Forsíða
Björg Eiríksdóttir
Storyline
Söguaðferðin
Sögurammar
Söguaðferðardagbók
Söguaðferðin Kársnesskóla
Á döfinni

________________

Kársnesskóli
Storyline í Skotlandi
Storyline í Bandaríkjunum

 

 

Dagbók

Samþætting efst á baugi!

Þann 13. ágúst 2010 var haldin ráðstefnan Vinnum saman þvert á greinar í Borgarholtsskóla á vegum Samtaka áhugafólks um skólaþróun. Ráðstefnan var vel sótt og margir áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir. Fjallað var um samþættingu frá ýmsum hliðum.Einnig fékk ég tækifæri í málstofu á ráðstefnunni til að benda á hvernig samþætting er innbyggð í söguaðferðina. Margir komu á málstofuna og sýndu mikinn áhuga á söguaðferðinni og sérkennum hennar og möguleikum.

Kennsla í Kennaraháskólanum haust 2007
Í haust hef ég verið að kenna skiptinemum í KHÍ í annað sinn. Þeir komu frá ýmsum löndum: Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi
...meira

Heimsókn í Hofsstaðaskóla
Þriðjudaginn 20. september dreif ég mig úr mínum skóla á Kársnesinu í Hofsstaðaskóla í Garðabæ.  Þangað var mér boðið að koma til að vera með kynningu á söguaðferðinni ...meira

Engidalsskóli 17. ágúst 2007
Klukkan níu um morgun voru kennarar mættir og búið að finna til alls konar litríkt efni, pappír og liti að ógleymdu kennaratyggjóinu.
Þennan dag átti að nota til að læra um og upplifa söguaðferðina. Sumir kennararnir voru þegar kunnugir aðferðinni en alveg til í að rifja upp ...
meira

Náttúrufyrirbæri á Íslandi
var síðasta verkefni 5. bekkjar á skólaárinu. 
Þetta verkefni fjallar um krakka frá ýmsum heimshornum sem fá það í verðlaun í ljósmyndasamkeppni að fara til Íslands. Krakkarnir í 5. bekk D voru fengnir til að ráðleggja hvað væri áhugavert fyrir vinningshafana að skoða á Íslandi ...meira

Evrópa með 7. bekk Ö
Þann 22. maí var foreldrakvöld hjá 7. Bekk Ö en þá var að ljúka verkefninu Ferð til höfuðborga Evrópu. Í verkefninu er fjallað um Evrópu og reynt að fá nemendur til að kynnast löndum Evrópu sem mest ...meira

Námskeið í leikskóla
Snemma á föstudagsmorgni var ég mætt í leikskólann til þess að vinna með starfsfólkinu á Hömrum að því að læra meira um söguaðferðina. Þegar ég kom inn voru tveir leikskólakennarar skólans að segja hinum frá verkefninu um Frumskóginn sem þeir unnu með elstu nemendunum í skólanum í samvinnu við kennara í Víkurskóla og áður er getið hér á síðunni  ...
meira

Comeniusvinir í heimsókn í Kársnesskóla
Nú var komið að því að samstarfsaðilar Kársnesskóla í Comeniusverkefninu kæmu í heimsókn í skólann. Þó nokkur undirbúningur hafði farið fram til að gera heimsókn þeirra sem skemmtilegasta og fróðlegasta ...
meira

Frumskógurinn
Þann 27. mars var mér boðið að vera við foreldrastund þar sem nemendur á elstu deild leikskólans Hamra í Grafarvogi sýndu afrakstur verkefnis unnið með söguaðferðinni um frumskóginn, í samvinnu við Víkurskóla ...
meira

Ferðin til fyrirheitna landsins
Eftir jólin byrjuðum við í 5. bekk D á verkefni sem við höfum nefnt Ferðin til fyrirheitna landsins ...
meira

Kársnesskóli tekur þátt í Comeniusarverkefni
Í sumar kom grænt ljós á Comeniusarverkefni þar sem skólar í fjórum löndum eru í samstarfi, löndin eru Ísland, Pólland, Tékkland og England ...
meira

Verkefnið Aldasafn með 7. bekk
Strax í skólabyrjun byrjuðum við á verkefninu Aldasafnið, en það fjallar um helstu atburði sem gerðust á Íslandi frá 1300 til 1800 ...
meira

Fimmti bekkur vinnur verkefni um landnámsmennina
Strax í skólabyrjun byrjuðum við að vinna verkefni um landnám Íslands ...
meira

Kennsla í Kennaraháskólanum á haustmisseri 2006
Í haust hef ég verið að kenna skiptinemum í KHÍ. Þeir komu frá ýmsum löndum: Danmörku, Noregi, Finnlandi, Þýskalandi og Austurríki.
Umfjöllunarefnið hefur verið söguaðferðin frá öllum hliðum ...
meira

Söguaðferðarráðstefna í Glasgow
Þriðja alþjóða ráðstefnan um söguaðferðina var haldin í Glasgow í lok október ...
meira

Kennaranámskeið á Akranesi
Dagana 14. og 15. ágúst var ég með námskeið fyrir kennara Brekkubæjarskóla á Akranesi ...
meira

Björg Eiríksdóttir

Kennari við Kársnesskóla

Skólagerði 67, 200 Kópavogur

sími: 555-2357 og GSM: 899-2357

netfang:
bjorgeiriks@simnet.is og bjeir@kask.kopavogur.is