Vesturvangur 10
Núna eru online á síðunni.
Um okkur

Myndir

Linkar

Daglegu linkarnir mínir Sigurgeir Valur og Aníta Kiddi karfa Svenni meistari Solla Fannar The SteelFreak Gulli félagi Rebba á flickr Hvíti Riddarinn Veður(Belgingur) Physorg.com World Science Science Daily Learnvisualstudio.net Vefpósturinn minn
Æfingadagbókin mín

Vinnufélagarnir
Árni Sigurjóns Sveinssonar Erling I Erling II Kalli Jésús Ívar Örn Róbert Badí

Smellið á myndina til að fara heim
Sendið okkur línu
Blogg 2004
24.09.2007
HÆTTUR

Ég er hættur að blogga á þessa síðu og er í staðinn kominn á sturla.simnet.is.

Síðurnar eru s.s:
sturla.simnet.is (nýja og flotta síðan mín!)
Sturla76 á myspace (eitthvað aðeins notað)
MSN síðan (nota þessa ekkert)
Facebook (þessa síðu fíla ég bara ekki!!!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 16:33

05.09.2007
Blaðra DAUÐANS og klaufir, og eðal 80´s trega ballaða

Ég ákvað að sýna bara engar myndir af þessari svakalegu blöðru sem ég er búinn að vera með á ilinni (rétt fyrir neðan stórutá) vegna þess að hún er EKKERT sexy!! En ég er s.s búinn að vera að haltra síðan á fimmtudag/föstudag en ákvað síðan að stinga á hana í gær og viti menn... ég held að ég geti bara labbað aftur!! Ég spilaði t.d á æfingu í gær eins og ég hefði klaufir... ÖMURLEG ÆFING!! Ég skal sko láta menn finna fyrir því í kvöld... þetta var bara undantekning!!!

Fyrir utan þennan viðbjóð þá langar mig að deila með ykkur alveg snildarlagi...Lady með Steelheart

p.s
Langaði bara til að láta ykkur vita að ég er kominn með nýja síðu og mun þessi elska detta út á næstu vikum... Skoðið nýju síðuna mína hérna...... flott url? :-)

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 15:07

31.08.2007
Gifting = SORPHIRÐA

Þessi grein (Study Reveals MARRIED Men Lag Behind in Household Chores) er mjög áhugaverð. Ekki það að ég sé neitt á leiðinni í hnapphelduna strax en ef ég ætti möguleika á því þá myndi ég ekki bíða með það! Frábært að gifta sig og bara hætta að sjá um húsverkin.. þau annaðhvort sjá um sig sjálf eða konan gerir þau!! :-) og ekki urra á mig konur!! Þetta er hávísindalega SANNAÐ!

"A woman shouldn't be surprised if the man she's lived with suddenly stops taking out the trash or putting away the dirty dishes after they get married."

Annars er fór ég í bowling með hópnum mínum hérna í vinnunni (16 manns). Í dag förum við óvissuferð og á morgun verður LAN og bjór fyrir nördana (og auðvitað mæti ég)! Það er gaman að vera til og gaman að vinna hjá Kaupthing!!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 10:12

29.08.2007
Gluggagjæir...Peeping tom

Ja hérna... áður en við vitum af þá verður maður að þekja húsið sitt með gaddavír til að vera viss um það að ekki sé verið að stara á á berann bossann á manni inn um gluggan á 2-3 hæð!! Sjá: Physicists found formula for spiderman suit

"..it may not be long before we are seeing people climbing up the Empire State Building with nothing but sticky shoes and gloves to support them.”



| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 09:34

25.08.2007
Risa partý 14. SEPTEMBER! Allir mæta!!

Eins og einhverjir vita þá er ég að spila körfubolta með 1.deildarliðinu Ármanni/Þrótt í vetur, og vantar mig stuðning ykkar til að greiða niður rekstrarkostnaðinn af tímabilinu!

Við ættlum að halda svaka partý , 14. sept, í félagsheimili Ármanns/Þróttar við Gervigrasið í Laugardal. En þar er stór og flottur salur þar sem meistaraflokkur karla og kvenna heldur saman þetta partý, og verður því mikið af stórglæsilegum íþróttamönnum á staðnum!

