.:Tryggvi kemur heim eftir nokkra klukkutíma, svona ca. 50...
Þessi útlegð hefur ekki beinlínis verið tekin út með sældinni. Ég er hreinlega ekki viss um að ég hleypi Tryggva mikið meira í svona langar ferðir...
Það sem setti dagskrána, hjá okkur sem sitjum heima, mest úr skorðum voru vikulöng veikindi Örnu og 4 daga skólafrí hjá Sindra (þetta hitti nota bene ekki á sama tíma). Sem betur fer eigum við góða að sem hafa aðstoðað okkur- annars væri ég líklega flutt úr Lyngbrekkunni á stofnun við Kleppsveg! Sem dæmi um ástandið á heimilinu þá má nefna að þegar fer að rökkva á kvöldin þá er voða kósí kertaljósastemning hérna- ástæðan hefur þó ekkert með kósíheit að gera heldur er önnur hver ljósapera sprungin. Við erum líka mjög dugleg að nota örbylgjuofnin við að elda og ástæðan er ekki sú að ég nenni ekki að elda heldur er gasið búið...og svona mætti lengi telja. Plús það að veðrið er búið að vera ógeðslegt í heila viku; ég hef 2x orðið holdvot á að hlaupa með Örnu inn í leikskóla og aftur úr í bíl. Og það er ekki gaman að mæta í blautum fötum í vinnuna :/
En það má ekki gleyma að við erum líka búin að bardúsa heilmikið skemmtilegt. Sindri er t.d. staddur í heimsókn hjá frændfólki sínu í Villingaholti núna. Hann fékk að fara í Flóaskóla í dag hefur verið duglegur að segja öllum að frænka hans sé nú skólaSTJÓRINN í þessum skóla.
