17. september 2008
Fiskabúrið komið upp
Þá er maður búinn að koma fiskabúrinu fyrir og búinn að setja vatn í það, ekki þó allveg fullt. Ég held ég hafi sett svona 70% í það þar af 50l af gamla vatninu. Það gekk frekar illa að koma vatninu í búrið, ég gat ekki með nokkru móti losað af krönunum í íbúðinni, mig sárvantaði töng. Klukkan var orðin markt svo ég gat ekki beint farið að banka uppá hjá fólki og fá töng. Ég gramsaði í kössunum og fann hnetubrjót og notaði hana á kranana og losaði af til að koma slöngutenginu á.
16. september 2008
Fiskar, fiskabúrsskápur og aul
Ég er búinn að flytja fiskana og tilheyrandi suður. Það tekur tíma að koma þessu öllu upp svo gott sé og finnst mér best að þetta sé gert almennilega. Fiskarnir voru fluttir í 50 l plastkassa. Í gær fór ég strax eftir vinnu og sótti skáp sem ég var búinn að panta hjá Trítlu. Þegar ég kem síðan heim voru allavega 6 fiskar dauðir, ég veit ekki nákvæmlega hvaða fiskar þetta voru ég sé það bara þegar hinir komast í búrið. Svo setti ég skápinn saman í gærkvöldi, og vonandi kemur þetta allt upp í kvöld.
Síðan ég flutti á Selfoss hef ég gengið í vinnuna. Ég ætla að erindast í hádeginu svo ég fór á bílnum í dag. Ég kom við í bakraríinu til að fá mér morgunhressingu sem er ekki frásögufærandi. Ég gekk svo í vinnuna og skildi bílinn eftir við makaríið og í bílnum voru svo lyklarnir mínuir. Þetta er að ég held fyrsta aulið mitt eftir að ég kom á Selfoss.

11. september 2008
Fyrsta baðið á Selfossi
8. september 2008
Zelsiuz
Það er hér með gert kunnugt að ég hef tekið við starfi umsjónarmanns félagsmiðstöðvarinnar Zelsiuz á Selfossi. Ég hóf störf í morgun. Ég bý um þessar mundir í sumarbústað þar til ég tek við íbúð í leigu síaðr í vikunni. Við fjölskyldan mættum á svæðið og skoðuðum íbúðir, fundum eina mjög áhugaverða og festum okkur hana. Íbúðin er í göngufæri frá vinnunni minni.
Fjölskyldan fór svo vestur í dag og kemur svo þegar fram líða stundir eða þegar búið er að ganga frá ýmsum málum.
Fjölskyldan fór svo vestur í dag og kemur svo þegar fram líða stundir eða þegar búið er að ganga frá ýmsum málum.
1. september 2008
Ég er ekki með hellur
Subscribe to Posts [Atom]