
Hasar á vinnumarkaðnum
Fyrir stuttu ákvað Marel að þeir muni loka starfstöð sinni á Ísafirði og 20 manns munu missa vinnu.
Fyrir enn stuttu ákvað mitt ástkæra fyrirtæki að segja upp 2 mönnum á Ísafirði.
Þetta lítur ekki vel út fyrir fólk á Vestfjörðum. Ísafjarðarbær hefur meiri segja gengið svo langt að segja upp nýundirrituðum samningum við Símann. Menn þar á bæ ekki sáttir greinilega.
Nú í dag les ég að rannsóknarstofan Agar ætli að segja upp 2 starfsmönnum á Ísafirði. Þetta er hrikalegt. Ég hef sagt upp öllum mínum viðskiptum við Agar.

Þetta skrifaði Denni klukkan 14:47

 
Sól sól, sandur og smá bjór
Tókum okkur til fjölskyldan og pöntuðum okkur ferð í sólina í sumar. Ferðinni verður heitið á Mallorca. Barnvænt og fínt. Förum með Kristínu systur og fjölskyldu. Ásamt því að Jón Sig gæti slegist með í för.

Labels:


Þetta skrifaði Denni klukkan 15:04

 

Stórir strákar fá raflost

Í gær fékk ég smá ráð í sambandi við uppþvottavélina okkar. Fór heim eftir vinnu og kíkti á málið. Var engu nær fyrst. Borðuðum kvöldmat og þurftum að þvo upp í höndum...hehe. Ákvað svo að leggjast á 4 fætur og opna aðeins uppþvottavélina að neðan. Stakk hendinni inn um opið, og fann allt á floti þar. Greip svo í eitthvað, sem gaf mér þetta þvílíka raflost. Fékk þetta fína högg upp í öxl. Hoppaði um allt eldhús í smá sjokki. Djöfull sem það tók á. Ákvað að fá reyndari menn á málið, því sama hvað ég gerði, alltaf lak vélin. Pabbi kom svo seinni partinn í dag og fór í gegnum það sama, og endaði auðvitað á því að vélin fór í gang og lak ekki!

Þetta skrifaði Denni klukkan 20:52

 
Vinnukonan er lasin
Ég og Svava Rún vöknuðum snemma á laugardagsmorgun. Kveiktum á sjónvarpinu frammi, og fengum okkur morgunmat. Ég tók úr uppþvottavélinni og setti í hana líka. Vildi Svava hjálpa pabba sínum aðeins í eldhúsinu. Ég skildi eftir skál og disk, sem hún fékk að vaska upp. Þar sem ég veit að henni finnst gaman að hjálpa til og einnig gaman að sulla aðeins í vatni. Ég skildi við hana í smá tíma, með hlandvolgt vatn svo henni yrði nú ekki kalt við eldhússtörfin. Ég rölti næst inn í stofu og kveikti á tölvunni. Las helstu fréttir og nokkur blogg. Eitthvað byrjaði dóttirin svo að kalla: "Pabbi!, komdu. Komdu og sjáðu!" Ég: "já já, rétt strax". Þetta gerðist kannski 2svar. Svo þegar ég loks kom inn í eldhús. Var hálft gólfið þakið vatni. Gluggakistan og borðið í kringum vaskinn var á floti! Ég hrópa upp yfir mig, hvað sé í gangi. Þá fannst minni vera komið nóg af vatni, og kunni allt í einu ekki að skrúfa fyrir. Og ákvað að ýta kranaum út í glugga. Við það flæddi út um allt. Í allt fór um 6 stór baðhandklæði til að þurrka allt upp. Og okkur grunar að bilun uppþvottavélarinnar megi rekja til þessa morgunflóðs.

Labels:


Þetta skrifaði Denni klukkan 21:36

 


Lústræng eða lostræng?


Nú er það lústræng, ekki lostræng. Haldiði að ég hafi ekki mætt á mína fyrstu lúðrasveitaræfingu í gær! Þetta byrjaði allt í desember að einn drengur mætti í vinnuna til mín og sagðist minna það að ég hafi spilað á cornet í tónlistarskólanum fyrir c.a 20 árum. Og hvatti mig til að mæta. Ég hafði hugsað um það í sumar hvað það gæti verið gaman að mæta og rifja upp gamla takta. Á endanum hringdi þessi drengur svo í mig og sagði að það biði mín hljóðfæri sem ég ætti að sækja. Svo liðu jól og áramót og vikur, og svo hefur Anna Lára verið dugleg að ýta mér á æfingu. Bíð eftir nótum frá henni. Þetta verður bara gaman.

Þetta skrifaði Denni klukkan 09:13

 
Árið 2006
Ætla að vera stuttorður um árið 2006. Árið 2006 var ár frjóseminnar í okkar fjölskyldu.