ATH!!!
Miðinn gildir svo sem aðgangsmiði á ALLA heimaleiki karla og kvennaliðsins í vetur. Þannig að þið getið komið og horft á strákin spila í vetur!

Sendið mér bara mail (hérna á myspace eða á sturla76@hotmail.com eða sigurgeirs@islandia.is) til að fá miða, sem kosta aðeins 500 kr!!

Endilega takið með ykkur fullt af fólki á þennan viðburð. Þarna verður fullt af fólki sem þekkist ekkert innbyrgðis og OG ÞVÍ ÞARFTU EKKERT AÐ ÞEKKJA OKKUR TIL ÞESS AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT OG MÆTA Í GOTT PARTÝ!

Upplýsingar um BAR:
Nóg af bjór, áfengu gosi, sterku víni, staupum og snakki! Er það ekki alveg nóg til þess að þú komir??


| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 11:03

20.08.2007
Kaupa föt

Já ég veit ekki hvað þetta er en núna langar mig alveg ROSALEGA að fara og kaupa mér ný föt! Mig langar í 1-2 gallabuxur, 2-3 síðerma hvíta boli, 1-2 svartar skyrtur, 2-3 góðar peysur fyrir veturinn, flíspeysu (eins og ég og Tinna systir gáfum Hrafni bróður), töff jakka og fullt af flottum boxers!!

Hvað er í gangi? Er ég búinn að tapa því? Spurning að bíða með að kaupa þetta hérna heima og skreppa til USA í verslunarferð!!!???


| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 16:54

15.08.2007
Ömurleg æfing og Valur og Aníta verpa loksins Ljóni!!!

Já ekkert s.s mikið að frétta af mér nema það að ég var búinn að hlakka til þess að fara á körfuboltaæfingu í dag... alveg síðan að æfingin á mánudaginn kláraðist!!! Og þrátt fyrir að hafa borðað fullt af flóknum kolvetnum og innbyrgt fullt af bætiefnum til að vera í fullkomnum orkugír, þá var ég orkulaus og ömurlegur!!!

Ég veit bara ekki hvað var í gangi!! Það var ekki eins og ég væri ekki búinn að sofa meira en köttur! Ég ættla að kenna þessum pinkulittlu veikindum mínum um þetta og vona svo sannalega að ég verði fullur af orku og baráttu á æfingunni á morgun!

Og eitthvað eru hendurnar á mér og Sigurgeiri öðruvísi, því hann átti stórgóða æfingu með þessum djö**lsins bolta! Auðvitað!!! Þetta var ekkert ég!! Þetta var BOLTINN!!! Hahahahha hlaut bara að vera! Spilum bara með öðrum bolta á morgun og málið er leyst!! :-)

En að öðru og MIKKLU merkilegra en Valur og Aníta eignuðust littla stelpu í gær! Hún var 16 merkur og 54 cm! Væri ekki gaman ef hún yrði skýrð Sturla? hummmm..... ég meina það!!! Það þarf ekki að fara í eitthvað mega nýmóðins eins og t.d

Gamalíel
Gyðríður
Steinríður
Einarína
Eyflalía
Hafsteina
Laíla
Odda
Hlédís
Ásvör
Friðfinna
Dögun
Gíslunn
Fróðný
Pálheiður
Dara
Armenía
Úa
Belgmundína
Erlendína
Freðsvunta
Gjaflaug
Mist Eik
Sölvína
Lúðvíka
Hákonía
Torfey
Adela
Agða
Albína
Alfífa
Alvilda
Amal
Axelma
Einhildur
Jóngerð
Hendrikka
Arína
Pálmfríður
Eggrún
Gestheiður
Gytta

til að koma með eitthvað öðruvísi! Það er hægt að skýra barnið sitt, hinu ramm íslenska nafni Ljótur Svartur Bolli Valsson (ekki fæddur ennþá)! Og þá afhverju ekki einu af tveimur nöfnum (þetta er örugglega fyrir langa löngu úrelt miðað við þau stórfurðulegu nöfn sem litið hafa dagsins ljós seinustu ár) sem (geta) haft kvennkyns begingarendingu! Nöfnin eru s.s Sturla og Órækja! Sturla Valsdóttir?.... ættli ég verði ekki að láta þau skötuhjú ráða þessu!!

