Thursday, February 21, 2008

.:óvæntur morgunverður:.

Ég er svo ánægð með atburði morgunsins á heimilinu að ég má til með að punkta það niður. Eins og venjulega, þegar Tryggvi er erlendis, vakna ég klukkan 6:50 og byrja á að setja sturtuna í gang. Síðan fer ég og ýti við Sindra, en það tekur hann yfirleitt svona 25 mínútur að koma sér fram úr rúminu. Morguninn í morgun var engin undantekning; þegar ég var búin að ýta við Sindra fór ég í sturtu. En þá er komið að kraftaverkinu: þegar ég er að þurrka mér þá finn ég ristabrauð lykt...þá hafði minn maður tekið sig til og ákveðið að koma mömmu sinni á óvart. Hann var búinn að sækja brauð í frystinn og setja í ristavélina. Það var komið smjör, ostur og mjólk á borðið og diskar og glös fyrir 3. Ég var svo glöð og hissa að það mætti halda að ég hafi unnið í lottóinu!! En þetta framtak Sindra fær mig næstum til að sætta mig við að Tryggvi verði ekki á landinu á konudaginn til að dekra við mig eins og hann er vanur ;)