|
30. september 2009
Vandamál með heimasíðuna.
Ég bið forláts á því að heimasíðan
hefur verið lítið uppfærð að undanförnu
Þetta stafar af tölvuvandræðum sem sér ekki fyrir endann á.
Ég stefni á að setja nýja síðu í
loftið fljótlega.
20.
ágúst 2009
Sumardvalinn að baki..
Við erum að vakna af sumardvalanum
og í dag er 1. í gæs. Einhvern veginn var lítill spenningur
fyrir því að fara á fjall og reyna við heiðargæsina á þessum
fyrstu dögum. Það er þó ekki langt í fyrstu ferðina hjá mér
en það er á dagskránni að fara norður í Mývatnssveit með
honum Guðjóni félaga mínum og gera heiðarlega veiðitilraun
þar.
Þá er meiningin að koma við á hreindýraslóð líka og vonandi
gengur Gauja vel að ná í kvíguna sína.
Við erum með landsfrægan leiðsögumann, Skúla Sveinsson
borgarstjóra með okkur og væntanlega munum við lenda í
einhverjum ævintýrum með hann í ökumannssætinu.
Ég er byrjaður að æfa hundana á heiðinni og hef verið að
finna töluvert af fugli. Feðgarnir Ringó og Robur hafa
verið að sýna mér fína vinnu ef frá er talið að Ringó hætti
allt í einu að vilja sækja fyrir mig hvað sem rausaði og
tautaði.
Ég þurfti að fara á byrjunarreit
með hann og er nú kominn vel áleiðis aftur. Hann er
farinn að sækja dummyið innan dyra og einnig ef ég leyfi
honum að leika við mig aðeins og hendi því út. Þá
sækir hann og kemur með það inn. Þetta verður komið
fyrir rjúpu.
Það hefur gengið gríðarlega vel í
fóðursölunni og ég hef haldið sjó þrátt fyrir að þjóðfélagið
okkar sé í kalda kolum. Enn erum við að vinna á því að
sænska krónan er veikari en evran en hækkun evru hefur hins
vegar mikil áhrif á fragtverðið.
Ég hef verið að selja nokkra smábáta í sumar en
kvótamiðlunin hefur verið að ganga frekar illa að
undanförnu.
Ég geri ekki ráð fyrir að fara í veiðipróf í haust.
Það verður einhverstaðar að skera niður.
20.
júní 2009
Saga með 1. einkunn á
sýningu.
Ég var að koma heim frá
velheppnaðri skíðaæfingaferð til Juvass í Jötunheimum í
Noregi.
Ég og Helga vorum þar í æfingabúðum og náðum 7 frábærum
dögum við bestu hugsanlegar aðstæður.
Að loknum æfingabúðunum kom ég við hjá Per Arne Watle og
fékk þær fréttir að hann fór með allar þrjár tíkurnar sínar
á sýningu um daginn. Tvær fengu 2. einkunn en Saga
fékk 1. einkunn.
Það er búið að mynda hana og hún er
hrein á mjöðm. Það er orðið nokkuð ljóst að það verður
ræktað undan þessari tík. Per er í þeirri stöðu að
geta valið nánast hvaða hund sem er á þessa tík. Hvort
sem sá hundur er í Noregi eða annarstaðar.
Hann var með einn hund í huga en
ætlar að láta næsta vetur líða þar til að hann parar.
Ég á fyrsta val úr því goti ef ég kæri mig um.
Þá eru Rinó, Byr, Saga og Skutla
hrein á mjöðm.
15. maí 2009
Allra síðasta veiðipróf vorsins.
Of seint.
Seinni dagur veiðiprófsins var arfa
slakur hjá Robur. Hann fékk reyndar 3. einkunn en það
var óverðskuldað.
Afkvæmin hans fengu bæði 2. einkunn og voru að vinna
ágætlega miðað við aðstæður.
Já aðstæður voru skelfilegar þessa helgi. Robur fór
upp á hæð, skimaði eftir fugli og renndi í stand á ótrúlega
löngu færi. Hann var ekki að leita með nefinu heldur notaði
bara augun og allt leitarmunstur var ónýtt.

Gunnar og Stígur gerðu góða hluti báða
dagana. Mynd V.Ó.
Ég vil helst gleyma þessum prófum sem fyrst og er á góðri
leið með það.

Aðstæður sem eru þekktar í síðustu
prófum vors. Fuglinn sést á löngu færi. Mynd
V.Ó.
All oft hef ég rætt að það ætti ekki að halda próf á þessum
tíma árs en þess í stað hafa þetta þéttar í mars og byrjun
apríl.
Ágætur norskur dómari þessa prófs sá ástæðu til að kveða sér
hljóðs í próflok og setja ofan í við okkur að vera að halda
próf á þessum tíma.
Eitt er víst að þetta geri ég ekki aftur.
09. maí 2009
Síðasta veiðipróf vorsins.
Í dag tók ég þátt í veiðiprófi með
Robur. Dómari dagsins kom frá Noregi og heitir hann Stein
Helge Østerli.
Þessi dómari var að gera ágætan dag og ekki hægt að setja út
á mikið í hans dómi.
Hann var frekar strangur fannst mér. Gaf enga sénsa.

Robur í pásu. Dómari dagsins í
baksýn. Mynd VÓ.
Robur var ekki að sýna mér góða vinnu í dag. Var með
opna leitarvinnu í hæðóttu landi og nýtti ekki sín færi nógu
vel.
Í hans fyrsta sleppi var hann augnabliki á eftir makker í
stand og fékk þar einungis heiðrun en missti af standi.
Í öðru sleppi var hann týndur í 10 mínútur eða nánast allt
sleppið. Hann var á standi ofan í holu og ég var ca.
10 metrum frá honum
þegar ég snéri við í hina áttina. Svo kom makker og
flössaði upp. Það þoldi Robur ekki eftir langan tíma á
standi og fylgdi á eftir á meðan flössarinn sat eftir.
Þetta var svakalega svekkjandi og óverðskuldað.
En á morgun er nýr dagur og vonandi gengur betur þá.
01. maí 2009
Talning rjúpna stendur
yfir.
Undanfarin ár hef ég reynt að
leggja mitt að mörkum til vöktunnar rjúpnastofnsins.
Ég hef gengið snið á Mosfellsheiði og haft mjög gaman af
þessari vinnu.
Að launum hef ég fengið að fylgjast með niðurstöðum þessara
rannsókna oft á undan öðrum veiðimönnum.
Í fyrstu voru þessi snið sem upp voru sett mjög krefjandi
verkefni en nú er búið að laga þetta mikið til og í gær var
þetta bara nokkuð létt fimm tíma ganga.
Svæðið sem við gengum í gær hefur
ekki verið rjúpnaríkt undanfarin ár en nú var þar
ásættanlegur fjöldi fugla að mínu mati.
Við tókum fjórir saman átta línur
með upphafspúnkta á veginum til Þingvalla og miðjupúnkta
inni í miðri Mosfellsheiði ofan við Gljúfrastein og svo
endapúnkt á veginum aftur með ca. þriggja kílómetra
millibili milli upphafs- og endapúnkts.
Þeir sem hefðu áhuga á að taka þátt
í þessu ættu að setja sig í samband við Ólaf K. Nílsen hjá
Náttúrufræðistofnun.
Hann er með tölvupóstfang
okn@ni.is.
Það vantar alltaf fleiri í þessar talningar.

Robur á standi á hænu í fyrra vor.
Mynd VÓ.
Ég lenti í uppákomu í gær sem olli
mér nokkurri furðu.
Við höfðum þetta þannig að ég skildi minn bíl eftir þar sem
ég mundi koma til baka og bíl verkefnisstjórans keyrði ég í
þann stað sem hann áformaði að koma í en ég að ganga úr.
Ég tíndi Ringó á leiðini til baka. Hann hefur
sennilega fundið fugl og gert einhverjar rósir í
framhaldinu. Það var eins og jörðin hefði gleypt hann.
Hann brá á það ráð að rekja slóðina mína í bílinn sem
verkefnisstjórinn var á og ég hafði skilið eftir á veginum
eftir að ég hafði keyrt hann í hans upphafspúnkt.
Flókið?
Þar beið hundurinn þegar verkefnisstjórinn kom í bílinn.
Þetta er í raun algjör snilld og sannar svo ekki verður um
villst að þessir hundar geta auðveldlega rakið slóð í viðbót
við annað sem þeim er ætlað að gera.

Fundvís hundur hann Ringó. Mynd V.Ó.
Þessi slóð var tenging við mig,
önnur af tveimur og hann tók hana en í ranga átt.
Hitt er auðvitað ekki gott að hundurinn skuli hafa tínt mér
en veiðiáhuginn sem er í botni í þessum hundi hefur borið
skynsemina ofurliði.
Utan þessa atviks þá áttum við skemmtilega kvöldstund þar
sem þjálfun hundanna fékk annan auka tilgang sem nýtist
okkur veiðimönnum vonandi öllum.
25. apríl 2009
Tillaga frá MÉR
samþykkt. Getur það verið?
Ég sendi um daginn tillögu til
stjórnar HRFÍ sem ég ætlað að flytja á aðalfundi HRFÍ.
Hún er á þessu skjali:
TVÍSMELLIÐ HÉR
Sem rökstuðning með þessu hafði ég þetta tilbúið.
Rökstuðningur.
Jafnvel stjórnmálamenn sem verða uppvísir af alvarlegu
athæfi eru ekki settir af sjálfkrafa.
Þeir ákveða það yfirleitt sjálfir hvort þeir fari frá á
meðan málið er til rannsóknar.
Ég undirritaður hef sjálfur orðið fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að vera kærður til siðanefndar.
Í því tilfelli sá siðanefnd ekki ástæðu til að dæma í
málinu og vísaði því frá.
En það liðu margir mánuðir frá því að ég var kærður til
siðanefndar þar til málið var tekið upp
og því vísað frá.
Á þeim tíma sem leið var æra mín stórsköðuð og mér
valdið óbætanlegu tjóni.
Ég var svo í anna tíma ásakaður um almennt lögbrot af
stjórn FHD og kærður til stjórnar HRFÍ sem
ályktaði um málið.
Ég rak þær ásakanir til föðurhúsana og held að þeir sem
komu að því máli munu um aldur og æfi skammast sín fyrir
þá aðkomu.
Ég hef sem sagt sjálfur persónulega reynslu af
dómgreindarleysi stjórnarmanna í deild innan HRFÍ
og því tel ég að þeim eigi ekki að felast það vald að
losa sig við óþæga félagsmenn á þennan hátt.
Ég var farinn að hlakka mikið til
að flytja þessa tillögu og sjá hvernig afdrif hennar yrðu í
atkvæðagreiðslu.
Ef hún hefði verið feld var ég tilbúinn með kæru til
siðanefndar. Ég hefði fundið upp á einhverju
skemmtilegu
til að setja á blað.
Þeirri kæru hefði fylgt þau auðmjúku tilmæli að nefndin væri
ekkert að flýta sér að afgreiða hana.
En stjórn HRFÍ tók af mér þessa ánægju og sendi mér
eftirfarandi bréf. TVÍSMELLIÐ
HÉR.
Ekki veit ég fyrir víst hvaðan
þessi óskapnaður kom inn í þessar starfsreglur.
En þetta skaðræðisvopn er nú úr
höndum þeirra manna sem ætluðu því vafasaman tilgang í sínu
starfi og félagið verður betra á eftir.
En það er annað sem veldur mér
hugarangri. Hvernig stendur á því að menn komast upp
með að koma svona óþverra inn í starfsreglur félagsins
gagnrínislaust? Hvernig stendur á því að enginn hefur
gagnrínt þetta fyrr í ferlinu?
18. apríl 2009
Kaldalóns Saga komin í
keppnisflokk.
Ég fékk símtal frá Noregi rétt í
þessu.
Það var ánægður hundaeigandi Per Arne Watle sem var á hinum
endanum.
Hann tók þátt í veiðiprófi í Geilo um helgina. Hann
náði 1. einkunn á tvær tíkur sem eru rétt sloppnar upp í
opinn flokk.
Per með Sögu. Mynd V.Ó.
Það var Dina og Saga sem hann var með í dag.
Umsögn dómara um Sögu var á þá leið að þar væri á ferðinni
hundur sem dómarinn mundi seint gleyma.
Lesa má frétt um þetta á þessari slóð.
http://www.nesk.no/
Þetta er gaman fyrir mig að heyra
og ástæða til að fagna þessu.
Þetta var mjög stórt próf og hér er
linkur á
prófhaldarann.
Það voru 7 hundar með 1.
einkunn í OF í þessu prófi á föstudegi, Saga og Dina
þar á meðal.
29. mars 2009
Myndir frá Ellaprófi.
Eins og frá var sagt í gær var
veðrið ekki gott framan af degi. Ég reyndi að taka
eitthvað af myndum en það fylltist allt af snjó og hrími
þegar verst lét.
Ég set hér inn nokkrar af þeim
bestu.
Það er
gott að eiga góða kápu á hundinn þegar svona viðrar.

Kristinn Einarsson og Pétur Alan
Guðmundsson rína út í sortann. Mynd V.Ó.

Frikki og Nói tilbúnir í hvað sem koma
skal. Mynd V.Ó.

Góður dómari dagsins, Egill Bergmann
nóterar hjá sér athugasemdir í sortanum. Mynd V.Ó.