En fyrir utan rugglið í mér þá óska ég ykkur til hamingju með littlu stelpuna verður gaman að koma að skoða! Fullt af börnum bara í þessari viku! Ofsalega gaman!

Skoðið lista yfir íslensk nöfn kvenna ef þið hafið áhuga á að skoða valmöguleikana Vals/Anítu og Stefáns/Dídí-ar!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 23:22

12.08.2007
Göngutúr og afslöppun

Ég er búinn að vera eitthvað hálfslappur síðan á föstudaginn (hósti og "slen") og er kominn með alvarlegan leiða á því! Það er bara ekki ég að vera veikur... málið er líka það að ég verð aldrei "almennilega" veikur nema kannski á c.a 2 ára fresti! Ég er t.d ekki nógu slappur núna til að vera fastur í rúmminu, þó ég ætti kannski að láta mig hafa það að vera undir sæng til að losna við þetta sem fyrst!! Ég bara nenni ekki svona rúmmlegu...

Og þessvegna fór ég í dag í göngutúr í sólinni og góða veðrinu. Ég rölti niður á Víðistaðatún (hérna í Hafnafirði), þar sem ég lagðist í grasið og slappaði af í sólinni! Eftir alveg æðislega þægilegan tíma, hélt ég áfram göngu minni frammhjá sjónum hérna í norðubænum. Þetta er eitthvað sem ég þarf að gera meira af. Það er bara ótrúlega friðsælt að annaðhvort hlusta á vindinn leika um trén og hlusta á flugur og fugla eða finna sjávarilminn og heyra í sjávarniðnum! Alveg furðuþægilegt! Góður dagur!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 19:44

11.08.2007
Sumarfríið: Stefán og Dídí eignast stelpu og Hrafn littli bróðir 20 ára og Über túrbó ryksuga!!

Frídagur 15 Laugardagur 11. Ágúst
Hrafn littli bróðir var 20 ára í dag! Var að koma úr mat heima, sem var alger snild! Þetta var svona steina steik þar sem allir elduðu sjálfir það sem þeir ættluðu að borða! Humar,risarækjur, naut,svín og lamb! Ummmmmmm... og síðan eins og í ÖLLUM afmælum okkar systkina var karmellukaka í eftirétt! :-)

Ég fékk síðan innflutningsgjöf frá mömmu og pabba.. þau gáfu mér mína fyrstu ryksugu. Þetta er alger snildar vél... 2000 Watta ofur suga!! :-) Virkilega ánægður með hana!

Frídagur 14 Föstudagur 10. Ágúst
Anna vinkona bauð mér í mat. Svínalundir í rjómaosta sósu með spínat ofl.. Alger snildar réttur og virkilega gaman að brjóta upp leti seinustu daga með góðum félagsskap!

Frídagur 13 Fimtudagur 9. Ágúst

Stefán og Dídí eignast 14 merkur og 51 cm dökkhærða krullu stelpu! Innilega til hamingju með það! Get ekki beðið eftir að koma að skoða! Alltaf gott að vita að það séu einhverjir í vinahópnum frjóir! Ég, Öddi og Mási þurfum að fara í check!!!

Frídagur 12 Miðvikudagur 8. Ágúst

Man bara ekkert eftir því hvað ég gerði þennan dag... það hefur verið eitthvað mjög ómerkilegt!! :-)


| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 22:00

08.08.2007
Sumarfríið

Sorry hvað ég er nú búinn að vera lélegur í þessu bloggi... en ég hef samt haldið utan um það sem ég hef verið að gera og kemur það allt saman hérna á eftir. Þetta er kannski eins spennandi og dagur í lífi MacGyvers en ég er bara nokkuð sáttur með þetta! Ég er bara að skemta sjálfum mér en hvorki konu né börnum... þá liti þessi dagskrá kannski öðruvísi út!

Frídagur 11 Þriðjudagur 7. Ágúst

Vaknaði tiltölulega snemma og fór og talaði við mannin sem er að teikna m.a burðaþolið í húsið mitt (hann var auðvitað ekki búinn með sitt!)... talaði síðan við þann sem sér um raflagnirnar, hann tjáði mér að það yrði tilbúið á morgun! Síðan forritaði ég smá og skellti mér á 1,5 klst körfuboltaæfingu! Eftir það fór ég að borða á Grænum Kosti og síðan í bíó. Ég sá myndina "" eftir Robert Rodrigez... þvílík og önnur eins steypa!.. Það er bara erfitt að vita um hvað í ósköpunum hún er... en ferlega er gott að hafa gert svona mikið í dag!

