17. september 2008
Fiskabúrið komið upp
Þá er maður búinn að koma fiskabúrinu fyrir og búinn að setja vatn í það, ekki þó allveg fullt. Ég held ég hafi sett svona 70% í það þar af 50l af gamla vatninu. Það gekk frekar illa að koma vatninu í búrið, ég gat ekki með nokkru móti losað af krönunum í íbúðinni, mig sárvantaði töng. Klukkan var orðin markt svo ég gat ekki beint farið að banka uppá hjá fólki og fá töng. Ég gramsaði í kössunum og fann hnetubrjót og notaði hana á kranana og losaði af til að koma slöngutenginu á.
Athugasemdir:
<< Heim
Já sko kaddlinn hann deyr ekki ráðalaus eða var það ráðalaust ??? hihihihi......
Mikið hafa fiskagreyjin verið fegnir að komast í búrið sitt vænti ég.
Kveðja úr sveitinni.
Mikið hafa fiskagreyjin verið fegnir að komast í búrið sitt vænti ég.
Kveðja úr sveitinni.
Ég er ótrúlega upptekinn. í Vinnu og námi. Ég segi nú að ég ætli að vera duglegur þegar um róast. Reynslan segir mér hinsvegar að ég verði ekkert voðalega duglegur.
Kemur í ljós.
Sendu inn athugasemd
Kemur í ljós.
<< Heim
Subscribe to Posts [Atom]