Eiður Gísli og Byr í frumraun sinni í
veiðiprófi. Mynd V.Ó.

Í skjóli fyrir veðrum og vindum í
kaffipásu. Rjúpnabrekku Príma. Klárlega í
"Primera" sæti þennan dag. Mynd V.Ó.

Kristinn Einarsson og Eiður Gísli
eftir langan og erfiðan dag á heiðinni. Mynd V.Ó.
28. mars 2009
Núllað hjá öllum.
Náttúran sýndi okkur allar sýnar
verstu hliðar í dag þegar við gengum í Ellaprófinu. Slæmt
veður setti svip á prófið og alveg á mörkunum að hægt væri
að halda það sökum þess. Röksamur prófstjóri og dómari
tóku þó til þess ráð að færa prófið neðar í landinu og
uppskáru betra veður en enn var lítið um fugla. Því
miður.
Allir unghundarnir sem tóku þátt í
dag voru að sýna góða eða framúrskarandi leitarvinnu en því
miður tókst engum þeirra að sýna fuglavinnu sem er skilyrði
fyrir einkunn.
Ringó stóð sig vel og fékk fullt hús stiga fyrir alla þætti
sem eru dæmdir. 6 - 6 - 6 - 6 - 4 - 4 - 4.

Kaldalóns Skutla í dag. Sannalega mikil
skutla. Mynd VÓ.
27. mars 2009
Ellapróf á morgun.
Á morgun er fuglahundapróf sem
haldið er í minningu Erlends Jónssonar heitins.
Ég bar mikla virðingu fyrir Ella. Það gerðu reyndar
allir sem þekktu hann.
Hann var hvers manns hugljúfi, fróður en ekki síður
fróðleiksfús.
Hann var mjög viljugur að miðla þekkingu sinni til okkar
hinna og var það mjög lagið.
Menn hlustuðu þegar hann rétti vel úr sér og strauk sér um
skeggið grásprengt.

Erlendur Jónsson. Mynd VÓ.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að ganga með honum til
rjúpna eina helgi og mun aldrei
gleyma því hve áhugasamur og uppörvandi hann var þó að lítið
hefði veiðst hjá okkur þessa helgi.
Það kom fyrir að við værum ekki
sammála um leiðir að markmiðum. Hann var harður og
kænn
andstæðingur ef þannig bar undir. En hann var alltaf
sanngjarn og heiðarlegur.
Ég ætla að votta honum virðingu mína með því að ganga í
veiðiprófi helgað honum á morgun.

Ringó heiðrar pabba sinn á æfingu í
gær. Rjúpan sést lengst til hægri. Mynd VÓ.
07. mars 2009
Einstakur hálfbróðir.
Ég hef lengi gert mér ljósa grein
fyrir því hve frábæra genapúllíu ég er með að baki
Berkjenstöllens Robur.
Það er augljóst að þessi hundur er að gefa af sér góð
afkvæmi og ljóst að í kringum hann eru frábærir hundar.
Það er einnig orðið mér ljóst að hálfbróðir hans,
Berkjenstöllens Hi-Treff er einstakur hundur.

Berkjenstøllens
Hi-Treff í góðri sveiflu.
Hann var nú fyrir skömmu útnefndur fuglahundur ársins í
Noregi í 4. skipti.
Hann vann þennan titil árin 2003- 04 og 2005 og svo aftur
fyrir síðasta ár.
Í viðbót við þetta hefur hann fimm sinnum verið valinn ensk
setter ársins í Noregi.
Það hefur engin hundur afrekað annar en hann að vera
útnefndur hundur ársins í sinni tegund í fimm skipti.
Ég gratulera!
07. mars 2009
Ný heimasíða í loftið.
Nú er komin í loftið ný heimasíða klúbbs ensk settereigenda
á Íslandi.
Skipuð var nefnd valinkunnra manna til að vinna í málinu og
útkoman er bara nokkuð góð.
Sjá má árangurinn hér.
http://enskursetter.is/
23. febrúar 2009
Skutla með 1. einkunn
aftur.
Ég var staddur upp í skíðabrekkum Tindastóls þegar ég fékk
þær fréttir að Skutla hefði fengið sína aðra 1. einkunn í
veiðiprófi um síðustu helgi. Aðeins tveir unghundar fengu
einkunn þennan stormasama dag.

Kaldalóns Skutla öslar snjóinn kát í bragði.
Mynd Grétar.
Umsögnin var glæsileg og hún var
tillefnd unghundur dagsins í öðru prófinu í röð.
Til hamingju Þórður með glæsilegan árangur.
18. febrúar 2009
Ferð til Noregs.
Ég var að koma heim frá Noregi. Ég var þar í
æfingabúðum með 4 13 ára skíðakrakka úr hópi þeirra bestu á
landinu á sínum aldri. Við vorum í Ål sem er ekki langt frá
Gjelo. Við vorum saman með hópi frá Bærum skiklub.
Að loknum þessum æfingabúðum fórum við til Oslo og gisti ég
í tvær nætur hjá Per Arne Watle.

Per með Kaldalóns Sögu.
Það var virkilega gaman að koma
heim til Per og Sidsel konu hans. Þau búa í fallegu
timburhúsi í suðurhlíðinni í Lommedalen sem er vestan við
Oslo og ekki langt frá heimavelli Bærum skiklub.
Ég átti fróðlega samveru með þeim hjónum og naut þess að
fræðast um hunda, þjálfun þeirra og ræktunaráform.
Per áformað að fara með tíkina á próf næst þegar hún er
komin í opinn flokk.
Hann taldi að hún mundi án efa fá 1. einkunn á sýningu þarna
út.

Kaldalóns Sögu reyndist ekki erfitt að sækja
útlagða bráð.
Per bað fyrir góðar kveðjur til allra sem hann þekkir hér á
landi.

Saga tók á móti ókunnugum gestinum með varúð
en yfirvegun.
07. febrúar 2009
Sagði ég ekki?
Í dag fór fram unghundapróf á vegum HRFÍ. Meðal þátttakenda
var Kaldalóns Skutla.
Eins og sjá má í grein hér rétt fyrir neðan var ég búinn að
spá því að þessi tík mundi skora feitt í komandi
veiðiprófum.

Kaldalóns Skutla. Mynd Grétar.
Heeee, ég hafði rétt fyrir mér. 1.
einkunn í dag og besti.... nei, ekki besti... heldur
lang, lang, lang besti
hundur prófs eins og einn góður félagi fyrir norðan hefði
sagt frá því.
Þórður minn kæri vinur, til hamingju með árangurinn.
Þú átt fóðurpoka hjá okkur sem er verðlaun fyrir góðan
árangur.
Ég er búinn að fá nokkur SMS og hringingar í dag með
hamingjuóskum. Ég vil þakka kærlega fyrir það.
Því miður forfallaðist eigandi Kaldalóns Doppu í dag en það
hefði verið gaman ef hún hefði náð að skora líka.
03. febrúar 2009
Flottar myndir.
Ég fékk sendar nokkrar myndir í vikunni sem eru teknar af
áhugamanni um hunda.
Mér þótti tvær þeirra vera
sérstaklega áhugaverðar. Þarna er Kaldalóns Skutla að
arka snjóinn og það er ótrúlegt að sjá eljuna í þessu dýri.
En sjón er sögu ríkari.


Myndir: Grétar.
20. janúar 2009
Titlatog.
Nú er stjórn HRFÍ sennilega búin að berja í gegn nýjar
reglur fyrir grúbbu 7 og 8 hunda. Nú þurfa þeir ekki
lengur að mæta í veiðipróf og sanna að þeir geti veitt til
að fá titla.
Ég held bara því miður að við séum búin að missa af
lestinni. Þetta er búið og gert og FCI búið að hleypa
þessu í gegn. Þetta skelegga fólk sem á sýningahunda í
grúbbu 7 og 8 virðist vera búið að læra af mistökum sínum
frá því síðast og hefur í kyrrþey fengið þetta í gegn.
Enda eigum við ekki virkt fólk í stjórn HRFÍ sem hefur gætt
okkar hagsmuna.
Nú verðum við bara að bíta í það súra epli að hafa ekki
verið nógu dugleg að koma okkar fólki til áhrifa í stjórn
HRFÍ.
Rót alls þessa er e.t.v. að leita í því að forysta okkar
fuglahundamanna og retrivermanna hefur ekki haldið vöku
sinni. Ég hlýt að spyrja mig hvernig gat þetta farið
fram hjá þeim. Af hverju vissu menn ekki af þessu
fyrir en skaðinn var skeður?
Nú veit ég ekki með retrievermenn en ég er á því að of
mikill slagkraftur hafi farið í það hjá okkur
fuglahundamönnum að berjast innbyrðis og þetta, m.a. hefur
orðið útundan. Stjórn HRFÍ og þeir sem vildu koma
þessu í gegn sættu lagi á meðan við vorum uppteknir af því
að níða skóinn hver af öðrum.
Eitt stæsta og mikilvægasta verkefni nýs formanns FHD verður
að sameina kraftana aftur og búa til sterkt afl sem getur
heyrst á jákvæðan og uppbyggilegan hátt á vettvangi
hundaræktar á Íslandi. Rödd veiðihundamanna þarf að
heyrast hærra en hún hefur gert að undanförnu. Ekki
með upphrópunum heldur með rökum og skynsemi. Það er
ljóst.
Til þess að það sé unnt verður að fá nýtt fólk í forystu
FHD. Uppstokkun er lykilorðið þar eins og í Framsókn.
Ég vil sá þarna formann sem hefur vilja og hæfileika til að
hlusta á mismunandi skoðanir. Hann þarf að virða þær
og komast í gegnum árið án þess að vera með stóran hluta
félagsmanna upp á móti sér, bara vegna þess að þeir eru á
annari skoðun en stjórn eða einstakir meðlimir hennar.
Hann þarf líka að njóta virðingar allra félagsmanna og hafa
bein í nefi til að standa á sínu ef á þarf að halda, taka af
skarið af skynsemi og með þekkingu á málefninu og almennum
reglum félagsstarfs.
Er hann eða hún til?
Ég vil sjá vorsteh- og írsk settermenn fá fulla aðild að FHD
aftur sem fyrst. Ég vil sjá fuglahundamenn fara að
bera virðingu fyrir FHD aftur og líta á það sem sitt félag
eða klúbb.
Ég vil sjá FHD verða að yfirhatti yfir þær deildir sem eru
starfandi í grúbbu 7 og að stofnuð verði ræktunardeild eða
klúbbar um allar þær tegundir sem slagkraftur er til eins og
gerst hefur með vorsteh og ES. Pointer á alveg að geta
slíkt og vislan og gray gost líka.
FHD verði því ekki lengur ræktunardeild enda mun hún aldrei
fúnkera sem slík héðan af.
Hlutverk FHD verði á sviði fræðslu og gagnasöfnunnar og enn
fremur vettvangur til skoðanaskipta, endurskoðunar
reglugerða, mentunnar dómara og prófstjóra og yfirstjórnar
yfir veiðiprófum og deildartengdum uppákomum eins og
sýningum.
17. janúar 2009
Írska Ylfa seig?
Ég fór í góðan göngutúr með Guðjóni
Arinbjarnar á fimmtudag. Hann var með Ylfu og Þúfu
litlu í taumi. Ég var með Robur. Við vorum í
kjarri og hundarnir þurftu ekki að fara langt til að þeir
hyrfu okkur sjónum.
Það er skemmst frá því að segja að Ylfa tók Robur í
kennslustund og fann hvern fuglinn á fætur öðrum á maðan
Robur var í tómu tjóni. Það var hálf niðurlægjandi að
upplifa það að þessi tík sem er ný staðin upp úr
hvolpaeignum valtri svona yfir hund sem á að vera í sínu
besta formi.

Ylfa með ungviði á spena síðastliðið
sumar. Eftirtektarvert að þennan tíma sem ég fóstraði
hana í sumar sá ég hana
aldrei ygla sig út í kallhundana sem vildu skoða afkvæmin
hennar. Geðgóð og falleg veiðitík. Mynd V.Ó.
Robur kom þó til baka í restina og fann tvo fugla, reisti,
RIOS og eftirleit.
Það verður gaman að sjá hana Ylfu ef hún fer í einhver próf
í vor. Hún er í hörku formi og til alls líkleg.
13. janúar 2009
Góður gangur hjá Kaldalóns
hvolpum?
Í gærdag fór ég í göngutúr með
honum Þórði Kristjáns sem er með hana Kaldalóns Skutlu.
Ég veit ekki hvort að ég hef sagt ykkur frá því en ég hef
lengi haft áhyggjur af því hvort að þessi tík mundi plumma
sig hjá honum. Það er gaman að segja frá því að eftir
þennan göngutúr í gær eru þær áhyggjur mínar flognar út í
veður og vind.
Þessi fallega og netta tík var að sýna mér, bróður sínum og
faðir hvernig frábærir veiðihundar eiga að vinna í þeirri
náttúru sem við höfum upp á að bjóða. Þessi tík var
hreint út sagt stórkostleg í gær og alveg undursamlegt að
sjá hve vel Þórður hefur náð að hemja þennan villing sem hún
var þegar hann byrjaði að fara með hana í móann. Ég er
ekki í vafa um að þessi tík á eftir að skora feitt á
veiðiprófum hjá honum.