Frídagur 10 Mánudagur 6. Ágúst

Annan eins rosalegan leti dag hef ég bara ekki upplifað! Ég gerði bara ekkert.... svaf ótrúlega lengi og þegar ég vaknaði þá lá ég bara uppí rúmmi og las bækur og hékk í tölvunni.. borðaði núðlusúpu í kvöldmat því ég nennti ekki út!!... Hét því að þetta yrði eini svona ruggl dagurinn í fríinu! :-) En djöfull er gott að gera svona bull... ekkert stress eða pressa yfir því að þurfa að gera eitthvað!

Frídagur 7-9 Föstudagur-Sunnudagur 3-5. Ágúst

Skellti mér upp í sumarbústað til Tinnu og Davíðs, Tóta og Ann og átti alveg snildar helgi, þar sem mikið var spilað,borðað og spjallað! Spilaði m.a Trivial með Gunnari Birgis!! Kom aftur í bæinn á Sunnudagskvöld!


Frídagur 6 Fimmtudagur 2. Ágúst

Byrjaði að laga lakkið á bílnum mínum (pússaði og blettaði)! Hjálpaði Sigurgeiri að flytja búslóðina sína í nýja húsið (tók hálfan daginn 15-21 og mín var ánægjan)!


Frídagur 5 Miðvikudagur 1. Ágúst

Var mættur í vinnuna kl. c.a 9:30 í morgun til að ná í nokkra hluti af vinnutölvunni sem mig vantar að nota í fríinu! Eftir það fór ég í 3 klst í ræktina, hljóp 4,7 km lyfti smá lappir og fór í pottinn og sleikti sólina! Eftir það fór ég í heimsókn til Vals upp í húsið sem hann er að byggja í Seljahverfinu! Þar næst kom ég við í kaffi til M&P því pabba vantaði teikningar sem ég náði í á bæjarskrifstofuna! Þvínæst skelti ég mér á 1,5 klst körfuboltaæfingu, þar sem ég stóð mig bara ágætlega! Er samt eiginlega alveg búinn á því og ættla að fara að glápa aðeins á sjónvarpið... og kannski lesa smá! Það hefði verið gaman að fara á Magna tónleikna á Gauknum í kvöld en ég ákvað bara að nenna því ekki! Maður getur víst ekki gert allt! Er það nokkuð?


Frídagur 4 Þriðjudagur 31. júlí

Vaknaði nokkuð snemma og tók til í "íbúðinni"! Setti drasl í kassa sem fóru inn í skáp! S.s sópa undir teppi aðgerð! Er mjög sáttur núna! Setti í þvottavél (alltaf mjög spennandi), las síðan í bók,surfaði netið og hélt síðan út til að kaupa lakk á bílinn minn og láta skipta um bremsuklossa! Klossarnir reyndust ekki vera það eina sem þurfti að skipta um heldur varð ég að splæsa í nýja bremsu-diska og eftir 2 klst bið kostaði þetta allt saman 24.000 kr! Algert morð að eiga stundum bíl! Spurning að skipta honum bara í 2008 árgerð af Benz sem bilar ekki næstu 20 árinn!!! Síðan fór ég og hitti uppáhaldsfrænku mína hana Ísabellu í sjávaréttapasta hja M&P! Síðan er ég bara búin að vera að tölvast í allt kvöld... stórhættulegt! Jæja farinn að lesa smá og fara síðan að sofa!


| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 01:24

31.07.2007
Sumarfríið

Ég var víst búinn að lofa því að láta ykkur vita hvað ég ættla að gera í sumarfríinu mínu! Ég er hinsvegar hættur við það (þó ég eigi listann) og ættla þess í stað bara að láta ykkur vita hvað ég gerir, eftir að ég er búinn að gera það! Ættli ég geri þetta ekki bara svona í fríinu.. safna saman dögunum og smelli þeim, í bloggið, í svona "kippum"! Vonandi hafið þið það gott, því ég hef það bara mjög fínt í fríinu!!

