Veiði- og hundalög
Myndasiðan- photos
Myndbönd-Video
Þetta er eigandinn
Tengingar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Senda boð á Villa

 Tel: +354-555-1403
Fax: +354-566-8770
GSM: +354-845-3090
 

 

 

Hundarnir mínir.

Enski setinn er mér nokkuð hugleikinn en ég er þó ekkert á móti öðrum hundategundum.
Ég átti eina enska settertík sem ég flutti inn frá Frakklandi. 
Ég kallaði hana Mónu en hún hét Sterne II du Petit Monastere.
Hún var rönken mynduð og var HD FRÍ.
Ég kvaddi hana þann 7. október 2007.

 

 

 

       

 
 

 

 

 

 

 


Veiðiprófsárangur - Fieldtrials results

Ættartré Mónu - Petigree

Ég á hund sem ég flutti inn frá Noregi.  Hann heitir Berkjenstöllen's Robur.
Þessi hundur er að koma vel inn og hefur þegar þetta er skrifað farið í 6 veiðipróf
og náð 3x1UK og 2x2UK.  Í tvö skiptin var hann valinn besti hundur prófs.
Þetta er mjög góður árangur með innfluttan hvolp.
Þessi hundur er rönken myndaður og er HD frír eins og all flestir af hans ættingjum.
Ég á einnig hvolp undan þessum tveimur hundum.

Veiðiprófsárangur - Fieldtrials results

Ættartafla Robur -  Petigree

Kaldalóns Ringó heitir unghundurinn og er óskrifað blað enn.

Hann er HD frír.
Hann var stæsti hundurinn í 7 hunda goti undan Monu og Robur.  Hann virðist ætla að vera með mikið veiðidræf og er alveg óháður makker, er forustuhundur að eðlisfari og virðist ætla að vera nokkuð auðþjálfaður.
Ein systir hans er í Noregi og hefur fengið góða niðurstöðu í prófum þar.
Hún tók þátt í norska unghunda Derbýinu árið 2008 og var ein af 7 hundum sem fengu 1. einkunn í 137 hunda hópi sem startaði fyrsta daginn.
Hún varð svo númer 2 í norska unghunda grand prix mótinu.

Önnur systir, Kaldalóns Skutla hefur fengið tvisvar 1. einkunn í UF í veiðiprófi

Útlitslega séð er hann að þroskast nokkuð vel.  Litarfarið er þannig að það mun ekki skemma fyrir honum á sýningum.  Hann er ekki með neinn blett á skrokki eða haus, aðeins eyrun eru brún.  Fallegt höfuðlag hefur hann frá móður.  Hann verður í meðallagi stór en vinklun á aftan mætti vera betri.  Einnig finnst mér skottstöða hans vera í lægri kantinum.

Veiðiprófsárangur Ringó

                                                                                        Til baka á forsíðu