Kaldalóns Skutla. Mynd Tok.
Á meðan ég var að ganga með Þórði
fékk ég hringingu frá honum Eiði Gísla sem er með hann
Kaldalóns Byr. Hann var þá staddur upp á Mosfellsheiði
og var í skýjunum með hundinn sinn. Byr er búinn að
vera að sýna honum fanta góða vinnur og er orðinn klett
stöðugur í fugli. Ég er mjög ánægður með það sem Eiður Gísli
er að gera með þennan hund.
En það er annað verra að nú er ég
farinn að hafa áhyggjur af því að ég sitji eftir með þann
hvolp úr þessu goti sem verður seinastur til. Það
gengur hvorki né rekur með Ringó. En það þýðir ekkert
að gefast upp.
7. janúar 2009
Hvað verður nú?
Ég hef verið að velta fyrir mér
hver framtíð Fuglahunda deildar HRFÍ verður. Deildin
sú hefur gengið í gegnum nokkrar hremmingar og óhætt er að
segja að óeining hafi ríkt um suma í þessum félagsskap.
Á síðasta ári var stofnuð deild fyrir vorsteh og
þá voru eigendur þannig hunda reknir með harðri hendi
úr FHD.
Nú hefur sú frétt hvissast út að
formaður vorsteh deildarinnar hafi gengið úr stjórn vegna
ágreinings við einhverja þarna inni.
Mig langaði til að spurja þá sem best fylgist með í þessu
sporti. Gerið þið ráð fyrir að tekið verði við fyrverandi
formanni vorsteh deildar í FHD aftur og honum veitt
brautargengi þar inni?
Gerið þið ráð fyrir að þeir sem eru skráðir eigendur vorsteh
hunda og hafa ekki viljað starfa í þeirri deild en hafa þess
í stað verið að starfa í FHD verði kjörgengir á næsta
ársfundi FHD?
.jpg)
Móna og Robur bíða skipunar.
Mynd VÓ.
Mér er mikið í mun að komast að þessu þar sem þetta mun
skipta miklu varðandi það hvernig næsta stjórn FHD verður
skipuð.
Það er nokkuð ljóst að ef einn vorsteh eigandi sem ekki á
aðra tegund fuglahunds verður kjörgengur þá ættu allir
vorste eigendur að geta verið kjörgengir.
Ég hef verið að spyrjast fyrir um það í deildum innan HRFÍ
hvernig sé háttað uppfærslu á félagatali hjá þeim.
Það er ekki fordæmi fyrir því að menn séu teknir af listum
deildana að þeim forspurðum þó að þeir eigi ekki lengur þá
hundategund sem tilheyrir þeirri deild. Sú aðgerð að hreinsa
vorsteh menn af listanum fyrir síðasta ársfund er því e.t.v.
fordæmalaus og spurning hvort að hún hafi verið lögleg.
Ég mundi allavega skora á þá sem hafa áhuga á að starfa í
röðum FHD og hafa áhrif á t.d. stjórnarkjör að ganga úr
skugga um það hvort að þeir verði ekki kjörgengir á næsta
ársfundi.
Ég mun allavega eiga nokkuð erfitt með
að sætta mig við það að sumir eigi aðgang en aðrir ekki.
Hvernig er það með Írsk setter menn? Eiga þeir kjörgengi?
Já, ágætu félagar, ég er að skora á
ykkur að nýta þann rétt sem þið gætuð e.t.v. átt til að
velja góða menn til forystu.
Þeir menn eru til og munu vonandi bjóða sig fram til forystu
í vetur.
6. janúar 2009
Íþróttakonan mín.
Í dag var íþróttamaður Álftanes
útnefndur. Mér fannst svo sem ekki mikið til þess koma að
bæði dóttir mín Helga María og sambýliskona, Birna J.
Ólafsdóttir voru tilnefnd í þessu vali.

Þetta er í annað eða þriðja sinn
sem það gerist að þær eru tilnefndar.
Stolt mitt var þó óneitanlega vakið þegar konan kom heim með
stóran farandbikar og annan minni til eignar. Hún var
sem sagt kjörin íþróttamaður Álftanes og skákaði þar á meðal
annarra ekki ómerkari manni en Marel Baldvinssyni
atvinnumanni í tuðrusparki.
Til hamingju með þetta Birna mín.
24. desember 2008
Gleðilega hátíð.
Ég sendi öllum áhugamönnum um
veiðihunda innilegar jólakveðjur. Ég vil einnig þakka
fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða.
Ég hef verið að fá hringingar og
skeyti frá vinum og kunningjum að undanförnu. Ég fékk
hringingu frá Per Arne Watle í gær og bað hann fyrir góðar
kveðjur til allra fuglahundamanna á Íslandi.
Per hefur sagt mér að hann hafi miklar væntingar til
Kaldalóns Sögu á komandi árum. Hann var hálf klökkur
þegar hann þakkaði mér fyrir að hafa gert sér kleift að fá
þessa tík til Noregs. Hann minnti mig á að ef ég vildi þá
mundi hann verða mér innan handar með að útvega gott
ræktunardýr þegar ég þyrfti á því að halda næst.

Kaldalóns Ringó í pásu. Mynd VÓ.
Ekki alls fyrir löngu fékk ég skeyti frá Marina Bengtsson
sem á enska setann Uno Du Mont Lievain sem vann
heimsmeistaramótið í Króatíu í haust. Hún hafði verið
að gúgla á netinu og fundið umfjöllun um hundinn hennar á
síðunni minni. Hún sendi mér skeyti og spurðist fyrir
um mig og mína hunda. Síðan skiptumst við á skeytum og
í morgun sendi hún mér link sem mig langar til að deila með
ykkur. Þarna má sjá hvernig sannir veiðimenn veiða með
flottum og vel þjálfuðum veiðihundum. Það er hundaþjálfarinn
Jonas Sandberg sem er að veiða þarna með sjónvarpsmanni. Þetta
eru myndir sem menn geta sýnt hvar sem er og verið stoltir
af. Þetta er standardinn.
http://www.kanallokal.tv/webb-tv/dianasstigar
14. desember 2008
Nýr veiðimeistari ?.
Nú er búið að samþykkja nýjar
reglur fyrir veiðipróf. Þetta hefur verið nokkuð lengi
í smíðum og margir komið að þessu verki.
Er vert að bera þeim öllum þakkir fyrir vel unnin störf.
Það sem er hvað athyggliverðast í þessum nýju reglum er að
nú þarf hundur ekki lengur að vera HD frír til að verða
veiðimeistari.
Með þessum breytingum tel ég að sá hundur sem á það mest
skilið á Íslandi að vera veiðimeistari geti nú sótt um þann
titil.

Hrímþoku Eros eftir vel heppnaðan
veiðidag. Mynd V.Ó.
Ég er að tala um Hrímþoku Eros sem
ætti þá að fá viðskeytið ISVCH.
Eins og ég hef áður bennt á þá er þetta frábær veiðihundur
sem hefur fengið fleiri topp einkunnir en nokkur
annar hundur hér á landi.
10. desember 2008
Til hamingju með hvolpinn.
Ég var að fá fréttir af því að
hvolparnir sem sagt er frá hér að neðan eru að byrja að fara
til nýrra eigenda.
Enn er ein tík eftir úr þessu goti en það eru víst einir
fjórir að spá í að taka hana.

Hrafn og kona hans með nýja
fjölskyldumeðliminn Vallholts Grímu. Mynd Oddur Örvar.
Sá sem átti fyrsta valrétt heitir
Hrafn Jóhannesson og er leikmaður Þórs á Akureyri í
körfuboltanum.
Hrafn er nýliði í þessum bransa og er mjög áhugasamur um
þetta sport. Hann er mikill rjúpnaveiðimaður og mun án
efa nota hundinn til að aðstoða sig við veiðarnar.
Ég vil óska þeim hjónum til
hamingju með Grímu.
28. nóvember 2008
Einn hvolpur eftir.
Ég fékk símtal frá honum Arnari
Guðmundsyni áðan. Hann var staddur í veiðitúr austur í
Öxarfirði.
Hann hafði þær fréttir að nú væri bara einn tíkarhvolpur
eftir úr gotinu hans.

Tveir strákra í Vallholti. Mynd
Oddur Örvar.
Hann sagði mér að flestir hvolparnir úr gotinu væru að fara
í hendur veiðimanna. Einhverjir eru hér sunnan heiða
en aðrir fyrir norðan.
Hér fyrir ofan eru tveir guttar úr þessu goti. Líkir
pabba sínum sýnist mér.
Arnar er í símasambandi ef einhver
vill stökkva til og ná þessari tík sem eftir er. Hún
fer út áður en langt um líður.
Síminn hjá honum er 840 8891.
25. nóvember 2008
Gengur vel með hvolpana.
Ég hef verið að fá fréttir af þeim
sem eru með hvolpana frá Robur og Monu. Allir eru
búnir að veiða töluvert með þeim og gengur bara nokkuð vel.
Ég er reyndar ekki talsmaður þess að veiða mikið yfir
unghund en það er í góðu lagi að láta unghund kynnast þessu
aðeins.

Kaldalóns Skutla. Mynd Þórður.
Ég er ekkert búinn að skjóta yfir
Ringó í haust og ætlaði mér að bíða með það til næsta
hausts. Það gæti þó verið að ég gæfi honum möguleika á
næstu helgi ef það viðraði til þess.
Reyndar er verið að plana ferð á Siglufjörð á skíði þannig
að veiðar verða enn að mæta afgangi. Það er samt ekki
útséð með að ég komist eitthvað.
25. nóvember 2008
Einstakt tækifæri.
Ég var að fá af því fréttir að enn
væru tveir hvolpar eftir úr gotinu undan Snjófjalla Suzi Q
og Húsavíkur Odin.
Þarna tel ég vera tækifæri til að ná sér í frábært efni til
að vinna með næstu árin. Báðir foreldrar eru af línum sem
eru "letdresur" eða auðþjálfanlegir hundar og góðar í
umgengni heimavið. Svo vakna þeir heldur betur í
móanum.

Systkyni í Vallholti. Mynd Oddur Örvar.
Engin ástæða er til að ætla annað
en að þetta séu línur sem eru góðir fyrstu hundar fyrir
nýliða. Hver sem er getur gert þessa hvolpa að úrvals
veiðihundum. Í þessum hvolpakassa eru framtíðar
veiðimeistarar.
Það ætti ekki að skemma fyrir að
verðinu er nokkuð stillt í hóf en hvolpurinn kostar 170.000
kr. Inn í því verði er m.a. ættbókarskráning og
sjúkdómatrygging.
Þeir sem hefðu áhuga á að tryggja sér hvolpa úr þessu goti
geta snúið sér til Arnars Guðmundssonar.
Númerið hjá Arnari er 464 2236 eða 840 8891.
22. nóvember 2008
Andleysi.
Ekki veit ég hvort að það er
kreppan sem hefur svona rithamlandi áhrif á mann eða hvað
það er. Í öllu falli hef ég ekki fundið mikla þörf
fyrir að tjá mig hér að undanförnu. Þetta virðist vera
farið að plaga einhverja þar sem ég er farinn að fá pillur
frá kunningjunum vegna hreyfingaleysis á síðunni minni. Ég
ætla því að bæta aðeins úr og bauna einhverju út úr mér.

Kaldalóns Ringó og Töfra Heiða. Mynd
V.Ó.
Ég er búinn að fara tvisvar með hóp
ÍR krakka á skíði í mánuðnum. Fyrstu helgina í rjúpu
var farið í Tindastól með fríðan hóp. Á meðan
krakkarnir renndu sé í fjallinu fór ég í göngutúr með Gassa
og Robur og tvíhleypuna. Ég hafði 6 fugla upp úr
krafsinu og snéri kátur til baka. Hundarnir voru að
standa sig mjög vel og sá gamli átti falleg móment sem
rifjuðu upp þá tíma sem ég átti með honum á yngri árum hans.
Hann þreyttist þó fljótt og ég þurfti líka að hætta snemma
vegna skyldustarfa. Ég er alveg klár á því að þessa
dagsparta tvo sem ég fór með þá félagana hefði ég ekki veitt
einn einasta fugl hundlaus. Aðstæður voru einfaldlega
þannig að hundarnir voru að nýtast vel.
Ég gerði svo tilraun til að fara í norðanverða
Holtavörðuheiðina í síðustu viku en þurfti frá að hverfa
vegna veðurs. Ég var svo upptekinn á Akureyri með
skíðakrakka síðustu helgi.
Það er afar ánægjulegt að verða þess áskynja að allir sem
vettlingi geta valdið sitja á sér og fara bara sjaldan og
lítið til rjúpna og taka þátt í því með okkur að byggja upp
þennan stofn sem jú vissulega hefur verið í lægð. Ég
hef ekki heyrt af neinum sem hefur veitt meira en 10 fugla
og tala ég þó við marga góða veiðimenn.
Það er hins vegar fúlt að verða þess áskynja að lögreglan er
alveg hætt að ómaka sig við að taka á utanvega akstri eða
veiðum með hjálp snjósleða eða annara faratækja. Ein
lögga sem ég spurði hvort að þeir hefðu gert eitthvað í að
taka menn sem fara á sleðum til veiða á Þverárfjalli hváði
og spurði hvort að vertíðinn hefði ekki verið að hefjast 1.
nóv.
Kunnugir segja mér að Brattabrekka
sé öll orðin útspóluð eftir bíla. Ljót sár sem gróa
seint bera slæmt vitni um okkur veiðimenn. Vegarslóði
sem liggur upp á Brekkuna að norðanverðu er afgirtur nú og
vitaskuld deyja miklir veiðimenn ekki ráðalausir og spæna á
sínum fjallabílum yfir vegleysur og inn á slóðann aftur
eftir að hafa skilið eftir sig spor ljót og ill til
afspurnar.
30. október 2008
Með nefið í lagi.
Ég hef verið afskaplega latur við
að vinna þau störf sem þarf í garðinum mínum. Þ.e.a.s.
runnaklippingar og þess háttar.
Ég hef því fengið garðyrkjumann í þetta og sé ekki eftir
þeim aurum sem fer í það. Garðyrkjumeistarinn lenti í
því síðast þegar hann var hjá mér að tína veskinu sínu með
kortum og einhverjum aur í.
Hann var búinn að gera mikla leit að veskinu en án árangurs.

