2. mars 2009

 

Af gullmolum og snjógöngum

Þegar við feðgar vorum að fara í vinnurnar okkar í morgun og þá átt þetta samtal sér stað:

Bergþór: Pabbi þú ert gullmolinn minn.
Unnar: Og þú ert gullmolinn minn.
Bergþór: Ég er stór.
Unnar: Já og ertu að stækka meira. Ég er líka stór.
Bergþór: Já og ég líka.

Ég er að upplifa sunnlennskan vetur og það er bara enginn snjór. Þá fór ég að rifja upp atvik frá barnæsku minni. Þannig var að einn veturinn var allt á kafi í snó og það þurfti að moka sig út að morgni og inn að kvöldi. Götur á Ísafirði voru svo lokaðar svo dögum skipti.
Við krakkarnir í götunni ætluðum því að grafa göng út alla götuna og selja aðgang að þeim. Við hófumst handa og grófum 3 metra, við gátum ekki selt aðgang í það.

Flokkar:


Athugasemdir: Sendu inn athugasemd





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Subscribe to Posts [Atom]