sunnudagur, 29. mars 2009
Frændur syngja
Flokkar: myndband
mánudagur, 23. mars 2009
Kaffisull, sjálfstyrkingarnámskeið, íþróttaálfur
Ég hef nú ekki verið allveg eins duglegur að blogga og ég var að vona, það verður hinsvegar að hafa sinn gang. Við feðgarnir fórum suður til Reykjavíkur í síðustu viku og fékk Sólrún far með okkur. Sólrún fór með mig í dýrabúð sem ég hef ekki farið í áður og ég keypti þar 2 fiska, Yellow lab. Eftir það fórum við í Góða hirðirinn og við feðgar fundum tau slöngu sem vakti mikla kátínu hjá þeim litla. Eftir þetta skiluðum við Sólrúnu og fórum og tókum bensín, ég fór inn að borga og kom færandi hendi með kaffi og ávaxtasafa. Ég gat ekki drukkið kaffið strax því það var svo rosalega heitt að ég gat ekki með nokkru móti drukkið það. Sama vandamál var þarna og er oftast þegar ég kaupi mér kaffi to go, að lokið passaði ekki. Ég veit ekki hvernig það gerðist en ég sullaði öllum bollanum í farþegasætið, þá hafði ég ekki tekið nema tvo sopa. -aulÁ fimmtudaginn fór síðan í gang sjálfstyrkingarnámskið sem við Sólrún sjáum um fyrir Zelsiuz. Fyrsti tíminn gekk rosalega vel og ég er rosalega stoltur af okkur.
Á laugardaginn fór svo fjölskyldan í Krepputorgið og hitti íþróttaálfinn. Það var allveg ágætt. Þetta hefði þó mátt skipuleggja betur með því til dæmis að hækka undir íþróttaálfinn en hann var í sömu hæð og allir aðrir svo hann sást mjög illa.
mánudagur, 16. mars 2009
Dekkið, veikindin, sjálfstyrkingarnámskeið
Ég fór með dekkið í viðgerð núna á dögunum. Það kom í ljós að dekkið var bara vindlaust en ekki sprungið. Ég gat ekki einusinni sprengt dekkið almennilega fyrst ég var að þessu á annað borð. -Aul
Ég er búinn að vera veikur í soldið langan tíma þetta er 4h veikindi (Hiti, hor, hálsbólga og hósti) auk eyrnabólgu. Ég er búinn að vera svona í fjórar vikur og orðinn leiður á þessu. Fer til læknis á morgun út af þessu.
Svo er ég að fara að halda sjálfstyrkingarnámskeið í félagsmiðstöðinni ásamt Sólrúnu. Það verður geggjað gaman.

föstudagur, 13. mars 2009
Nebbi
miðvikudagur, 4. mars 2009
Aul vegna varaþurrks
Ég er með varaþurrk, það er búið að vera skítakuldi og ég kvefaður og markt spilað inní sem getur valdið þessu. Ég hef vegna þessa verið að nota varasalva í dós Lip medex nánar tiltekið. Ég var rétt í þessu að stinga fingrinum ofaní dósina og mjör snöggt tók ég hann upp aftur og bar að vörum mér. Var þá varasalvinn eins þunnur og matarolía, eða svo gott sem. Dósin hafði staðið við útblásturinn frá virtunni á tölvunni minni. -Aul
Annar dagurinn í röð...
...sem ég fæ mig ekki til að skipta um dekkið. Þetta eru samverkandi þættir þess að eiga tvo bíla og að það er skelfilega kalt úti.
Flokkar: blogg
þriðjudagur, 3. mars 2009
Sprungið