Ringó með veskið. Mynd V.Ó.
En þá kom Kaldalóns Ringó til hjálpar. Ég veitti því
athyggli í fyrradag að hann var að leika sér með eitthvað og
við athugun kom í ljós að þetta var umrætt veski
garyrkjumannsins.
Garðyrkjumaðurinn var mjög kátur og lítur hunda öðrum augum
á eftir.
27. október 2008
Heimsmeistaramót í
Króatíu.
Nú um síðustu helgi fór fram
heimsmeistaramót fuglahunda í Króatíu.
Það er gaman að
segja frá því að stigahæsti hundur í einstaklingskeppni var
hundur sem er tengdur tíkinni
Mónu sem ég flutti inn frá
Frakklandi. Móna og þessi sigurvegari,
Uno Du Mont
Lievain
eiga sameiginlegan
ættföður í þriðja ættlið.

Kaldalóns Ringó frændi heimsmeistarans. Mynd
VÓ.
Sá heitir
Roval Sly og er bæði í móður- og föðurætt hjá Mónu í þriðja
ættlið.
Einnig eru þessir tveir hundar tengdir í gegnum Belgíska ræktun
sem heitir De Coriam.
Gaman af þessu.
26. október 2008
Sterk viðbrögð.
Ég hef fengið nokkuð sterk viðbrögð
við grein hér fyrir neðan sem ber heitið "Duttlungar
náttúrunnar". Sýnist þar sitt hverjum.
Ég hef meðal annars verið beðinn um að nafngreina starfsmann
HRFÍ sem bauð mér "genatest" á hundinn minn. Það ætla ég
ekki að gera. Þessi persóna vildi mér bara vel en
gerði sér kannski ekki grein fyrir bakgrunni þessa máls sem
er að þessi hundur kemur úr einni þekktustu veiðihundaræktun
Noregs.
23. október 2008
Nýjar heimasíður.
Nú eru komnar í loftið tvær nýjar
heimasíður í eigu Aflmarks ehf.
Annars vegar er síða sem ég er að nota
fyrir skip og aflaheimildir. Sú síða er á léninu
www.aflmark.is
Hin síðan er fyrir hundafóðrið og þær
vörur sem við höfum verið að selja. Slóðin á
hana er www.robur.is
Endilega kíkið á þetta.
21. október 2008
Duttlungar náttúrunnar.
Ég hef nú fengið að heyra ýmislegt um
mína hunda frá misfróðu fólki, síðast frá nágranna mínum í
fyrradag.
Hafa menn lagst svo lágt að ía að því að Robur sé undan
pointer en ekki ES.
Það er náttúrulega svo mikil heimska að það er ekki einu
sinni gerandi af því grín.
Það er í raun alveg ótrúlegt að nokkur maður með heilbryggða
skynsemi skuli láta þetta út úr sér.
Starsmaður á
skrifstofu HRFÍ bauð mér t.d. fyrir um ári síðan í fúlustu
alvöru að setja hundinn í genatest. Hund sem kemur úr einni
frægustu veiðihundaræktun í Noregi. Það hefur nú verið
startað milliríkja deilu af minna tilefni.
Ég hef ekki
hugmynd um hvort að einhvertíma lengst aftur í fornöld hafi
pointer og enskum setter verið blandað saman. Hafi svo
verið er hálfur stofninn í Noregi og Svíþóð með pointer í
sér í jafn miklu mæli og Robur þar sem nokkrir forfeður
þessa hunds eru forfeður og mæður mjög stórs hluta af
núverandi stofni á norðurlöndum. Guð má vita hvað gert var
við þá hunda sem voru pointer megin í útlitinu í þeim
tilraunum. Var þeim lógað eða blandað saman við
pointerinn?
Hafi þetta
verið gert þá er það mjög langt síðan því að það segir sig
sjálft að ef pointer væri í ættinni nær en í ca 5 ættlið þá
væru sumir hundarnir hárlausir og aðrir með hár. Einnig
kæmu pointer karekter einkenni mun sterkar fram í sumum
einstaklingum úr goti þessa hunds. Það vita þeir sem
hafa umgengist þessa hunda að það er mikil munur á karakter
í þessum tveimur tegundum.
Ok ef menn
vilja halda þessu fram þá eru menn í leiðinni að segja að
mestur parturinn af stofninum á norðurlöndum sé þannig
blandaður.
Til marks um
hve fáfróður maður er um svona mál þá má til gamans geta
þess að Norðmenn bættu gordon setann í Noregi með því að
blanda við hann ES hundum. Þetta hafði ég ekki hugmynd um
þar til fyrir nokkrum dögum að helsti sérfræðingur í þessari
tegund hér á landi sagði mér frá þessu. Það er ekki mjög
langt síðan að þeir norsku gerðu þetta markvist og með
vitund æðstu stjórnvalda hundasamfélagsins. Gott ef Johan
B. Stene kom ekki eitthvað nærri þessu.

Þetta er hreinræktaður gordon seti úr noskri
ræktun. Glæsilegur hundur en því miður fengi hann ekki
hátt á sýningu
þar sem standardinn líður engin litafrávik. Þessir
hundar eru heldur ekki að mæta mikið í veiðipróf skilst mér. Sjá
http://www.aaens.dk/gordons_in_many_colors.htm
Það mun vera
nokkuð algengt í sumum línum GS Noregi í dag að hluti gots
sé eins og hálfur enskur seti en restin kannski í góðu
lagi.
Þarna sjá menn hvernig genin haga sér í svona blöndun og
gætu þá að gamni borið það saman við það sem má vænta úr
kassa hjá ES í dag.
21. október 2008
Rjúpan flogin.
Nú í morgun fór ég með rjúpuna út í
móa og sleppti henni. Mér sýndist hún vera hin
hressasta og flaug út í náttúruna.
Ég fór með hana þar sem líklegt er að hún fá einhvern frið
til að koma sér af stað aftur.
19. október 2008
Stari í heimsókn.
Dóttir mín kom hlaupandi til mín
áðan og sagðist heyra eitthvað hljóð úr skorsteininum.
Ég fór að kanna málið og komst að því að það væri fugl inn í
honum.
Með ærinni fyrirhöfn tókst mér að ná honum út. Hann
var nokkuð dasaður greiið og flaug ekki burt þó að hann sæti
laus á hendi mér.

Starinn situr hinn rólegasti en
flaug svo skömmu síðar sína leið. Mynd Helga.
Þetta var óvænt heimsókn og ég hef
ekki hugmynd um hve lengi hann var búinn að dúsa þarna.
19. október 2008
Úrslit liggja fyrir.
Það er að koma í ljós rétt í þessu
að seinni degi í keppnisflokaprófinu var að ljúka án þess að
nokkur fengi sæti. Enginn fugl fannst í dag enda ekki
furða. Hann er allur kominn í Skálafell og móana þar í
kring en prófamenn gengu fugllausa Mosfellsheiðina í dag.
Ég fann fullt af fugli í gær í móunum upp af línuvegi ofan
við Gljúfrastein og fékk fréttir af öðrum sem var í
Skálafelli í þéttum fugli í morgun og í gær líka.
Svona er þetta bara, menn eru misheppnir með val á svæðum
til veiða.

Ásgeir Heiðar með Vatnsenda hunda.
Mynd V.Ó
Mér sýnist svo að þá sé endanleg úrslit þessa tveggja daga
prófs þau sömu og í gær. Samkvæmt því er pointertíkin
Nóra stigahæsti hundur ársins.
Til hamingju með það Ásgeir Heiðar.
19. október 2008
Rjúpan að hressast.
Næturgesturinn er allur að koma
til. Ég fór í morgun með Ólafi Ragnars í smá æfingu með
unghundana.
Rjúpunni var komið fyrir á góðum stað í öruggu skjóli og
hundarnir leiddir í lyktina.

Ólafur Ragnars með Jökul í morgun.
Mynd V.Ó.
Misvel gekk að nýta þetta en Jökull hans Óla var
langflottastur.
Undanfarna daga hafa nokkrir kunningjar nýtt sér dúfurnar og
bara gaman að því.
Ég verð með þær í nokkrar vikur og um að gera að nýta það á
meðan.
18. október 2008
Dagur enskra seta í
keppnisflokki í dag.
Nú um helgina er haldið síðasta
prófið á vegum FHD á þessu ári. Í stað þess að bjóða upp á
venjulegt próf sáu þeir sem ráða enga ástæðu til annars en
að bjóða upp á tvöfaldan keppnisflokk.
Þetta er alveg óskiljanleg ráðstöfun.
Það hefði verið mun viturlegra að
vera með tvo daga með blönduðu partí og svo keppnisflokk á
sunnudegi.
Ég veit fyrir víst um 10 unghunda sem hefðu mætt í próf nú
um helgina ef það hefði verið í boði. Svo eru alveg klárlega
einhverjir fullorðnir hundar sem hefðu mætt. Þarna er
verið að kasta frá sér 150.000 kr.
Jæja en úrslit dagsins voru
eftirfarandi í dag:
1. sæti ES Snjófjalla Dís.
2. sæti ES Fantófells Flóki.
3. sæti B Morgundögg í Apríl.
Á morgun verður haldið áfram og
samanlagður árangur daganna segir til um hver vinnur.
18. október 2008
Ferð til fiðurfjár.
Ég er búinn að vera upp á heiði í
allan dag að æfa hundana. Ég fór upp í Mosfellsdal og
var í hrímuðum móa. Nóg var af fugli og átti ég nokkur
góð móment með hundunum.

Eitt mómentið stóð þó upp úr.
Það var þegar Ringó náði að klófesta fugl sem lág á milli
þúfna og uggði ekki að sér fyrir en í kjafti hundsins.
Fuglinn var nokkuð lemstraður eftir meðferð hundsins og
ákvað ég að taka hann með heim og sjá hvort að hann
braggaðist ekki.
16. október 2008
Fjölgun á Húsavík.
Rétt í þessu var ég að fá fréttir
af fjölgun í ensk setterstofninum.
Snjófjalla Susie-Q var að gjóta í það minnsta 7 hvolpum.
Þessi tík er í eigu Arnars Guðmundssonar á Húsavík.
 
Snjófjalla Susie-Q
Mynd Oddur Örvar.
Kvernmomarka´s Húsavíkur Óðinn
Mynd Oddur Örvar.
Hin lukkulegi faðir er
Kvernmomarka´s Húsavíkur Óðinn
sem er í eigu Odds Örvars.
Þegar síðast fréttist, nú um kl. 22.25 voru komnir sjö hvolpar. Fimm tíkur og tveir hundar.
Það er full ástæða til að óska þeim félögum til hamingju
með þetta.

Þarna eru komnir í kassann frábær efni í úrvals veiðihunda.
Klárlega stofninum til framdráttar. Mynd. Addi Gumm.
13. október 2008
Hún gerði það aftur.
Ég var að fá skeyti frá Per Arne
Watle. Hann tók þátt í unghundaprófi í NM lavland nú
um helgina með tíkurnar sínar þrjár.
Skeytið hljóðar svona.
Hello again, Villy,
Yesterday we participated for the last time this year.
Both Saga and Queen got their 1 UK and Dina 2UK. Saga
had two perfect points on pheasants and went extremely
well. So 2008 ended as it started: With a 1UK for Saga.
Best regards
Per Arne
Þessi 1. einkunn setur púnktinn yfr
frábært tímabil hjá Kaldalóns Sögu. Hvaða ræktandi sem
er gæti verið ánægður með þennan árangur sem er þarna að
nást í einni hörðustu "deild" í heimi.
Árangur hennar á árinu er
eftirfarandi:
Rjukan II 8. til 9. mars 1. UK.
Agder 28. til 30. mars 2. UK.
Hjerkin 29. til 30 ágúst 2. UK.
Norsk Derby 26. til 28 sept.1UK kval.
Ein af 7 í hópi 134 hunda sem náðu 1. einkunn í undankeppni.
Féll naumlega út í undanúrslitum.
Rjukan Grand prix. 2. UGP. Lenti
í öðru sæti í þessari þriggja daga keppni. 80 hundar
sem tóku þátt.
NM Lavland. 12. okt. 1 UK.
12. október 2008
Noregsmeistaramót á
láglendinu.
Þessa helgi hefur staðið yfir keppni á
NM lavland í Noregi. Þetta er keppni á ökrum á
láglendi.
Fyrst var keppt í liðakeppni og þar sigraði pointer liðið og
enski setinn var í öðru sæti.
Sjá nánar hér.
Í dag lauk einstaklingskeppninni en
hún er með keppnisflokks fyrirkomulagi. Forkeppni,
undanúrslit og úrslit.
Það var íslandsvinurinn Arne Abel-Lunde sem dæmdi próf hér í
vor sem vann í dag.
Hundurinn hans er bretoninn Drillo sem er búinn að gera mjög
góða hluti í höndum hans.