Frídagur 3 Mánudagur 30. júlí

Vaknaði 09:15 þegar vekjaraklukkan hringdi!! Búinn að slökkva á henni þannig að hún hringi ekki allt sumarfríið mitt! Sofnaði aftur, eftir að hafa lesið 2 kafla í Draumalandinu, og svaf til 12:48... sem er met seinustu nokkur ár held ég bara! Fór með Ödda á Thorvaldsen og fékk mér Jungle Curry. Alveg eðal kjúklingaréttur! Eftir það fórum við að skoða sófa sem voru á útsölu.. sá ekkert sem mér leist á ... kostaði samt allt svakalega mikið! Í kvöld er ég búinn að vera að skoða bækur á Amazon til að panta! Ættla að lesa smá í Draumalandinu áður en ég fer að sofa!

Frídagur 2 Sunnudagur 29.júlí

Kláraði að uppfæra tölvuna. Keypti "smellu" krukkur í IKEA til að setja niðurskorinn "smá" Chilli í Olíu í. Keypti 2 bækur, Draumalandið eftir Andra snæ og "Where have all the leaders gone? eftir Lee Iacocca. Fór í Mexicanskan mat til M&P og hitti síðan stákana á kaffi París um kvödið! Virkilega skemtilegur dagur!

Frídagur 1 Laugardagur 28.júli

Vaknaði 08:30 c.a. Formattaði tölvuna og setti XP upp frá grunni. Fór með Ödda,Svenna og Kalla (úr vinnunni) í golf í Hveragerði. Fór síðan í grill heim til M&P upp í sumarbústað! Kom síðan heim og hélt aðeins áfram að uppfæra tölvuna meðan ég horfði á sjónvarpið!

Frídagur 0 Föstudagur 27.júlí
Fór bara heim eftir vinnu, dauðþreyttur... horfði aðeins á sjónvarpið og fór að sofa!


| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 14:53

27.07.2007
Fyrsta æfingin hjá Ármanni/Þrótti, PowerYoga og SUMARFRÍ!

Fyrst ættla ég að þakka fyrir hlý og skemtileg komment á seinasta blogg! Maður þarf að fá svona klapp á bakið einstaka sinnum til þess að halda áfram! Ég hef að vísu ekkert hugsað mér að hætta að blogga því fyrir mér er þetta líka dagbók um lífið mitt sem ég hef eflaust gaman að skoða þegar ég er orðinn gamall! Það verður gaman að skoða og bera saman nýtt og gamalt blogg og sjá hvort maður hafi þroskast eitthvað, bæði sem manneskja og "penni"! Ættli það verði síðan ekki eitthvað sem maður verður að ritskoða ef maður fer að hrúga niður börnum? Hvað mega þau vita um pabba? Ójæja... börn ekki alveg í spilunum eins og stendur þannig að ég ættla ekki að stressa mig of mikið á þessu strax!

fyrsta æfingin!! Það var alger snild að komast loksins inn í körfuboltasal. Auðvitað var skoðið ömurlegt,dripplið ekki til staðar, varnar tilburðir engir og sóknartilburðir alveg úti á túni! En samt var þetta alveg æðislegt! Ég er búinn að vera mjög duglegur í sumar að lyfta og hlaupa þannig að formið var alveg til staðar en sama er hægt að segja um stirðleikann! Þetta kemur allt til með að koma og hef ég engar áhyggjur! T.d er ég aðeins 94,5 kg í dag, miðað við 99 kg þegar tímabilið byrjaði í fyrra! Einnig er ég c.a 6 % fita og því í mun betra formi núna en oft áður! Enda hoppaði ég frekar létt upp í körfuhringinn og hékk þar með báðum höndum! Ég verð byrjaður að troða mjööööög bráðlega (þ.e troða með tilþrifum!).