Ég sá í morgun að það var sprungið dekk á bílnum hjá mér. Spurning hvort það hafi verið ástæðan fyrir útaf keyrslunni í gær. Ég kíkti reyndar á þetta í gærkvöld en sá ekkert, enda er ég mjög náttblindur. Vegurinn var að auki eins og þvottabretti.
mánudagur, 2. mars 2009
Tónlist
On the road again
Just can't wait to get on the road again
The life I love is makin' music with my friends
And I can't wait to get on the road again
On the road again
Goin' places that I've never been
Seein' things that I may never see again,
And I can't wait to get on the road again...
Ég skrapp áðan á Laugarvatn til Sighvats vinnufélaga og skólabróður til að fá lánaða hjá honum bók sem mig vantar fyrir skólan. Bókin er til á bókasafninu á Selfossi en þó bara eitt eintak en það er í útleigu. En já ég fór núna eftir kvöldmat og ætlaði að sækja bókina, svo var ég á leið í vinnu. Á leiðinni til baka tókst mér að renna ill í hálku og beint útaf. Ég lenti fyrir neðan veg. Ég er ómeiddur og ekkert sást á bílnum. Ég hringdi í Sighvat og spurðu hvort hann gæti kippt í mig, hann kom skoðaði aðstæður og kallaði á björgunarsveitina sem kom og dró mig upp. Það gekk eins og best er á kosið. Sighvatur og Sólveig eru algjörar heturju að hafa komið fljótt á vettvang og Björgunarsveitin Ingunn fyrir að draga mig upp.
Það keyrðu um 10 bílar framhjá og allir stoppuðu.
Ég fékk bókina en ég komst ekki til vinnu í kvöld.

Myndbönd
Hér koma inn myndbönd sem ég hef sett á netið undanfarið.
Bergþór og teinarnir
Bergþór að hjóla
Fiskabúrið
Bergþór og teinarnir
Bergþór að hjóla
Fiskabúrið
Flokkar: myndband
Af gullmolum og snjógöngum
Þegar við feðgar vorum að fara í vinnurnar okkar í morgun og þá átt þetta samtal sér stað:
Bergþór: Pabbi þú ert gullmolinn minn.
Unnar: Og þú ert gullmolinn minn.
Bergþór: Ég er stór.
Unnar: Já og ertu að stækka meira. Ég er líka stór.
Bergþór: Já og ég líka.
Ég er að upplifa sunnlennskan vetur og það er bara enginn snjór. Þá fór ég að rifja upp atvik frá barnæsku minni. Þannig var að einn veturinn var allt á kafi í snó og það þurfti að moka sig út að morgni og inn að kvöldi. Götur á Ísafirði voru svo lokaðar svo dögum skipti.
Við krakkarnir í götunni ætluðum því að grafa göng út alla götuna og selja aðgang að þeim. Við hófumst handa og grófum 3 metra, við gátum ekki selt aðgang í það.

sunnudagur, 1. mars 2009
já já
Vega fjölda áskoranna aðdáanda minna hef ég ákveðið að reyna að byrja að blogga aftur, ég lofa svosem engu en ætla að reyna. Það er auðvitað hellingur búinn að gerast síðan ég bloggaði síðast og spurning hvar maður ætti að byrja. Sumt er auðvitað orðið löngu úrelt og annað orðið almenn þekking.
Það markverðasta er auðvitað að strákurinn minn er orðinn 3 ára. Hann verður fullorðnari með hverrjum deginum, farinn að rökræða, rífast og grínast ég veit ekki hvað og hvað. Hann er eins og ég segi alltaf við hann litli gullmolinn minn og hann bara stækkar.
En það gengur allt ágætlega í vinnunni, þetta er auðvitað mikið meiri vinna heldur en ég bjóst við í mörg horn að líta, ekki að ég sé að kvarta, þetta er auðvitað bara gaman.
Ég hef auðvitað komist í kynni við nýtt fólk með því að flytja og eignast góða vini.
Eins og ég var líklegur til að gera kom ég mér í leikfélagið þó ég hefði ekki mikinn tíma til að sinna því en ég sá um leikskránna, þó ekki að brjóta hana því það kann ég ekki, heldur hugmyndavinnu og efnisöflun. En ég fór svo að sjá sýninguna með Bergþóri og fannst okkur feðgum það æði.
Ég hef alltaf talað um fiskabúrið, en nú á ég 4 fiskabúr, 3 uppsett. Ég er með 325 l búrið sem er svona aðal ef svo mætti að orði komast, lítið búr með gullfiski á baðinu, 8 l plexí búr með neon tetrum í vinnunni og svo eitt 225 l óuppsett sem mér áskotnaðist úr húsi sem brann. Auðvitða leiðinlegt að fá búir á þennan hátt. Ég er búinn að þrífa það allt og ætti það að vera sót og öskulaust núna. Ég hef ekki komið mér í að fara að koma dælunni í lag enn.
Ég á eftir að uppfæra helling á síðunni sem ég ætla að gera jafnt og þétt en ég læt þetta duga í bili.

