Veiði- og hundalög
Myndasiðan- photos
Myndbönd-Video
Þetta er eigandinn
Tengingar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Senda boð á Villa

 Tel: +354-555-1403
Fax: +354-566-8770
GSM: +354-845-3090
 

 

 

               

Ég heiti Vilhjálmur Ólafsson og er fæddur á Ísafirði þann 25. október árið 1960.   Ég er í sambúð með Birnu J. Ólafsdóttur lyfjafræðingi frá Patreksfirði.  Við eigum tvö börn, þau Arnór og Helgu Maríu.

Ég er löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og starfa við báta- og kvótasölu hjá Aflmark ehf.  Ég hef unnið við ýmis sölustörf tengd sjávarútvegi undanfarin ár. 
Ég er með farmannspróf frá Stýrimannaskólanum í Rvk. og er auk þess menntaður frá Tækniskóla Íslands.  Lauk þar úrgerðartækni og iðnfræðinámi.

Mitt helsta áhugamál í dag er að koma dóttur minni á skíði þegar opið er í fjallinu.  Hún er nokkuð efnileg stúlkan og ég hef afar gaman af því að snúast í kringum þetta sport hennar.

Ég er mikill áhugamaður um hundasport, þjálfun hunda og veiðar með þeim.
Ég hef átt 5 fuglaveiðihunda og á sem stendur tvo enska seta.

Þarna er Gassi að kenna Hektori (3ja mánaða) hvernig á að sýna prófílinn. Hvað ungur ungur nemur, gamall temur.

      

Hrímþoku Hektor Bergmann og Eros bróðir 11 mánaða.  Hektor heiðrar þennan flotta stand með glæsibrag.

                                                                   Til baka á forsíðu