En til að losna við stirðleikann ættla ég að mæta í PowerYoga tíma í Laugum í sumarfríinu! Ég hef heyrt að það séu mjög skemtilegir tímar og þó að ég fari í splitt þá er alveg hægt að bæta þennan "alhliða" teigjanleika sem gott er að hafa í körfunni! T.d fara margir ungir körfuboltamenn í USA í ballet til að bæta liðleika,léttleika og samhæfingu! Svo langt hef ég samt ekki ættlað mér, en hver veit!? :-)

Sturla í Ballet?
Sturla tekur karlmennskuna upp á næsta stig og mætir á körfuboltaæfingu í nýja æfingadressinu!

p.s
Ég er síðan loksins farinn í sumarfrí (byrja í dag)! Ég tók 1 viku í frí í fyrra og er því að verða Sturlaður af sumarleifisleysi! Ég veit ekki hversu mikið ég mun blogga, en ég ættla samt að setja "dagskrá" sumarfrísins hingað inn þannig að fylgist með!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 15:27

26.07.2007
Körfubolti: Undirbúningstímabilið hafið!

Það lá við að ég gæti ekki sofið í nótt fyrir spenning! Fyrsta æfingin í körfunni er í kvöld kl 20:30 í Austurbergi! Skoðið www.korfubolti.com til að skoða alla æfingatíma út ágúst!

Við komum til með að deila salnum með meistaraflokki kvenna (salnum! Ekki æfingunum!) þannig að það verður spilað þversum á salinn en ekki á fullan stórann! Það er s.s í fínu lagi mín vegna.. þá æfist ég bara frekar í stuttu sprettunum.

Annars er þetta alveg týpiskt! Ég er ekki búinn að fá einusinni harðsperrur í sumar þrátt fyrir að vera búinn að lyfta eins og géðsjúkur! Ekki það er að segja, fyrr en í DAG!!! Ótrúlegt... lyfti lappirnar í fyrradag og tók 18 holu golf í gær... ættli ég mæti ekki 40 mín fyrir æfingu í kvöld og taki útihlaup og tegjur í hupphitun!

Síðan er ég að fara í sumarfrí núna á föstudaginn þannig að ég veit ekki hvort það verði mikið bloggað... sérstaklega nenni ég ekki að blogga ef það er bara enginn sem kommentar!!! Seinasta komment kom fyrir 7 dögum!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 09:44

24.07.2007
Þrekmeistarinn

Ég rakst á þessa síðu áðan og mig langar bara að fara að keppa í þrekmeistaranum ! Þetta er enginn smá naggli þessi stelpa... æfir 10-12x í viku!! Magnað!

En hver ættlar að koma með mér norður og keppa í þrekmeistaranum? Ég geri ráð fyrir að það verði keppt núna í haust!!!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 14:02

23.07.2007
Ekki deyja úr töffaraskap!

Það var umræða í vinnunni, núna í hádeginu ,um hálfvita í umferðinni! Fólk sem reynir að stjórna hraða í umferðinni er stórhættulegt! Keyrið á hægri akrein EKKI á vinstri!



| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 12:43

19.07.2007
Bilað termostat í mér! Uppáhalds árstíðin mín

Núna er þoka og rigning úti og tiltölulega lítill hiti, en ég er að elska það! Þegar ég kom út í morgun þá fór um mig mikil vellíðunar tilfinning þegar kaldur gusturinn og regndroparnir lentu á andlitinu á mér...

Ég hef alltaf verið svona.. hiti og sól er ekki efst á vinsældarlistanum mínum! Það er fátt meira skemtilegt en að vaða, vel búinn, út í snjóbil með ekki meira en 10 m skygni! Að berjast á móti náttúruöflum sem eru svo mikklu kröftugri en maðurinn er eitthvað svo auðmíkjandi en um leið alveg rosalega spennandi (skemmir ekki fyrir ef það eru rosalegir skaflar og rok sem reynir á þrekið!)!

Samt finnst mér stundum hiti mjög þægilegur t.d þegar ég var yngri og allir voru úti í sólbaði þá þótti mér langbest að liggja undir teppi Í SÓLBAÐI! Einnig finnst mér fátt betra en að vera í sjóðandi heitri gufu eða eitum potti sem gefur mér náladofa!

En merkilegt nokk þá finnst mér fátt betra en að sofa í mjög mikklum kulda... t.d hef ég alla glugga oppna hjá mér þegar ég sef.. þetta hefur stundum verið vandamál á veturna, því það á til að SKAFA snjó inn á nóttunni!

Uppáhalds tíminn minn er samt algerlega haustið! Þá er skín sólinn og hitar kaldar kinnar... það er síðan fátt sem toppar "haust lyktin" í bland við alla litadýrðina! Af einhverri ástæðu þá finnst mér líka hljóðlátara á haustinn.. einhver ró í loftinu!

