1. mars 2009

 

já já

Vega fjölda áskoranna aðdáanda minna hef ég ákveðið að reyna að byrja að blogga aftur, ég lofa svosem engu en ætla að reyna. Það er auðvitað hellingur búinn að gerast síðan ég bloggaði síðast og spurning hvar maður ætti að byrja. Sumt er auðvitað orðið löngu úrelt og annað orðið almenn þekking.

Það markverðasta er auðvitað að strákurinn minn er orðinn 3 ára. Hann verður fullorðnari með hverrjum deginum, farinn að rökræða, rífast og grínast ég veit ekki hvað og hvað. Hann er eins og ég segi alltaf við hann litli gullmolinn minn og hann bara stækkar.

En það gengur allt ágætlega í vinnunni, þetta er auðvitað mikið meiri vinna heldur en ég bjóst við í mörg horn að líta, ekki að ég sé að kvarta, þetta er auðvitað bara gaman.

Ég hef auðvitað komist í kynni við nýtt fólk með því að flytja og eignast góða vini.

Eins og ég var líklegur til að gera kom ég mér í leikfélagið þó ég hefði ekki mikinn tíma til að sinna því en ég sá um leikskránna, þó ekki að brjóta hana því það kann ég ekki, heldur hugmyndavinnu og efnisöflun. En ég fór svo að sjá sýninguna með Bergþóri og fannst okkur feðgum það æði.

Ég hef alltaf talað um fiskabúrið, en nú á ég 4 fiskabúr, 3 uppsett. Ég er með 325 l búrið sem er svona aðal ef svo mætti að orði komast, lítið búr með gullfiski á baðinu, 8 l plexí búr með neon tetrum í vinnunni og svo eitt 225 l óuppsett sem mér áskotnaðist úr húsi sem brann. Auðvitða leiðinlegt að fá búir á þennan hátt. Ég er búinn að þrífa það allt og ætti það að vera sót og öskulaust núna. Ég hef ekki komið mér í að fara að koma dælunni í lag enn.

Ég á eftir að uppfæra helling á síðunni sem ég ætla að gera jafnt og þétt en ég læt þetta duga í bili.

Flokkar:


Athugasemdir: Sendu inn athugasemd





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Subscribe to Posts [Atom]