.:Sindri Snær 7 ára:.
Fyrir nákvæmlega 7 árum síðan vorum við Tryggvi nánast orðlaus af undrun og hamingju að skoða litla frumurðinn okkar sem skurðlæknirinn var nýbúinn að kippa í heiminn. Á þeirri stundu hefði mig ekki órað fyrir að ég ætti eftir að standa hér, 7 árum síðar, kófsveitt og hás af öskrum, með 20 trítilóða krakka hlaupandi um húsið (og gullfallegi frumburðurðurinn fremstur í flokki jafningja)...en svona er víst Ísland í dag þegar kemur að bekkjarafmælum!!
Sindri er sumsé búinn að halda 2 veislur í tilefni afmælisins- eina í gær fyrir fjölskyldu og vini og aðra í dag fyrir bekkinn sinn. Sindri þakkar fyrir sig- hann er svo ánægður með þessi tímamót að hann brosir út í eitt ;)

