Áhugamál

Mitt helsta áhugamál er fólk; atferli þess, samskipti og velferð. Auk þess hef mikinn áhuga á listastarfsemi margskonar, hvort sem um er að ræða mynd-, leik- eða ritlist. Ég hef starfað mikið í leiklist og hef stundað skriftir, þar af gert tvær leikgerðir sem hafa verið sýnar hérlendis eins hef ég dundað mér við ljóðagerð eins stóð ég fyrir útgáfu blaðsins Senuþjófurinn ásamt félaga mínum, sem fjallaði um menningu á Norðanverðum Vestfjörðum ætlunin var að það kæmi út fjórum sinnum á ári en aðeins kom út eitt tölublað. Auk þess hef ég mikinn áhuga á tölvum og tæknibúnaði margskonar. Einnig hef ég gaman að því að vera úti í náttúrunni og þá helst með veiðistöng við hönd. Að lokum ber að nefna að ég hef mikin áhuga á skrautfiskum og er með fjögur fiskabúr325 l. með Malaví síklíðum, 64 l. búr með gullfiski, 8 l. plexí búr í vinnunni með neon tetrum og 225 l. búr sem er óuppsett og bíður tíma míns.