Og ekki skemmir fyrir að á haustin setur maður sumar fötin inn í skáp og tekur upp góðar hlýjar,þykkar peysur! Það er sá fataflokkur sem mér þykir skemtilegast að versla (sem er annars eitt af því óskemtilegasta sem ég geri!)!

Það er bara eins og ég sé í fjarbúð með haustinu sem ég sakna svo mikið. Um að gera að njóta samt bara sumarsins því þá verða endurkynnin ennþá ánægjulegri! :-)

p.s
Eitthvað á hann Sigurgeir eftir að segja þegar hann les þetta!!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 10:42

18.07.2007
Space tourism

Ef ég yfirgef þennan heim án þess að komast út í geym þá skal ég lofa ykkur því að ég mun koma aftur, annað hvort sem draugur eða endurfæddur sem rotta sem mun troða sér inn í næsta geymfar á leiðinni út fyrir gufuhvolfið!

Horfið á "Space Tourism: Multimedia special report". Ég er strax byrjaður að safna fyrir fari út í geym!

Það er s.s ekki langt í það að þetta verði að raunveruleika fyrir hinn vengjulega ferðalang! Það er strax byrjað að búa til "Space port" (geim-hafnir)!!

Skoðið upplýsingar um geimhöfnina (Virgin Galactic) hanns Richard Branson í Nýju Mexico! HORFIÐ Á ÞETTA VÍDEÓ.... VÁ HVAÐ ÉG ER AÐ FARA ÚT Í GEIM EINN DAGINN!!!... OG EKKI DYRARA EN 180.000 $!!!!!ÞAÐ VERÐUR EFLAUST ERFIÐAST BARA AÐ GETA PANTAÐ FLUG!! ÖRUGGLEGA 10 ÁRA BIÐ!!! ARGGGGGGGGGGG......

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 12:34

17.07.2007
Core2 Extreme mobile dual-core processor núna og Quad Core á næsta ári

Já tíminn til að kaupa fartölvu sem ræður við hvað sem er er að koma! Á næsta ári kaupi ég eflaust svona Quad Core lappa! Þvílíkt og annað eins... En núna vill ég fá Quad Core vinnutölvu... það tekur alltof langan tíma að builda!!

Lesa: Intel Ships First-Ever Extreme Edition Mobile Processor; Adds New Desktop Chip

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 22:42

13.07.2007
Humor og helgin

Ég bara verð að setja þennan aulabrandara hingað inn... hann Sigurgeir sendi mér hann núna áðan

New York (CNN). At John F. Kennedy International Airport today, a Caucasian male (later discovered to be a high school mathematics teacher) was arrested trying to board a flight while in possession of a compass, a protractor and a graphical calculator.

According to law enforcement officials, he is believed to have ties to the Al-Gebra network. He will be charged with carrying weapons of math instruction.


Ég veit... ég veit... mjög súr!!! :-)

Annars er planið hjá mér um helgina þetta. Fara í sumarbústað í kvöld með strákunum úr Hvíta Riddaranum. Planið er að fara að veiða (sem ég ættla bara að horfa á!), grilla og djamma síðan eins og Riddurum einum er lagið!

Á morgun fer ég síðan í bæinn og tek annað djamm með félögunum, en boðið er í grill í slotti foreldrana kl c.a 20 um kvöldið... hrikalega verð ég eflaust búinn á því á sunnudaginn... en þá ættla ég samt að sjá Harry Potter í bíó! Þessi helgi lítur bara ágætlega út!!

Hafið það gott og njótið helgarinnar... það kemur víst til með að kólna í næstu viku!! Skoðið endilega Belging til að fá nánari veðurfréttir!

| Sturla Þorvaldsson bloggaði kl. 10:33

Massaðir karlmenn
Fellurðu fyrir mössuðum körlum?

Já svona Magga Sceving vaxna
Já , Maggi Sceving PLUS
Já Vaxtaræktarmenn gera það!
Ég vil þá mjög granna
Ég vil hafa þá með bumbu
Vöðvalitlir,fitulausir er sexy!
Mér er alveg sama!

Eldri kannanir

Innlendar og erlendar fr‚ttir


I_r¢ttir


_etta var ¡ byrjun fyrir ™dda!

Seinustu komment!