Janúar:
Fórum á tónleika í Laugardalshöll. Kárahnjúkavirkjun mótmælt hástöfum á þessum tónleikum. Fílaði tónlistina.Spilaði á Langa Manga 14. janúar.
Brokeback Montain fékk Golden Globe verðlaun.
Fórum á Sunnukórsball, og var ég fenginn í undirspil í einhverjum atriðum ásamt Samma rakara.
Nýr denni kynntur til sögunnar. Átakið bumban af hófst með látum.Eiður Sölvi fæddist 25. janúar. Fyrstur af 5 börnum sem létu sjá sig í fjölskyldunni árið 2006. Ásamt því tilkynningar um óléttur fóru að berast.
Æskufélagar mínir fengu verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum, þeir Jón Geir (AMPOP) og Bragi (Baggalútur).
Spilaði á Langa 28. janúar.

Febrúar:
Rickenbacker gítarinn hans Venna finnst. Og það í undankeppni Júróvisíon. Og það hangandi á maganum á honum Magna OKKAR. Skemmtilegt nokk.
Innflutningspartí hjá Hulda og Dóra, eftir miklar framkvæmdir á húsinu þeirra. Enduðum öll á Langa Manga, með mömmu og pabba.
Spilaði í Kjallaranum og Langa Manga á einni sömu helginni. Lenti í átökum við eldri mann í Kjallaranum sem vildi ekki hlusta á lag með U2. Maðurinn endaði í slagsmálum við aðra gesti og uppskar á sér ennið.
Spilaði aftur samt helgina eftir í Kjallaranum, og það á konukvöldi. Sat innan um hjálpartæki ástarlífsins og skemmtisögur áður en ég settist með gítarinn.
Undirskriftarsöfnun hefst til að “bjarga” Langa Manga.

Mars:
Fórum á árshátíð Símans sem var ansi vegleg.
Spilaði á Langa Manga.
Bloggaði lítið og man lítið eftir mars.

Apríl:
Átti afmæli.
Fór á tónleikahátíðina Aldrei fór ég suður. Sá ýmislegt sem sló í gegn. Missti af restina og spilaði á sútfullum Langa Manga. Röð út á götu.
Spilaði svo með Jóni Sig á Players kvöldið fyrir Sumardaginn fyrsta. Raddlaus og slappur. Jón reddaði einhverjum hestalyfjum til að fá rödd.
Flaug til baka vestur til að vera viðstaddur kistulagningu og jarðarför Huldu ömmu. Vélin snéri við og lenti í rvík aftur. Flaug svo aftur í fullri vél af ættingjum. Rétt náðum í tíma. Skipti um föt á salerni Ísafjarðarkirkju.
Sótti um nýja stöðu innan Símans. Var með í maganum yfir því í langan tíma. Notaði tónlist með Sigur Rós og Coldplay til að róa hugann.
Vann farm af Coke Light.

Maí:
Fréttir af átakinu mínu voru þær að 7 kíló voru farin.
Fórum í kósí ferð inn í Ísafjarðardjúp og gistum í Reykjanesi.
Fór í atvinnuviðtalið sem var seinkað um viku. Það jók magapínuna.
3 dögum seinna var mér tilkynnt að ég fengi þessa blessuðu stöðu.

Júní:
Hjálmar Alexander Bergrósarson fæddist 2. júní og gerði mig að afabróður!
Fórum í tvöfalt þrítugsafmæli og ég spilaði með mökum afmælisbarnanna inn í golfskála. Ekki viss hvor skemmti sér betur gestirnir eða spilararnir.
Sæunn fór í þrívíddarsónar.
Fórum á ættarmót í Heydal í lok júní sem heppnaðist svona rosalega vel. Ásamt því að sumarfrí fjölskyldunnar byrjaði.

Júlí:
Fórum suður í framhaldi ættarmóts. Tókum Baldur yfir Breiðafjörðinn.
Keyptum nýjan bíl og skildum þann gamla eftir óseldan.
Grillveisla hjá Skipsbókum. 20 ára afmæli fyrirtækisins.
Stórkostlegir tónleikar með Sigur Rós í Edinborgarhúsinu.
Steingrímur Sævarr Ólafsson fær loksins seinna errið í nafninu Sævarr viðurkennt hjá mannanafnanefnd.

Ágúst:
Elma Katrín fæðist og ég fór í fæðingarorlof í mánuð.

September:
Bloggleti ársins!
Tvíburarnir Sigrún Camilla og Guðmundur Halldórs og Huldubörn fæddust.
Fór á afmæli Símans. Risapartí það.

Október:
Spilaði í einkasamkvæmi.
Runa af námskeiðum byrjaði hjá mér og ferðir suður jukust.
Elma Katrín skírð.

Nóvember:
Var vikulega í Reykjavík.
Tók lagið á Dubliners.
Óvissuferð Símans.
Sæunn afmæli.
Margrét Bára fæðist

Desember:
Fórum með Svövu í augnaðgerð suður.
Héldum jólagleði með vinnunni, heima hjá Jóa Egils, með tonn af mat.
Margrét Bára skírð
Jól og matur.
Tvíburarnir Guðmundur og Sigrún Camilla skírð. Ég spilaði í kirkjunni.
Sprakk á limminu og datt í það í matarsukki.
Vonast eftir að átak mitt hefjist aftur eftir áramót.

Þetta skrifaði Denni klukkan 15:15