Arne Abel-Lunde með Drillo.
Sjá nánar hér.
Svo er enn verið að bíða eftir
úrslitum í unghundaflokki en Kaldalóns Saga er meðal
þátttakenda.
08. október 2008
Dúfur.
Ég er búinn að útvega mér tvær hvítar
dúfir til að nota við þjálfun hundanna.
Ég áforma að vera með þær í nokkrar vikur og reyna að nýta
tímann vel á meðan.

Þetta eru stórar og sterklegar dúfur
sem ég fékk að láni hjá félögum í skrautdúfufélagi
Hafnarfjarðar.
Ef einhver hefur áhuga á taka æfingu með dúfum þá er það
velkomið.
Ég hef notað dúfur áður til þjálfunar og hef góða reynslu af
notkunn þeirra.
Nú í kvöld tók ég fyrstu æfingu með þá Robur og Ringó og
gekk það ágætlega.
08. október 2008
Kaldalóns Skutla HD fri.
Ég var að fá fréttir af því að
Kaldalóns Skutla er HD frí. Það eru góðar fréttir.
Nú eru þrír hundar úr þessu goti komnir með jákvæða
niðurstöð úr HD myndum.
06. október 2008
Góð helgi að baki.
Ég hef verið
að fylgjast með NM Höyfjell í Noregi um helgina. Það
er afar athygglivert að sjá að Black, hundurinn hans Bjarnar
Watle, stigahæsti ES í fyrra, var hent út fyrir að sækja
ekki skotinn fugl. Þetta kemur jafnvel fyrir meistarana.
Mér skilst að aðstæður hafi allar verið mjög slæmar, gekk á
með dimmum éljum og snjór í feldi hundana gerði sumum þeirra
erfitt fyrir. Þetta var ekki hans dagur.
Ég þakka
hamingjuóskir sem ég hef fengið úr ýmsum áttum um helgina.
Ég met það mikils.

Hópurinn sem keppti til úrslita í UGP.
Per er þarna lengst til vinstri með tíkurnar tvær, Queen nær
okkur og Sögu nær sér.
Tore Kallekleif er í rauðu úlpunni.
Já ég get
verið nokkuð kátur. Öll orðin sem ég geymi en ekki gleymi.
"Líður fyrir smæðina", "ekki eins og fólk er flest", "ég vil
mína pointera hárlausa" og allt það. Það sveið undan þessu
á sínum tíma en í dag er þetta rækilega rekið til
föðurhúsanna og ræktunarnafnið "Kaldalóns" er þekktara fyrir
góða hluti meðal veiðihundamanna hér á landi sem og á
norðurlöndum en "Vatnsenda", "Zetu" og "Hrímþoku" allt til
samans.
Hvað getum við
af þessu lært? Jú, förum varlega í að gagnrína aðra í
ræktun. Gefum "vitleysingunum" andrými. Það getur
nefnilega verið að í allri vitleysunni leynist smá vitglóra.
05. október 2008
Unghund Grand Prix í dag.
Jæja, þá
er niðurstaða fengin úr Grand Prixinu í Rjukan.
Það var pointerinn Felix sem tók þetta og Saga hélt sínu
sæti og varð númer 2.
Einungis
ein fuglavinna náðist í dag. Ég hef grun um að það
hafi verið ES Albin sem náði því. Alla vega stekkur hún upp
á listanum milli daga.
Þetta er alveg frábær árangur hjá Sögu og fer langt með að
fleyta þessari tík á toppinn í keppninni um unghund ársins
hjá Nesk. Þar er þó hörð keppni í gangi.
Hún mun taka þátt í annari keppni á næstu helgi en í
millitíðinni er Per að fara að veiða með henni fasana.
Endaleg
röð er þessi:
P Felix
ES Saga
ES Bobo
GS Smilla Norsk Derby vinner
ES Albin Svensk Derby/Fjällpokalen
vinner
IS Magic Dream
Ekki slæmt að hafa tvo Derby vinnera fyrir neðan sig.
Per var búinn að segja mér að þessi pointer sem vann væri
hreint út sagt magnaður hundur en með smá heppni hefði hann
verið lagður í dag. Hann sagði að Saga hefði verið með
betri leitarvinnu báða dagana en reisningin frá fyrri
deginum vóg þungt hjá Felix.
05. október 2008
Unghund Grand Prix í gær.
Þeir vinir
vorir Norðmenn eru ekki þeir duglegustu að setja úrslit
prófa á netið þannig að fjarstaddir geti fylgst með.
Það eru þó loks nú í morguns-árið komin inn úrslit
gærdagsins.
Ég minni á að hundarnir taka með sér skor laugardagsins yfir
á sunnudag þannig að þeir sem standa hæst á þessum lista eru
með mesta möguleika á að standa uppi sem sigurvegarar.
Eins og þið sjáið þá eru þarna fjórir hundar sem fá dóminn
glitrende søker. Það er Saga, Smilla, Quine og tík sem
ég var rétt í þessu að gera mér grein fyrir að vann sænska
Derbyið um daginn. Tidybird´s Albin Av Høimyra.
Klárlega frábær tík þar á ferð en var slegin út í fugli og
er því neðar á listanum fyrir vikið.
Með þessu
er vissulega verið að setja Sögu á stall með bestu unghundum
Noregs í ár og það gerir enginn annar en
Tore
Kallekleiv sem einhver hefði nú sjálfsagt sagt að væri ekki
mjög hrifinn af enskum setum.
En þetta sannar bara það sem ég hef lengi sagt að þessir
menn eru bara að dæma hunda og spá ekki í tegundir á meðan.
Þess má geta að Tore vann sjálfur þessa keppni árið 2006 með
vorsteh tíkina
Rugdelias Nmj Lucilla.
-
P Felix- fuglearbeide med reis, meget god
søker.
-
ES Saga- fuglearbeide uten reis,
glitrende søker.
-
GS Smilla- fuglearbeide uten reis,
glitrende søker.
-
ES Bobo- fuglearbeide uten reis, meget
god søker.
-
IS Magic Dream- fuglearbeide uten reis,
stort gående noe åpen.
-
ES Tjafs – fuglearbeide men ikke
jaktbart.
-
ES Queen- Glitrende søker.
-
IS Røa- stort gående noe åpen, men
forsøker å spikre fugl.
-
ES Cayenne- meget god søker.
-
ES Jago- meget god søker.
-
ES Albin- glitrende søker men slått i
fugl.
-
ES
Bøyla- meget god søker, eget støkk.
Það er
ekki ónýtt að vera fyrir ofan tvo Derbyvinnera þessa árs og
hafa slegið þá út í sleppi í þokkabót.
Veðuraðstæður eru mjög slæmar í dag og ef Saga er eitthvað
lík mömmu sinni blessaðri þá lætur hún það ekki á sig fá.
Það er afar athygglivert að það eru 8 enskir setar í þessum
12 hunda úrslitahópi í dag. En það þarf ekki nema einn
hund til að vinna og hann getur allt eins orðið þessi
frábæri pointer sem er efstur eftir fyrsta dag eða þá að
annar hvor Derby vinnerinn taki þetta.
E.s.
Þeir sænsku eru með svo kallað Derby fyrir láglandsprufur
þar sem keppt er á flötum túnum. Þeir eru svo með það sem er
sambærilegt við norska Derbyið og kalla það
Fjällpokalen. Albin vann það
próf um daginn.
04. október 2008
Sagan í gírnum.
Ég var að
tala við Per Arne Watle rétt í þessu og hann var vægast sagt
ánægður með daginn.
Kaldalóns Saga gerði sér lítið fyrir og vann sinn riðil í
dag og stendur vel að vígi fyrir morgundaginn.
Hann var nokkuð bjartsýnn á morgundaginn og sagði að tíkin
hefði etið vel eftir prófið og yrði klár í slaginn á morgun.
Í dag slóg
Kaldalóns Saga út Derby vinnerinn frá síðustu helgi.
Við vitum að það er góður hundur en í dag var Saga betri.
Kleivskogen's Queen var að gera fína hluti líka og var
ofarlega á lista eftir daginn.
Puttarnir
verða áfram krossaðir.
04. október 2008
Æfing hjá Kaldalóns?
Um kl. 11
í morgun fór ég með þeim Sigþóri og Eiði Gísla með Ringó, Doppu og
Byr í æfingagöngu á Mosfellsheiðina.
Í þessum snjó sem kominn er á heiðina er fuglinn búinn að
dreifa sér um alla heiði.

Kaldalóns Ringó, Byr og Doppa ásamt
"ræktandanum". Mynd Sigþór.
Við fundum slatta af fugli og er óhætt að segja að dagurinn
hafi verið ánægjulegur.
Doppa fann mest af fugli og var að sýna okkur flotta takta.
Byr er í góðu sambandi og á án efa eftir að verða flottur
veiðihundur og auðveldur í þjálfun.
Ringó hins vegar er alltaf á ytri bárunni og alltaf á
grensunni eins og Móna var lengstum.
Hann hefur áberandi meiri hraða en hinir og verður erfiður í
þjálfun eins og mamman. Það er eins gott að ég er með
þennan hund en ekki byrjandi í þessu frábæra sporti.
En þegar Kaldalóns Ringó verður klár þá standast fáir honum
snúning.
03. október 2008
Saga komin áfram?
Ég var að
fá fréttir frá Per Arne. Kaldalóns Saga komst í gegnum
niðurskurðinn með glæsibrag. Kleivskogen's Queen komst
líka áfram. Per hefur því keppni með tvær tíkur á
morgun.
Per sagði að Saga hefði verið að vinna mjög vel í dag og
hefði verið við toppinn á listanum eftir daginn.
Per var ekkert sérlega bjartsýn á að ná langt á morgun.
Hann sagði að aðstæður væru allar mjög slæmar og margir
góðir hundar að gera kjánaleg mistök.
En í miðju efnahagsfárviðrinu er í lagi að leyfa sér
smá bjartsýni.
Þess má
geta að enginn hundur náði gildri
fuglavinnu í dag. Aðstæður voru einfaldlega mjög slæmar og
hundarnir keyra ekki fullar 90 mínútur þennan útsláttardag.
Mér skilst að fyrst séu allir keyrðir í 15 mínútur og ef
hundur er að gera góða hluti fer hann áfram í annan hring
sem getur staðið í 30 mínútur. Þeir sem ekki eru að
gera góða hluti detta strax út.

Það er gaman að segja frá því að dómari í hópnum
sem Saga keppir í Á MORGUN laugardag, er Íslandsvinurinn Tore Kallekleiv,
sá hin sami og ræktaði vorsteh hundinn Rugdelias Teit.
03. október 2008
Fetar hún í fótspor ömmu?
Veiðikeppnin Unghund Grand Prix 2008 sem fram fer í Rjukna í
Noregi um helgina er að mörgu leiti sérstök. Þetta er
keppnisflokkur en í þessari keppni leyfist unghundunum meiri
afbrot en í opnum flokki. Þ.e. að það er tekið tillit
til þess að hundarnir eru ekki að fullu þjálfaðir.
Þetta er þriggja daga mót þar sem fyrsti dagurinn er
úrtökudagur og aðeins þeir bestu komast árfam í sjálfa
keppnina.
Aðalkeppnin tekur svo tvo daga og taka hundarnir með sér
árangur milli daga. Sá hundur sem er með flest stig
vinnur.

Jan Telhaug með Berkjenstöllen's Vicky.
Þess má
geta að Íslandsvinurinn Jan Telhaug, ræktandi
Berkjenstöllen's vann þessa keppni árið 1996 með Vicky mömmu
hans Roburs. Vicky er sem kunnugt er amma hennar
Kaldalóns Sögu sem nú er ein af þátttakendum í þessari
keppni.

Einnig má
geta þess að Finnvellen's Cherokee vann þessa keppni árið
1987. Sá frægi hundur er skyldur Robur í 2. ættlið.
Hann er móðurbróðir Vicky.
02. október 2008
Skálafell skoðað.
Ég fór í
góðan æfingatúr í dag upp í Skálafell með Ólafi Erni
Ragnarssyni. Við gengum með unghundinn Rjúpnabrekku
Jökul, Gassa og Robur. Eftir að Gassi var búinn að
teigja úr sér var Robur sleppt. Hann tók fín slög og
var búinn að vera að gera fína hluti þegar hann rann niður
undan okkur og niður í mýri sem var töluvert fyrir neðan
okkur. Við héldum í humátt á eftir honum og ég átti
von á að hann mundi koma til baka en allt kom fyrir ekki.
Ekki sást tangur né tetur af honum.
Við gengum í áttina að veginum og þegar við vorum að verða
komnir að vegi sá ég glitta í Robur á standi nánast á þeim
stað sem við tíndum honum á.