miðvikudagur, 17. september 2008
Fiskabúrið komið upp
Þá er maður búinn að koma fiskabúrinu fyrir og búinn að setja vatn í það, ekki þó allveg fullt. Ég held ég hafi sett svona 70% í það þar af 50l af gamla vatninu. Það gekk frekar illa að koma vatninu í búrið, ég gat ekki með nokkru móti losað af krönunum í íbúðinni, mig sárvantaði töng. Klukkan var orðin markt svo ég gat ekki beint farið að banka uppá hjá fólki og fá töng. Ég gramsaði í kössunum og fann hnetubrjót og notaði hana á kranana og losaði af til að koma slöngutenginu á.
þriðjudagur, 16. september 2008
Fiskar, fiskabúrsskápur og aul
Ég er búinn að flytja fiskana og tilheyrandi suður. Það tekur tíma að koma þessu öllu upp svo gott sé og finnst mér best að þetta sé gert almennilega. Fiskarnir voru fluttir í 50 l plastkassa. Í gær fór ég strax eftir vinnu og sótti skáp sem ég var búinn að panta hjá Trítlu. Þegar ég kem síðan heim voru allavega 6 fiskar dauðir, ég veit ekki nákvæmlega hvaða fiskar þetta voru ég sé það bara þegar hinir komast í búrið. Svo setti ég skápinn saman í gærkvöldi, og vonandi kemur þetta allt upp í kvöld.
Síðan ég flutti á Selfoss hef ég gengið í vinnuna. Ég ætla að erindast í hádeginu svo ég fór á bílnum í dag. Ég kom við í bakraríinu til að fá mér morgunhressingu sem er ekki frásögufærandi. Ég gekk svo í vinnuna og skildi bílinn eftir við makaríið og í bílnum voru svo lyklarnir mínuir. Þetta er að ég held fyrsta aulið mitt eftir að ég kom á Selfoss.

fimmtudagur, 11. september 2008
Fyrsta baðið á Selfossi
mánudagur, 8. september 2008
Zelsiuz
Það er hér með gert kunnugt að ég hef tekið við starfi umsjónarmanns félagsmiðstöðvarinnar Zelsiuz á Selfossi. Ég hóf störf í morgun. Ég bý um þessar mundir í sumarbústað þar til ég tek við íbúð í leigu síaðr í vikunni. Við fjölskyldan mættum á svæðið og skoðuðum íbúðir, fundum eina mjög áhugaverða og festum okkur hana. Íbúðin er í göngufæri frá vinnunni minni.
Fjölskyldan fór svo vestur í dag og kemur svo þegar fram líða stundir eða þegar búið er að ganga frá ýmsum málum.
Fjölskyldan fór svo vestur í dag og kemur svo þegar fram líða stundir eða þegar búið er að ganga frá ýmsum málum.
mánudagur, 1. september 2008
Ég er ekki með hellur
föstudagur, 29. ágúst 2008
Reykjavík
Ég er staddur í Reykjavík kom suður seint í gærkvöldi og er all einn í íbúð í Kópavogi og eiginlega leiðist svolítið. Ég skrapp í viðtal í morgun og fannst mér bara hafa gengið þokkalega og er bara spenntur fyrir þessu. Það verður bara að sjá hvað setur í þeim efnum.
Ég fer svo í skólan á morgun og svo bara beina leið heim... Þá er bara að vona að maður verði ekki allveg útkeyrður í akstrinum.
Ég fer svo í skólan á morgun og svo bara beina leið heim... Þá er bara að vona að maður verði ekki allveg útkeyrður í akstrinum.
Flokkar: blogg
mánudagur, 25. ágúst 2008
Skítt með kerfið! í sturtunni
sunnudagur, 17. ágúst 2008
Komið í blöðin

Þetta er víst komið í blöðin svo ég get allveg eins sett það hingað. Fréttina er að finna í Dagsrká, fréttblaði Suðurlands þann 14. ágúst sl.
Subscribe to Posts [Atom]