Fyrirtækið
Stokkar og Steinar sf. var stofnað árið
2003 og byggir á grunni og reynslu Guðjóns
Kristinssonar torf -og grjóthleðslumeistara
og skrúðgarðyrkjumanns.
Guðjón og húskarlar hans hafa víðtæka
reynslu af alls kyns hleðslum og smíðum
af mörgu tagi. Guðjón á að
baki feril frá 1990 í hleðslum á
torfi og grjóti auk smíðar og myndhöggs
í tré og stein.
|