Berkjenstöllen's Robur á standi í dag.
Sjálfsagt orðinn þreyttur eftir langa stöðu. Mynd V.Ó.
Hann hafði
þá verið þarna nokkrum metrum frá okkur en í hvarfi við
okkur þegar við vorum að leita þarna. Það tók þó
nokkra stund að ganga til baka og allt í allt hefur hann
verið búinn að standa þarna í 30 til 40 mínútur. Það
var algjör tilviljun að ég kom auga á hann og léttirinn var
mikill.
01. október 2008
Per Watle keppir um næstu
helgi.
Um
næstu helgi verður haldið svokallað
Unghund Grand Prix
2008 í Rjukan í Noregi.
Þetta er langt því frá eins stórt mót og Derbyið en samt mót
í stærri kantinum. Fyrir þá sem eru virkir þátttakendur í
þessu sporti í Noregi er þetta eitt af þeim mótum sem stefnt
er að því að vinna í það minnsta einu sinni á æfinni.
Ég hef trú á að í ár sé komið að Per Arne Watle að fara heim
með sigurlaunin.
Per teflir fram þremur frábærum tíkum sem hafa allar sýnt
tilburði til að vera í fremstu röð.
Þetta eru Hågakollen's Dina, Kleivskogen's Queen og
Kaldalóns Saga.
Þarna verða saman komnir allir bestu unghundar Noregs og
samkeppnin er mjög mikil. Þetta er uppsett með keppnisflokks
fyrirkomulagi þar sem lítil fyrirgefning er í boði.
Endilega fylgist með á heimasíðu Telemark
fuglahundaklúbbsins um helgina.
http://www.telefuglehund.org/
01. október 2008
Kaldalóns Doppa komst í
feitt.
Í gær
átti ég samtal við hann Sigþór eiganda Kaldalóns Doppu.
Hann var að kanna hvort að ég væri á leið upp á heiði.
Ég átti ekki heimangengt en ræddi það við hann að ef ég væri
að fara að þjálfa í dag færi ég í Skálafellið. Rjúpan
væri mest öll farin af heiðinni og færi nokkuð ofarlega í
Hengilinn og Skálafellið.

Kaldalóns Doppa á standi. Mynd Sigþór.
Sigþór fór þangað og lenti í miklu æfintýri með Doppu.
Hann sagði að hann hefði séð um 30 fugla og haft mikið gaman
af því að vinna með sínum framtíðarveiðifélaga.
Þarna lá hún rjúpan í skjóli fyrir norðan áttinni.
27. september 2008
Kaldalóns Saga komst ekki
áfam.
Ég var að
fá þær fréttir að Saga komst ekki áfram í dag. Per kom
aðeins einum hundi af þrem áfram í dag.
Per sagði að Saga hefði verið númer 7 á lista dómarans en 6
hundar komust áfram í hverri grúbbu. Það sem dróg af hennar
möguleikum í dag var að hún fór of nálægt fugli á standi og
hann fór í loftið áður en Per kom að. Það dæmdist því sem
fluss. Það var enginn hundur sem var með fuglavinnu í dag í
þessum hópi sagði Per.
Hann sagðist vera afar vonsvikinn yfir því að hún kæmist
ekki áfram. Hann taldi að hún hefði verið að vinna best af
þeim hundum sem hann sá í dag og mjög svekkjandi að hún
kæmist ekki áfram.
Hann sagði að Saga væri klárlega framtíðar hundur hjá sér.
Hún mun taka þátt í stóru unghunda móti í Rjúkan á næstu
helgi þannig að þá fær hún annan möguleika á að sýna hvað í
henni býr.
26. september 2008
Kaldalóns Saga í Norsk Derby.
Nú um
helgina fer fram stæsta keppni unghunda á norðurlöndum. Svo
kallað Norsk Derby.
Þar keppa 134 unghundar um titilinn Norsk derby vinner.
Þetta er þriggja daga próf með niðurskurði. Forkeppni
er á föstudag, undanúrslit á laugardegi og úrslit á
sunnudegi.
Meðal þátttakenda í þessari keppni eru tveir hundar úr
íslenskri ræktun. Vorsteh hundurinn Goðheima Loki og
Kaldalóns Saga.

Kaldalóns Saga í veiðihug. Mynd
V.Ó.
Af öllum þeim fjölda sem startaði í dag voru aðeins 7 með 1.
einkunn.
Kaldalóns Saga komst áfram í undanúrslit og var með 1.
einkunn.
Goðheima Loki mun því miður ekki hafa komist áfram.
Þess má geta að eigandi Sögu, Per Arne Watle var með þrjá
hunda í keppni í dag og komust þeir allir áfram.
Þegar líður á kvöldið mun koma eitthvað inn á vef keppninar
http://www.derby.no/ og
þá ætti þessi úrslit að verða staðfest.
Á morgun verður svo ný keppni þar sem skorið verður en meira
niður.
22. september 2008
Stöngin inn.
Í síðustu viku
fór ég með tveimur félögum í gæsatúr norður í Mývatnssveit.
Við gistum á bænum Stöng
í bústöðum sem Jón Ingi Guðmundsson á og rekur. Jón er
með nokkrar jarðir á leigu og endurleigir þær með góðri
þjónustu til veiðimanna.

Að loknum veiðidegi. Mynd Jón Ingi.
Við fengum
ágætis veður fyrsta daginn og veiðin var þokkaleg en seinni
daginn var mjög hvasst um morguninn og lítið sem ekkert
flug.
Óhætt er að mæla með þessu og alveg klárt að þarna fer ég
aftur síðar.
14. september 2008
Hrímþoku Eros did it again.
Í dag var
var keppnisflokkur á heiðinni við frekar erfið veður
skilyrði. Meðal þátttakenda voru nokkrir þekktir
kappar en það var Hrímþoku Eros sem vann í dag enn eitt
prófið.

Hrímþoku Eros á góðum degi. Sennilega
mest verðlaunaði veiðihundur á Íslandi í dag. Mynd VÓ.
Mér er það
til efs að nokkur hundur hér á landi komist með tærnar þar
sem þessi hundur er með hælana í samanlögðum árangri á
veiðiprófum.
Þessi hundur er mér nokkuð hugleikinn vegna þess að ég
fóstraði hann um tíma og hef orðið þess heiðurs aðnjótandi
að veiða með honum á góðum degi. Frábær fulltrúi ensk
setterstofnsins. Til hamingju með þetta Kiddi.
13. september 2008
Rigninga- og rokpróf.
Í dag gekk
ég með Ringó í hans fyrsta veiðiprófi. Í fyrsta sleppi
flössaði hann tveimur hópum í sama slaginu og sást lítið það
sem eftir var af því sleppi. Í næstu sleppum var hann
að vinna eins og engill og var óheppinn að ná ekki að vinna
úr sínum möguleikum.

Þessi mynd er tekin af Ringó í góðu veðri á
góðum degi. Í dag var ekki veður til myndatöku en
veðrið hafði ekki
mikil áhrif á Ringó. Mynd V.Ó.
Þetta er búið að
vera góð helgi og vonandi að á morgun verði fært á heiðina í
keppnisflokknum.
Þetta var á mörkunum í dag. Veðrið var afleitt á köflum.
Ég vil óska þeim sem náðu árangri í dag og í gær til
hamingju og einnig vil ég lýsa yfir ánægju minni með þennan
dómara.
Í dag og í gær var ekki eitt atriði sem mér fannst hann dæma
rangt.
Ég verð líka að lýsa undrun minni á lélegri þátttöku í þessu
prófi.
Í gegnum tíðina hafa sumir eigendur vorsteh hunda verið að
tala um að þeirra hlutur hafi verið fyrir borð borinn og
hingað komi einungis dómarar sem eigi aðrar tegundir en
vorsteh.
Nú er hingað kominn skærasta vorsteh stjarna Noregs og hvar
eru kanónurnar í vorstehdeildinni? Þessi maður er búinn að
taka þátt í tveimur Evrópumótum fyrir Noregs hönd og dæma
þar einu sinni og unnið allt sem hægt er að vinna í þessum
geira.
Nei umkvartanir þeirra verða hálf hjákátlegar eftir þetta.
En það eru fleiri en vorste menn sem
mæta ekki. En e.t.v. hafa menn einhverjar gildar
afsakanir.
12. september 2008
Robur bestur í dag segir Glen
Olsen.
Í dag var
haldið fyrsta veiðipróf haustsins og var Berkjenstölen's
Robur meðal annara góðra hunda sem tóku þátt.

Góður dómari dagsins, Glen Olsen frá Noregi.
Mynd V.Ó.
Hann var að
sýna mér fína vinu í dag og var búinn að sýna mér og mjög
góðum dómara dagsins, Glen Olsen fuglavinnu og reisingu.
En í hans öðru sleppi kom eitthvað fyrir hægri framfótinn á
honum og hann stakk við eftir það.
Það sér ekkert á honum en þetta dróg úr vinnuhraða hans og
rögsamur dómari mælti svo fyrir að hann lyki prófi með 2.
einkunn í dag vegna þessa. Ég mótmælti því ekki þó að
ég hefði gjarnan viljað klára klukkutímann og landa 1.
einkunn í dag. En velferð hundsins gengur fyrir.
Með þessu áframhaldi er þetta bara tímaspursmál hvenær hann
landar 1. einkunn.

Robur hefur verið að smella í gírinn aftur og
það kom mér ekki á óvart
að landa á hann einkunn í dag. Mynd Sigþór.
Robur var
valinn besti hundur dagsins í opnum flokki.
Kaldalóns Doppa var að gera fína hluti en náði því miður
ekki að sýna fuglavinnu og lauk prófi með 0 einkunn.
07. september 2008
Blautur dagur.
Um hádegisbil
fór ég af stað upp á heiði til að þjálfa hundana. Það
voru ekki margir á heiðinni í dag og þeir fáu sem voru þar
stöldruðu ekki lengi við. Veður var ágæt þegar ég fór
af stað en versnaði á þeim tveimur tímum sem ég gekk og var
orðið
slagveður þegar ég kom í bílinn.

Þessi mynd er
tekin í gær þegar hann var að kæla sig niður í hitanum og
pissar í vatnið með lokuð augun.
Þetta er svona til að sýna að það er hægt að taka
skemmtilegar myndir af fuglahundi án þess að hann sé á
standi á fugl.
Mynd V.Ó.
Ég fór bara með Ringó í dag og var hann að sýna mér fína
vinnu í þessum erfiðu aðstæðum. Hann flössaði upp
einni rjúpu í dag og nokkrum hrossagaukum og fór djarft á
eftir í flestum tilfellum. Hann stoppaði þó um síðir.
Ég hef verið að láta hann hlaupa með langan spotta svona til
að minnka aðeins hraðann og kippa honum niður í reisningunni
ef ég fæ tækifæri til.
06. september 2008
Í góðum gír.
Í dag fór ég í
góðan göngutúr á heiðina með hundana. Við fundum mikið
af fugli eins og reyndar í undanförnum ferðum.
Robur er að sýna áfram góða vinnu og nelgdi nokkra fallega
standa í dag. Gassi átti líka falleg móment og er að
höndla fugla á góðan máta.

Gerðu það leyfðu mér að hlaupa aðeins á eftir fuglinum..
Pleaseeeeeeee! Mynd V.Ó.
Ringó er hins
vegar á sömu bylgjulengd og mamma hans var sem unghundur.
Fer langt og kraftmikið og svolítið á eigin vegum.
Það er hins vegar gaman að vinna með hann vegna þess að
veiðigleðin er í fyrirrúmi og þegar hann er búinn að hlaupa
af sér hornin er hann að gera fína hluti.
02. september 2008
Annar íslenskur árangur í
Noregi.
Ég var að fá
af því fréttir að vorsteh hvolpur úr Goðheimaræktun frá
Rafnkeli Jónssyni hafi náð 1. einkunn á veiðiprófi í Trisil
í Noregi á síðustu helgi. Til hamingju með það Keli.
Sjá
hér.
01. september 2008
Saga með 2. einkunn.
Per Arne
Watle var í veiðiprófi með þrjá unghunda um helgina.
Tveir þeirra voru með 1. einkunn og Kaldalóns Saga með 2.
einkunn.
Ég hef ekki heyrt frá Per en úrslit í heild má finna á
heimasíðu NESK.NO.
01. september 2008
Góður túr.
Ég var í
laxveiði um helgina í Víkurá í Hrútafirði með þeim bræðrum
Gesti og Þóri Matthíassonum.
Einnig var Viktor sonur Gest með okkur. Hundarnir biðu
á hóteli á meðan.
Veiðin gekk ágætlega. Við náðum einhverju af laxi og
eitthvaða af silungi líka.
Þetta er
síðasti stangveiðitúr ársins geri ég ráð fyrir og nú er
skotveiðin fram undan.

Gestur
Matthíasson með lax í Steinakvörn. Laxinn er farinn að
sýna kviðinn.
Mynd V.Ó.

Þarna eru tveir
8 pundarar sem teknir voru á ómerktum veiðistað.
Labbinn hans Gestar, Embla smakkar á veiðinni.
29. ágúst 2008
Kaldalóns Ringó HD frír.
Ég var að fá
niðurstöðu úr mjaðmamyndunum af Ringó. Hann er HD
frír.
Þá eru tveir komnir með niðurstöðu HD frír. Byr og
Ringó.
 
