mánudagur, 23. mars 2009

 

Kaffisull, sjálfstyrkingarnámskeið, íþróttaálfur

Ég hef nú ekki verið allveg eins duglegur að blogga og ég var að vona, það verður hinsvegar að hafa sinn gang. Við feðgarnir fórum suður til Reykjavíkur í síðustu viku og fékk Sólrún far með okkur. Sólrún fór með mig í dýrabúð sem ég hef ekki farið í áður og ég keypti þar 2 fiska, Yellow lab. Eftir það fórum við í Góða hirðirinn og við feðgar fundum tau slöngu sem vakti mikla kátínu hjá þeim litla. Eftir þetta skiluðum við Sólrúnu og fórum og tókum bensín, ég fór inn að borga og kom færandi hendi með kaffi og ávaxtasafa. Ég gat ekki drukkið kaffið strax því það var svo rosalega heitt að ég gat ekki með nokkru móti drukkið það. Sama vandamál var þarna og er oftast þegar ég kaupi mér kaffi to go, að lokið passaði ekki. Ég veit ekki hvernig það gerðist en ég sullaði öllum bollanum í farþegasætið, þá hafði ég ekki tekið nema tvo sopa. -aul

Á fimmtudaginn fór síðan í gang sjálfstyrkingarnámskið sem við Sólrún sjáum um fyrir Zelsiuz. Fyrsti tíminn gekk rosalega vel og ég er rosalega stoltur af okkur.

Á laugardaginn fór svo fjölskyldan í Krepputorgið og hitti íþróttaálfinn. Það var allveg ágætt. Þetta hefði þó mátt skipuleggja betur með því til dæmis að hækka undir íþróttaálfinn en hann var í sömu hæð og allir aðrir svo hann sást mjög illa.

Flokkar: , ,


Athugasemdir:
Var ekki nóg að linka á mig bara einu sinni? En já takk fyrir farið. Og ég veit um engan sem lendir í jafn miklum vandræðum með þessi kaffilok og þú eða sem lætur þetta trufla sig jafn mikið. Þarftu ekki bara að fara að stofna grúppu á facebook um þetta? ;)
 
Held ég sleppi facebook grúppunni. Ég mundi eflaust ganga til liðs við slíka grúppu væri mér boðið.
Jú það hefði verið nóg að linka þig einusinni. Ég er hinsvegar soldið overkill alltaf.
 
Sæll Unnar
Varð hugsað til þín í dag þegar ég sá bloggið hjá Jensguð ;o)Gangi þér allt í haginn á nýjum stað.
bestu kveðjur
Sigurborg J.
 
Hæ Sigurborg. Gaman að "heyra" í þér. Ég kíkti á bloggið hans, gat ekki annað en skellt uppúr. Þetta segir bara að maður verur að passa hvað maður setur á netið, google er öflugt tæki.
 
Sendu inn athugasemd





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Subscribe to Posts [Atom]