Drottinn, þú veist hvernig mér líður nú.
Missirinn skók tilveru mína við grunn.
Í innstu kviku nístir sársaukinn.
Þó er sem allt sé óraunverulegt.
Þett er eins og martröð, ægileg martröð.
Þetta kemur yfir mig einsog í bylgjum.
Gráturinn er alltar á næsta leiti.
Hjálpa mér að gráta. Gráturinn er gjöf þín.
Hann læknar, laugar sárin og græðir.
Hjálpa mér, Guð minn í sorg minni.
Söknuðurinn er svo sár.
Í jesús nafni Amen.