miðvikudagur, 19. desember 2007

 

Nokkur verkefni

Í dag var ég beðinn að taka að mér frítt verkefni. Ég er þegar að taka að mér nokkur frí verkefni og vil svosem ekki vera að bæta við endalaust af þeim svo ég afþakkaði það. Ég væri sannarlega til í að taka að mér verkið en ef maður er að gera sig út í svona bissness þá á maður ekki að gera allt frítt. Ég sé td. ekki fyrir mér að smiðir eða rafvirkjar taki að sér frí verkefni. Þarna á ég auðvitað við desember verkefnin.

Annars kom Þröstur með geðveikt fyndna hugmynd af verkefni, fyndninar vegna get ég eiginlega ekki hafnað því.

Flokkar:


 

Skyrgámur

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o?n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

Þessi er auðvitað í ákveðnu uppáhaldi.

þriðjudagur, 18. desember 2007

 

Í lagi eða ekki í lagi?

Ég er búinn að vera að vinna í síðunni minni. Búinn að hressa hana aðeins við og gera hana aðgengilegri rökréttari. Eins og einhverjir hafa séð hefur það ekki gengið áfallalaust, sumir sem eru með lága upplausn, firefox, með favorites barinn niðri og álíka hafa fengið síðuna í messi og fengið vinstri hlutan fyrir neðan allt annað á síðunni. Með góðri aðstoð fann ég út hvernig átti að laga það og vonandi dugar það. Ef einhverjir lenda enn í vanda er auglýst hér með eftir commentum um það.

Annars er ég búinn að skila öllu til skólans í bili og er það vagnaðarefni.

Flokkar:


 

Hurðaskellir

Sjöundi var Hurðaskellir,
-sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

 

Aur og nám

Þegar ég ók leið mína í vinnuna í morgun keyrði ég fram á 5 aurskriður sem verið var að riðja á brott. Þessi hindrun tafði mig nokkuð á leið minni og fyrir vikið mætti ég örlítið of seint í vinnuna.

Í nótt kláraði ég svo námið á þessu misseri, það eina sem er eftir eru smá umræður og þá get ég farið að sinna öllu öðru.

Flokkar:


mánudagur, 17. desember 2007

 

Fjölgun mankyns

Pálína til hamingju með drenginn sem fæddist í morgun.

Flokkar:


 

Flokkar:


 

Djók

Ég gerði dálítið sérstakt djók. Segi betur frá því síðar.

Flokkar:


 

Askasleikir

Sá sjötti Askasleikir,
var alveg dæmalaus.-
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

sunnudagur, 16. desember 2007

 

Pottaskefill

Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

laugardagur, 15. desember 2007

 

Þvörusleikir

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

föstudagur, 14. desember 2007

 

Í vinnslu

Ég er að laga, uppfæra og breyta síðunni minni og munu hlutirnir verða dálítið sérstakir.
Ég bið áhangendur mína afsökuar á þessu.

Flokkar:


 

Stúfur

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

fimmtudagur, 13. desember 2007

 

Reynsluráðningunni að ljúka

Jæja Þá er reynsluráðningu minni að ljúka. Ég er semsagt að verða búinn að vinna hjá Félagsþjónustu við Djúp í 3 mánuði.
Ég setti inn á skrifstofu með Grími í dag og við ræddum málin og þau njóta návistar minnar lengur.

 

Giljagaur

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

miðvikudagur, 12. desember 2007

 

Hálka

Í morgun var geðveik hálka. Það hefur greinilega rignt, frosið aftur og er farið að þiðna. Ég átti í miklum vandræðum með að komast liðar minnar, hvort heldur sem það var á leiðinni út í bílinn eða akandi á bílnum. Við þessar aðstæður datt mér í hug atburður sem gerðist fyrir nokkrum árum þar sem barnshafandi kona rann í hálku út af Hjallaveginum á Suðureyri og niður í garð á götunni fyrir neðan. Þetta er ekki eina skiptið sem fólk lenti í vandræðum á þessari götu. Í kjölfar þessa skoraði slysavarnarfólk á Ísafjarðarbæ að koma upp vegriði á Hjallavegi. Svar barst frá Ísafjarðarbæ þar sem talað er um að ekki verði sett upp vegrið en áhersla verði lögð á hálkuvarnir. Þetta var árið 2003. Síðan þetta var gefið út man ég eftir þremur skiptum sem umrædd gata hefur verið hálkuvarin.

Flokkar:


 

Stekkjastaur

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

fimmtudagur, 6. desember 2007

 

Tryggðin skiptir engu

Ég hef verið að velta fyrir mér dálitlu varðandi auglýsingar frá bönkunum og tryggingafélögunum. Þeir sem koma nýjir í viðskipti við viðkomandi banka eða tryggingafélag er boðið allskonar tilboð um þetta og hitt. Hvað hinsvegar með þá sem hafa haldið tryggð við sama bankan eða sama tryggingafélagið í jafnvel tugi ára? Þurfa þeir að hætta í viðskiptum og koma aftur til þess að vera hampað?

Flokkar:


mánudagur, 3. desember 2007

 
Þegar ég keyrði í vinnuna í morgun þá rann upp fyrir mér ljós, ég tók eftir að það var slökkt á 21 ljósastaur milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Áður en þetta átti sér stað þurfti ég reyndar að losa bílana. Það er einmitt eitt af göllunum við það að vera með tvo bíla að maður þarf að losa báða bílana.

Þegar vinnudeginum lauk fór ég í Bónus. Þó ekki til að kaupa lauk. En ég var meðal annars að leita að rakvélablöðum því ég er orðinn ansi loðinn. En þau voru ekki til svo ég verð að vera loðinn áfram.

Ég var að aðstoða Bergþór Óla við að bursta í sér tennurnar áðan og það gengur oft ýmislegt á þegar við feðgar erum að bursta. Hann semsagt veit ekkert leiðinlegra en að ég bursti hann en hann fílar í botn að bursta sjálfur, reyndar þá burstar hann þannig að hann setur tannburstann undir vatnið og sýpur vatnið út honum. Þegar við vorum búnir að að bursta fórum við inn í rúm. Þegar ég lá þétt upp að honum þá kom hann með einhvern undarlegan svip og hnussaði. Þegar ég kom fram þá áttaði ég mig á hvað var að, ég var semsagt með tannkrem á nefinu.

Flokkar: ,


 

Suður, austur, suður, vestur og í bíó

Ég kom heim á laugardaginn að sunnan og er að fara austur á land á morgun. En eins og flestir vita þá er ekki flogið beint þangað svo ég mun ég millilenda í Reykjavík. Ég sef eina nótt fyrir austan og svo aðra í Reykjavík. Þannig að ég kemst á frumsýningu Duggholfólksis sem mér var boðið á, enda var ég að leika smávegis í þeirri mynd. Ég auglýsi hér með eftir einhverjum til að koma með mér á frumsýningu á miðvikudaginn.

Flokkar:


This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Subscribe to Posts [Atom]