Tuesday, March 25, 2008

Færsla dagsins er í boði Sindra:

kínsamúrin er 6.350 kílómetra lángur.kínamúrin nær ifir öll fjöll í kína.kínamúrin er ðað eina mangjerða sem sjest frá túnglinu.til að sana að kínamúrin sjest frá túnglinuer sönunin sú að geimfari frá ameríku tóg mind af múrnum með venjulegari mindavélen kínvskur geimfai hafi ekki sjeð múrin en mindin af múrnum var sínd í kínvesku frjetadlaði.

Og þar höfum við það! Hann upplýsti mig um að hann hefði ma fengið heimildir í færsluna héðan: http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1134576

Thursday, February 21, 2008

.:óvæntur morgunverður:.

Ég er svo ánægð með atburði morgunsins á heimilinu að ég má til með að punkta það niður. Eins og venjulega, þegar Tryggvi er erlendis, vakna ég klukkan 6:50 og byrja á að setja sturtuna í gang. Síðan fer ég og ýti við Sindra, en það tekur hann yfirleitt svona 25 mínútur að koma sér fram úr rúminu. Morguninn í morgun var engin undantekning; þegar ég var búin að ýta við Sindra fór ég í sturtu. En þá er komið að kraftaverkinu: þegar ég er að þurrka mér þá finn ég ristabrauð lykt...þá hafði minn maður tekið sig til og ákveðið að koma mömmu sinni á óvart. Hann var búinn að sækja brauð í frystinn og setja í ristavélina. Það var komið smjör, ostur og mjólk á borðið og diskar og glös fyrir 3. Ég var svo glöð og hissa að það mætti halda að ég hafi unnið í lottóinu!! En þetta framtak Sindra fær mig næstum til að sætta mig við að Tryggvi verði ekki á landinu á konudaginn til að dekra við mig eins og hann er vanur ;)

Thursday, December 13, 2007

Sýndarmennska Kóreubúa / Voffvoff

Heija, ég verð nú að pósta allavega einu sinni í þessari ferð.

Mér hefur alltaf fundist heimamenn hérna vera uppteknir af heilsu og hollu matarræði án þess að það sé eitthvað alvöru á bak við það, dæmi: fólk hugsar mikið um það sem það setur ofan í sig en fær sér svo tvær sígarettur í eftirrétt.

Nema hvað, um daginn voru frekar mikilvægar prófanir á kerfinu hjá okkur sem við stóðumst að sjálfsgögðu með prýði. Til að halda upp á árangurinn bauð yfirmaðurinn á staðnum okkur út í mat og fyrir valinu varð hundur. Já, hér í Kóreu er hægt að borða hund á þartilgerðum veitingahúsum, þeir meira að segja rækta sérstaka tegund til manneldis sem ekki er hægt að fá sem gæludýr.

Ókei, ég hugsaði sem svo að ég hefði nú verið á sjó og farið í Smuguna, kyngt ælu og gæti nú víst étið hund.

En þegar á hólminn var komið og fyrsti bitinn kominn í munninn, þá var nú heldur annað uppi á teningunum. Ég gat bara ómögulega tuggið þetta og þurfti með herkjum að kyngja þessu. Þetta voru nota bene eingöngu sálfræðileg viðbrögð hjá mér, ekki að kjötið væri svona viðbjóðslegt.

Heimamenn halda því hins vegar fram að hundakjöt sé það besta sem hægt sé að fá fyrir heilsu og útlit. Fólk var að hafa áhyggjur af því að við gætum ekki sofið í margar nætur á eftir, það væri svo mikill kraftur í þessu. Svo mæti ég í vinnu morguninn eftir, og túlkurinn okkar hrósar mér mikið fyrir hvað húðin mín sé fallegri eftir máltíðina og ég geisli allur. Það hefur verið eitthvað mjög gott í þessum eina bita sem ég náði að setja niður...