Ringó Mynd V.Ó. Mynd V.Ó.
Kaldalóns Byr. Mynd Alfons.
28. ágúst 2008
Haustæfingar hafnar.
Nú eru
flestir komnir í gang með haustæfingar. Ég er búinn að fara
nokkru sinnum og hef verið að lenda í allskonar uppá komum.
Ringó er að fara allt of langt frá mér og virðist ekki alveg
vera að fatta það að hann á að vinna þetta með mér.
Ég er að sjá sömu takta í tíkinni hans Þórðar henni Skutlu.
Doppa hins vegar er í góðu sambandi við Sigþór og ég held að
Byr og Bítill gætu verið einhver staðar þarna á milli.
Þetta er alveg eftir því sem ég taldi mig hafa séð fyrir
þegar í vor þegar við hættum.
Það beygist ótrúlega snemma krókurinn hvað þetta varðar.
Ég er að
lenda í því að Ringó fer í langan leiðangur og kemur inn
eftir hálftíma þrjú korter. Ég er að vinna í þessu og
nota til þess þær aðferðir sem hafa reynst mér best.
Vera sem mest einn með einn hund og hafa sem minnst annað
til að trufla.
    
Ringó kominn með í lykt í nefið á meðan tíkin situr í
afslöppun. Fyrir framan var ein rjúpa sem hafði orðið
eftir í móanum.
    
Þó að ég hafi viljað fara sem mest einn þá er einnig
nauðsynlegt að fara í bland með öðrum. Þessi sería var
tekin á fyrstu æfingu haustsins. Þarna sannast svo
ekki verður um villst að Ringó er með gott nef. Þarna
sannast líka ýmislegt annað sem við skulum láta liggja milli
hluta af tillitsemi við hlutaðeigandi. (-: Enginn er
fullkominn........ Myndir V.Ó.
Ég er að
stýra honum með flautu, stoppa, snúa, kalla inn, vóa og
hrósa ef vel gengur. Svo er líka að láta hann finna ef ég er
óhress með eitthvað. Hendi jafnvel vatnsflöskunni í
áttina til hans...og læt hann fara strax út aftur eftir sitt
hálftíma Bjarmalandsæfintýri.
Það er ekki
leiðinn að hafa þá bara í taumi, það verður að þora að taka
áhættu og treysta hundinum til að gera eitthvað rétt.
Með tíð og tíma hefst þetta. Einn daginn nær maður að
stimpla inn rétta hluti sem hægt er að byggja á og þá er að
hrósa og sýna geðshræringu. Það er best gert í
einrúmi.
Robur er að koma fanta vel inn þetta haustið. Hann er
farinn að finna sinn skerf af fuglum aftur og er að
meðhöndla þá mjög vel. Hann hefur verið tregur reisari
en það er að lagast vona ég.
Svo er það
þriðji hundurinn minn. Sá heitir Gassi. Hann er
kominn aftur heim kallinn og hefur engu gleymt. Ég geri
fastlega ráð fyrir að ég geti notað hann á rjúpu í haust.
Það þarf ekki að segja honum tvisvar að reisa.
Nú um
helgina er Kaldalóns Saga að taka þátt í veiðiprófi í
Noregi. Það verður gaman að sjá hvernig henni gengur.
9. ágúst 2008
Alhliðapróf vorstehdeildar.
Í dag var
haldið alhliðapróf á vegum vorstehdeildar. Það var
Bergþór Antonsson sem dæmdi og alls tóku 7 hundar þátt.

Sigurvegar dagsins ásamt
dómara. Nikkí, Guðmundur, Bergþór Jón og Dímon. Mynd
Svafar.
Í UF var það Goðheima Nikkí sem var best með 1. einkunn og
Dímon var bestur í OF með 1. einkunn.

Hverjir eru bestir??????
Jón Garðar og sonur hans með verðlaun dagsins. Mynd Svafar.
Veðrið var alveg frábært í dag og allar aðstæður hinar
bestu.
Prófið var styrkt af Aflmark ehf og Robur.
27. júlí 2008
Nóg að gera í Norðurtúni.
Nú eru þeir
rauðu farnir heim og annar gestur kominn í staðin. Það
er hún Skutla hans Þórðar. Ég er að passa hana á meðan
Þórður skrapp í Breiðafjörðinn.
Guðjón sendi
mér þessa myndir af hvolpunum í fyrstu garðvinnunni. Þeir eru
greinilega með gott standeðli.
Enda ekki furða þar sem
í föðurætt má finna mjög standfasta hunda.

Það eru enn einhverjir hvolpar eftir úr þessu goti.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Guðjóni í síma
660-1926.
27. júlí 2008
Kíkt á heiðina.
Ég fór í smá
göngutúr í dag með Bergþóri Antons á Mosfellsheiðina, svona
rétt til að kanna hvort að hún væri þarna enn. Við
sáum nokkrar rjúpur en enga unga. Sáum þó eina rjúpu
sem hagaði sér þannig að eflaust hefur hún verið með unga
þarna einhverstaðar. Enn eru ca. tvær vikur í að hægt verði
að æfa á heiðinni tel ég.
Ég náði nokkrum myndum í dag og set tvær hér inn.

Kaldalóns Ringó. Mynd VÓ.

Töfra Heiða og Kaldalóns Ringó. Mynd
VÓ.
24. júlí 2008
Fjölgun í kotinu.
Það fjölgaði
nokkuð í kotinu hjá mér í vikunni. Ég tók að mér að
passa gotið hans Guðjóns félaga
míns
meðan hann brá sér til Kanarí.

Ylfa og Ringó ásamt
hvolpunum hennar Ylfu. Mynd V.Ó.
Guðjón var búinn að gera aðrar ráðstafanir varðandi pössun
en þau plön brugðust á síðustu stundu.
Það vill til að það er ekki langt síðan ég var með svona
kríli í kassa þannig að þetta er ekki að vefjast mikið fyrir
mér.
Þetta er einn
kallhundurinn úr gotinu. Mynd V.Ó.
Það eru allir fjölskyldumeðlimir að hjálpa mér við þetta
þannig að þetta vinnst létt.
Það fer ekki mikið fyrir þessum hvolpum, þeir eru afsaplega
ljúfir og góðir.
Ég er búinn að taka ástfóstri við einn. Ef ég væri
bara með einn hund í dag þá er það ekki spurning að ég mundi
halda honum eftir.
20. júlí 2008
Snjófjalla Dís orðin
veiðimeistari.
Óli
finnski, eigandi enski setter tíkarinnar Snjófalla Dísar,
fékk á því staðfestingu í síðustu viku frá HRFÍ að Dís
uppfyllti öll þau skilyrði sem félagið setur til þess að
öðalst íslenskan veiðimeistaratitil.

Óli finnski og
Draumadísin á góðri stundu. Mynd V.Ó.
Snjófjalla Dís er fyrsta enks setter tíkin á landinu sem
öðlast þennan titil.
Ég vil óska Óla innilega til hamingju með þetta.
15. júlí 2008
Kaldalóns Byr fer til nýs
eiganda.
Ég hef verið að
vinna í því að finna nýtt heimili fyrir Kaldalóns Byr sem
hann Magnús Gunnlaugsson hefur verið með. Aðstæður
hafa breyst mikið hjá Magga og því töldum við best að fara
þessa leið þar sem framundan er krítískur tími í þjálfun
þessa hunds.

Kaldalóns Byr á standi á væng.
Mynd V.Ó.
Ég er búinn að vera með Byr hér hjá mér í rúma viku og er
sannfærður um að þetta sé flott efni. Hann er mikill
karakter og hvers manns hugljúfi. Hann mætti vera
massaðri en það kemur í haust.
Það er nú frágengið að hann fer til Eiðs Gísla Guðmundssonar
frá Lindarbrekku í Berufirði. Hjá Eiði mun þessi
hundur fá mikla veiðimöguleika.
01. júlí 2008
Hvolparnir dafna vel hjá Ylfu.
Ég fékk senda
mynd af hvolpunum hennar Ylfu hans Guðjóns félaga míns í
gær.
Hún gaut 6 hraustum tilvonandi veiðimaskinum fyrir 3 vikum.
Það voru 2 tíkur og 4 hundar.
Ylfa er undan Gassa sem ég átti og Eðal Bólel sem voru bæði
mjög góðir veiðihundar.

Þarna eru hvolparnir í góða veðrinu í
gær. Mynd
Guðjón.
Á bak við Gassa voru Auður og
Ari sem voru af margreyndum norskum veiðilínum.
Faðir hvolpana er Helguhlíðar Garpur.
Ylfa er með 1. eink. á sýningu og
nokkrar á veiðiprófi en Garpur er ósýndur og ekki
veiðiprófaður en undan mjög góðri tík, Kvikneskogen´s Spörtu
og er albróðir Helguhlíðar Skottu. Þær mæðgurnar voru í öðru
og þriðja sæti yfir stigahæðstu hunda Fuglahundadeildar í
fyrra.
Bæði eru þau H.D. frí og augnskoðuð. Þetta ætti að
vera áhugavert fyrir þá sem hafa hug á að fá sér írskan
setter sem veiðihund.
Upplýsingar fást í síma 660-1926.
Guðjón Sig Arinbj.
25. júní 2008
Aðstöðustýrðar æfingar.
Ég er búinn að
fara í nokkur skipti hér niður á tún í júní í þeim tilgangi
að reyna að þjálfa hundana í sóknarvinnu. Ég hef
oftast þurft frá að hverfa vegna þess að það er óvenju mikið
fuglalíf á túninu og við tjörnina þetta sumarið.
Ég hef því þurft að breyta sæki æfingunni í hlíðniæfingu og
hef látið þá sitja á endanum og horfa á fuglalífið allt í
kring. Það er ekki auðvelt fyrir fuglahund að sitja á
endanum í miðri fuglaparadís.
Nú eru gæsirnar og endurnar með unga á túninu og algjör
ógjörningur að sleppa hundunum lausum eitt augnablik.
Þegar svona er ástatt er ekkert að gera gera annað en nýta
sér aðstæðurnar og æfa hundana í að vera yfirvegaðir á hæl í
taumnum. Ef við flössuðum upp hrossagauk eða önd lét
ég þá setjast á endann.
Á íþróttamáli væri þetta kallað "aðstöðustýrðar æfingar".
Ég er búinn að
panta mjaðmamyndatöku fyrir Ringó. Hann fer í myndatöku í
byrjun næsta mánaðar.
16. júní 2008
Vatnsdalurinn.
Undanfarin 8 ár
hef ég farið í silungsveiði með góðum félögum í Vatnsdalinn.
Veiði hefur verið misjöfn og veður oft spilað stóra rullu.
Við höfum yfirleitt verið við veiðar í þrjá daga og alltaf
verið á sama tíma í endaðan maí eða byrjun júní.
Í ár voru skilyrði þokkaleg og veiði ágæt. Þó var litað vatn
að gera okkur lífið leitt en þeir sem voru sniðugir sáu við
því með því að vera á réttum stöðum miðað við vindátt hverju
sinni.

Veiði fyrstu vaktarinnar hjá okkur
félögunum var 15 fiskar teknir á
Lyppu, Dam spinnera og eitthvað var verið að sveifla
flugustöng líka.
Þegar við vorum búnir að taka þessa mynd kom í ljós að einn
tittur
hafði gleymst í fjörunni. Mynd Hilmar.
Veiðifélagi minn
þessi ár hefur verið nágranni minn og góður félagi Hilmar
Þórarinsson. Hann hefur kennt mér allt sem ég kann um
Vatnsdalsá enda hefur hann farið til veiða þarna mun lengur
en ég eða í 13 ár.

Hundarnir voru með í för. Þarna lætur
Robur fara vel um sig í sandinum og fylgist vel með
fuglalífinu. Mynd Hilmar.
14. júní 2008
Góðar
fréttir.
Ég hef
verið að reyna að vinna í sækivinnu með hundana mína að
undanförnu. Það er að ganga ágætlega.
Mikið
fuglalíf á túninu mínu er þó að gera mér erfitt fyrir.
Það er þá um að gera að nota sér aðstæðurnar
og æfa hlíðni
við þessar erfiðu aðstæður.

Kaldalóns Byr.
Mynd Alfons.
Ég var að fá þær fréttir að Kaldalóns Byr er HD frír A á
mjöðm og olnboga. Til lukku með það Maggi.
Ég er alveg svakalega ánægður með þenna áfanga.
Annar eigandi
Kaldalóns hvolps var að útskrifast með mastergráðu frá
Háskóla Íslands í dag.
Til hamingju Þórður
Kristjánsson.
3. júní 2008
Sumarið er tíminn.
Það er
búið að vera mikið að gera hjá mér að undanförnu og
áhugamálin setið á hakanum. Ég hef þó verið að vinna í
garðvinnu með báða hundana þegar tækifæri gefast.
Það er að koma vel í ljós að sá litli ætlar að vera
hörku góður sækir. Garðurinn er ekki lengur að
bjóða upp á nógu flókin verkefni fyrir hann.
Það er gaman að geta þess að við erum að slá öll fyrri
met í fóðursölu og á miðvikudaginn erum við að fá til
landsins stærstu sendingu frá upphafi.
Við höfum
að undanförnu verið að bæta á okkur stórum hópi
viðskiptavina sem áður voru að nota Lone Star fóðrið.
Það var mikil áskorun fyrir okkur að taka þetta verkefni
að okkur og ekki ráðist á garðinn þar sem hann er
lægstur. Lone Star fóðrið hefur þótt vera í háum
gæðaflokki en erfiðleikar í samskiptum við byrgja ollu
því að innflytjandinn ákvað að hætta.
Það er ánægjulegt að segja frá því að við höfum verið að
fá mjög góð viðbrögð frá þessum vandláta hópi
hundaeigenda sem áður notaði Lone Star.
Því miður hefur verðbólgan verið að stríða okkur aðeins
að undanförnu og við þurft að hækka verðið aðeins.
En vonandi dregur fljótt úr þessu aftur.
Við höfum alltaf kappkostað að vera vel samkeppnisfærir
í verðum og höldum allri yfirbyggingu í lágmarki.
Við erum
að bjóða upp á heimkeyrslu án aukagjalds og stöðugt
fleiri viðskiptavinir nýta sér þá þjónustu.
13. maí 2008
Hópæfing hjá Kaldalóns.
Ég hitti
þrjá eigendur hvolpa frá mér upp á heiði í gær
mánudag. Það voru þeir Þórður með Skutlu, Sigþór
með Doppu og Jörgen með Bítil.

