Grein Jórunnar,www.jorunn.blog.is/blog/jorunn/

Nú er allt sett í innheimtuþjónustur. Ef gamla fólkið gleymir að borga fær það hótunarbréf. Gamla fólkið skilur þetta ekki vel og verður kvíðið. Það tekur þetta jafnvel perónulega. Nokkur bréf hefur hún mamma mín fengið og það var svo komið að hún réð ekkert við svona bréf. Þetta fór að koma fyrir eftir að minni hennar varð svona slæmt. Einhverju sinni hafði hún týnt bréfi sem hún hefur eflaust ætlað að sýna mér. Hún fékk hótunarbréf sem hún betur fer ekki sá. Ég fór  bara og borgaði. En í dag fékk hún bréf frá innheimtuþjónustu upp á einar litlar 1600 krónur og það var líknarfélag sem hún styrkir sem sendi það. Ég tek það fram að bréfið kom frá innheimtuþjónustu banka.Kanské ekki svo alvarlegt en það fauk í mig. Ég hringdi strax og lét vita af því að mamma mín þjáðist af alzheimer og væri ekki lengur heima. Það væri  kominn tími til að hún hætti að styrkja þá. Ágæt kona svaraði mér og tók mömmu af skrá. Svo er ekki meir um þetta. Ekki nema það að þetta er allt svo ópersónulegt og það tekur enginn tillit til aldurs fólks sem fær svona bréf. Það er ekki víst um að þetta fólk sé fært um að skilja þessi bréf. Frændi minn einn gamall sem alla æfina hafði staðið í skylum fékk þannig bréf og nærri því hjartaáfall honum varð svo mikið um. Hann var 85 ára. 

 

veffangarinn