Sumsé, hundur verður ekki framar á matseðlinum hjá mér, ekki af því hann er vondur á bragðið, heldur af því hann er of vingjarnlegur til augnanna ;)

Sunday, December 09, 2007

-Búðaferðir-
Ég fór með bæði börnin í búðaferð í dag. Fyrst fórum við Sindri og hann er auðvitað snillingur. Hann byrjaði á að tæma baukinn sinn og taldi svo samviskusamlega hverja krónu því hann ætlaði að kaup gjöf handa systur sinni fyrir sína eigin peninga. Hann var búinn að fá Örnu til að krossa "X " í leikfangabækling við allt sem hana langaði í svo hann hefði einhverjar hugmyndir. Við fórum svo í Toys'r Us og eyddum góðum klukkutíma þar inni því hann var að spá og spekúlera. Að lokum tók hann ákvörðun og við versluðum gjöfina. Að því loknu spurði ég hann hvort hann væri þá komin með allar gjafir fyrir jólin en hann svaraði: "nei, ég á eftir að kaupa handa pabba". Eins og síðustu ár bjóst ég við sameiginlegri gjöf frá honum til foreldra sinna sem hann föndraði í skólanum en hann sagðist hafa merkt þá gjöf bara til mín. Hann væri sko að hugsa um að kaupa sparibuxur á pabba í jólagjöf; "Svona svartar með gráum röndum og tölum efst"...

Arna skrapp svo með mér í Debenhams og hún verður eins og lítil fertug kelling þar inni. Svona talar Arna í Debenhams: "Ó, mamma- sjáðu hvað þetta er krúttlegt". "Þetta passar örugglega á Sunnu krútt". "Æ, ég fann þetta hjá hinum krúttlegu skónum- finnst þér þetta ekki fallegt mamma"? Hún tekur sko fullan þátt í að versla og hefur skoðun á bókstaflega öllu :)

Wednesday, December 05, 2007

...dagur 5:22
- ef þetta væri dagskrárliður á Skjánum (þáttur 5 af 22...dagur 5 af 22)

jólavertíðin er hafin hjá fjölskyldunni í Lyngbrekkunni- sem sárlega vantar fjórða hjólið undir vagninn. Nú þegar búið 1 jólaball, 2 stk jólaföndur og piparkökubakstur. Framundan er enn meira jólastúss eins og jólaleikrit, helgileikur í Digraneskirkju, laufabrauðsgerð, jólatrésleit, jólagjafainnkaup og að lokum...sirka tólf mínútur í jól kemur pabbinn heim :)

Over and Out

Thursday, November 29, 2007



Monday, November 26, 2007

-rafmagnsleysi-

Í gærkvöldi þegar "ertu skarpari en skólakrakki" var tæplega hálfnaður fór rafmagnið af hverfinu okkar. Það verður að viðurkennast að þetta var ósköp notalegt; við kveiktum á fullt af kertum og kúrðum okkur svo í sófanum í nýju kósí-stofunni okkar (kem að því síðar)og sátum svo þar og röbbuðum um allt milli himins og jarðar. Eins og eðlilegt er þá fórum við að tala um hvernig lífið hafi verið í eldgamla daga þegar fólk hafði ekki rafmagn og börnin spurðu mikið út í þetta. Eitt af því sem er erfitt að sjá fyrir sér þegar maður er 5 og 7 ára og hefur alist upp við að 10-11 er opin allan sólarhringinn er að fólk hafi búið við sjálsþurftarbúskap. Sindri var að reyna að útskýra fyrir Örnu hversu daprar aðstæður fólk bjó við í sveitum landsins í eldgamla daga og þá kom þessi gullmoli: "það var sko ekkert hægt að fara út í búð og kaupa kokteilsósu, fólk þurfti að búa hana til sjálft".

Varðandi nýju kósístofuna okkar þá er Tryggvi búinn að standa í stórræðum síðustu vikuna. Hann og afi Siggi byrjuðu á þriðjudaginn að pússa parketið í stofunni- svo tók við klepparavinna við lökkun, síðan var allt málað og eyddum við svo gærdeginum í að flytja inn aftur. Gerðum smávægilegar breytingar á uppröðuninni og settum sófasettið inn í sólstofu svo þar er núna svona lítil kósístofa. En mikið rosalega er gólfið mitt fallegt núna :)