Nú er laugardagur hér í Jeju. Mér leiddist eitthvað áðan og nennti ekki að vinna og ákvað því að rúlla enn einu sinni í gegnum þessar 40 sjónvarpsstöðvar sem eru í boði. Þær hafa hins vegar allar verið á kóreisku hingað til. Annað hvort ríkisstöðvar eða "cable tv".
En viti menn, ég byrja á #1 og rúlla annars hugar upp skalann, og þegar kemur að #26, þá er allt í einu CNN þar -- á ensku !!
Mér líður eins og þegar Joey og Chandler í Friends þáttunum fundu óruglaða klámstöð í sjónvarpinu hjá sér og þorðu ekki að slökkva á sjónvarpinu í marga dagaa af ótta við að missa stöðina ;)
Ég set bara sjónvarpið á 'mute þegar ég fer að sofa.