Jörgen, Bítill, Sigþór, Ringó,
Þórður, Skutla og Doppa . Mynd V.Ó.
Við vorum
mjög heppnir með allar aðstæður. Mikið af fugli og
hann fór stutt. Við leiddum upp í nokkra standa og
létum þá reisa.
Vorið er komið í allri sinni dýrð með lóukvaki og velli
spóa. Algjör forréttindi að fá að eyða tíma á
heiðinni.
11. maí 2008
Klúbbur enska setans að komast á flot.
Fyrir
nokkru síðan gerði ég tilraun til að fá ensk setter menn
til að endurvekja ensk setter klúbbinn. Á þeim
tíma skynjaði ég stöðuna svo að ég hefði ekki slagkraft
til að halda þessu til streitu. Allar helstu
kanónurnar voru á móti þessu og mættu ekki á umræðufund
um þessi mál. Nú er svo komið að flestir þeirra
hafa skipt um skoðun og við erum komnir á beina braut
með stofnun þessa klúbbs.
Helsta driffjöðurinn í þessari seinni bylgju vinnu hefur
verið Friðvin Guðmundsson fyrverandi formaður DESÍ.
Þegar hann setti sig í samband við mig og ræddi þessi
mál fagnaði ég stuðningnum og hvatti hann til að halda
áfram að tala við menn. Svo virðist vera að margir
beri nokkra virðingu fyrir Friðvin og því bara gott mál
að hann fór í þetta með krafti.

Húsavíkur Óðinn og fálkasystir.
Enn eitt meistaraverkið frá Oddi Örvari.
Hjalti
Ragnarsson fór í að útbúa heimasíðu fyrir klúbbinn og er
hún komin á flot á slóðinni
www.englishsetter.is.
Í þessari
forvinnu hefur andi friðarins svifið yfir vötnum og
enginn verið að frekjast í eitt eða neitt.
Ég hefði viljað biðja þá sem hafa hugsað sér að koma inn
í þetta starf að hafa það hugfast að svona vinna getur
einungis tekist ef allir koma að þessu borði af hógværð
og kurteisi.
Ég skynja
stöðuna þannig að klúbburinn verði stofnaður formlega á
næstu dögum og allir þeir sem vilja gerast stofnfélagar
eru hvattir til að fylgjast með og mæta á stofnfund
klúbbsins.
10. maí 2008
Mikið af fugli meðfram veginum á Mosó.
Ég fór á
heiðina með Óla Gordon í dag og náðum við mörgum flottum
fuglavinnum. Við vorum með unghundana í bandi og
það gekk fínt. Það var mikill munur á fyrstu
fuglavinnunni og þeirri síðustu. Í síðustu vinnum
dagsins var komin viðunandi ró við uppflugið og þeir
settust báðir við sitskipun.
Ég tók
nokkrar myndir og set sýnishorn hér inn.
 
 
8. maí 2008
Flottar myndir af ungviðinu.
Ég hef
verið að fá myndir af hvolpunum að undanförnu.
Þessir hundar eru að þroskast mjög vel og rétt. Ég
hef þó haft svolitlar áhyggjur af Skutlu. Hún er
frekar smá en ótrúlega veiðiglöð. Ég fór með Þórði
upp á heiði um daginn og byrjaði á að tína Robur.
Hann fannst svo við bílinn þegar ég kom til baka.
 
Skutla, smá en kná á standi í skorning.
Skutla með fugl í sjónmáli. Myndir Tok.
Skutla
fékk fullt af fuglavinnum í spottanum og er að taka
miklum framförum þessa dagana.
 
Doppa á fallegum standi á heiðinni.
Doppa með tvo fugla í nefinu. Myndir Sigþór.
Sigþór
hefur verið afar duglegur að fara að undanförnu og náð
nokkrum stöndum. Hann hefur þó verið mest að leiða
upp í fugla.
 
Byr á fartinu.
Byr á standi skammt frá Ólafsvík. Myndir Alfons.
Maggi hefur verið að láta reyna á Byr að undanförnu og
fékk góðan ljósmyndara til að rölta með sér um daginn.
Afraksturinn má sjá á heimasíðu hans.
http://tinnubyr.dyraland.is/
8. maí 2008
Gengur
vel með fyrmað.
Ég hef
verið afar upptekinn að undanförnu í því að koma
fyrirtækini okkar á lappirnar. Við erum búnir að
stækka viðskiptavina hópinn mikið undanfarna daga og
vonandi heldur hópurinn áfram að stækka en meir.
Við ætlum að reyna að vera áfram með lýsið á boðstólum
og sending af því er væntanleg í hús á morgun.
Þeir sem hafa prufað þetta eru mjög ánægðir með þetta og
vilja endilega að við höldum þessu áfram.
Við erum að bjóða upp á heimkeyrslu á hverjum þriðjudegi
og er það að falla í góðan jarðveg.
Ef þú hefur áhuga á að prufa Robur fóðrið þá sendu okkur
línu og við skutlum til þín poka af því fóðri sem hentar
þínum hundi.
30. apríl 2008
Tímamótahundur?
Það er ekki laust við að einn
hundur hafi vakið athyggli mína að undanförnu. Það er
Vatnsenda Vera. Ég hef ekki orðið þess heiðurs
aðnjótandi að sjá hana í þessum vorprófum en þessi
árangur sem hún er að ná er sannarlega
eftirtektarverður.

Vatnsenda Vera. Mynd Ásgeir Heiðar.
Hún er komin með fjórar 1.
einkunnir og þar af tvær með heiðursprís. Hún á
enn eftir nokkra möguleika á að slá ríkjandi met í UF
sem er fimm sinnum 1. einkunn.
Já e.t.v. verður þessi tík tímamótahundur.
30. apríl 2008
Ýmir
HD frír.
Ég var að fá af því fréttir að
gordon setinn hans Óla gordon, Finnvolas Ýmir hafi verið
greindur HD frír í annari tilraun.
Fyrri tilraunin kom út í C mjöðmum þannig að þetta eru
aldeilins góðar fréttir fyrir Óla og aðra unnendur
gordon seta og veiðihunda almennt.
Óli paraði tíkina sína með þessum hundi á meðan hann var
að bíða eftir niðurstöðu úr myndatökunni.

Óli og Embla. Mynd V.Ó.
Þegar þær fréttir bárust út að
þessi hundur hefði greinst með C mjaðmir lagðist hver
undir annan að rakka þetta niður hjá honum. Ég var
hins vegar í þeim fámenna hópi sem hélt hlífiskyldi yfir
Óla.
Ef ég væri í sporum Óla mundi ég mynda sem flesta hvolpa
og fá niðurstöðu nú þegar þeir verða um árs gamlir. Ef
ekkert óvenjulegt kemur í ljós mundi ég hiklaust para
tíkina aftur með þessum hundi um næstu áramót.
28. apríl 2008
Húsavíkur Óðinn að verða heimsfrægur.
Ég var að fá af því fréttir að
mynd af Húsavíkur Óðni prýðir forsíðu á ítölsku
veiðitímariti þennan mánuðinn.
Það er Oddur Örvar Magnússon á Húsavík sem tók myndina.

Forsíða tímaritsins.
Þetta er mikill heiður fyrir
eigandann á tvennan hátt. Í fyrsta lagi mikil
viðurkenning á hæfni ljósmyndarans. Í öðru lagi
viðurkenning á hæfni hundsins sem er að sækja nýskotna
gæs.

Inn í blaðinu er umfjöllun um
veiðar á Íslandi og fleiri myndir teknar af Oddi og
fleirum.
Ég vil óska Oddi til hamingju með þetta.
27. apríl 2008
Góð
helgi hjá Óla finnska.
Í prófi nú um helgina náði
Snjófjalla Dís 1. sæti í Keppnisflokki. Þar með getur
hún orðið veiðimeistari.
.jpg)
Óli með eitthvað af sínum hundum. Sennilega Saco
fremstur og Dís fjær. mynd V.Ó.
Ég vil óska Óla til hamingju
með þennan áfanga.
22. apríl 2008
Nýr fuglahundadómari.
Þær fréttir voru að berast að
Egill Bergmann er nú orðinn fuglahundadómari.
Egill hefur langa reynslu af fuglahundum og hefur átt
írska seta og nú síðast pointer. Hann hefur veitt
mikið með hundum og er með mjög góðan bakgrunn til að
dæma fuglahunda.

Egill Bergmann og Margrét
Kjartansdóttir. Mynd V.Ó.
Egill hefur verið virkur í öllu
starfi fuglahundamanna og kona hans Margrét
Kjartansdóttir einnig.
Ég vil óska Agli til hamingju með prófið.
16. apríl 2008
Aflmark ehf.
Í dag hætti ég að vinna hjá
Viðskiptahúsinu. Ég er að fara að vinna í eigin
fyrirtæki sem hlotið hefur nafnið Aflmark ehf.
Fóðrið mun verða selt í gegnum þetta fyrma í
framtíðinni.
Ég er að spá í að vera að dunda mér í einhverri
kvótamiðlun með því og verður sú miðlun í gegnum þetta
fyrirtæki.
Næstu daga verð ég að vinna í að skapa mér aðstöðu til
að þetta verði hægt.
16. apríl 2008
Þau
eiga afmæli í dag.
Í dag eru hvolparnir mínir eins
árs gamlir. Til hamingju með það.
14. apríl 2008
Mónan
í Ringó.
Ég er búinn að hósta frá mér allt
vit í dag og er ekkert að skána. Góður kunningi kom í
gær úr Ólafsvík með coniac pela og má segja að það hafi
bjargað því sem bjargað varð. Röddinn er vægast
sagt slæm. Ég fór þó með hundana
skamma stund út í garð í dag og lék með væng á
veiðistöng. Ég hef ekki gert mikið af þessu vegna
þess að mér hefur ekki fundist að þetta væri að skila
nokkru í þessum hundi.
En í dag sá ég takta í Ringó sem
eru svo klárlega úr Mónu og hann var að veiða með öllum
skrokknum. Gefst aldrei upp og nær árangri. Þetta
er það sem kaninn kallar "Clever dog".

Kaldalóns Ringó á góðri stund á heiðinni.
Mynd V.Ó.
Það er að vakna þvílíkt
veiðieðli í þessum hvolpi og óbilandi áhugi. Hann
er stundum eins og snýttur út úr mömmu sinni blessaður
og verð ég að segja að það skelfir mig á nokkurn hátt en
gleður mig þó líka.
13. apríl 2008
Amicola orðin léttari.
Ég var að fá þær fréttir að ES
Francini's Amicola væri búin að gjóta. Ég hef ekki
nákvæmar fréttir af þessu en í það minnsta fjórir
hvolpar voru á lífi en eitthvað mun hafa drepist.
Þarna eru príðisgóð gen á ferðinni og klárt að hægt er
að gera góða veiðihunda úr þessu.
Ég vil óska eigendum til hamingju með þetta.
13. apríl 2008
Teitur
orðinn þrefaldur meistari.
Nú um helgina var haldið veiðipróf
á vegum FHD. Rugdelias Teitur náði þar að vinna
keppnisflokk og fékk auk þess 1. einkunn í opnum flokki.
Með þessum árangri náði hann því að verða íslenskur
veiðimeistari. Hann er auk þess íslenskur og
alþjóðlegur sýningameistar. Teitur er fyrsti
kallhundurinn á Íslandi sem fær þrjá titla í grúbbu 7. Ég vil
óska eigendum Teits til hamingju.
Ef ég skil ófullkominn
fréttaflutning af prófinu rétt er Vatnsenda Nóra einnig
að ná þessum titli nú um helgina. Til lukku með
það Ásgeir Heiðar.
Þess má geta að tvær
pointertíkur aðrar frá Ásgeir hafa þessum árangri líka. Það eru
ISVCH INTUCH ISCH JoKells Mysa (Nella) og ISVCH INTUCH
ISCH Karacanis Donna.

Kjartan með Teit. Mynd Gréta.
30. mars. 2008
Saga
með 2. einkunn í gær.
Per Arne Watle er að gera það gott
með unghundana sína. Hann tók þátt í prófi hjá
Agder fuglahundaklubbnum í Hovden um helgina og náði 1.
einkunn UF á Hågakollens Dina og 2. einkunn á Kaldalóns
Sögu.
Það er gaman að sjá að þetta er að gera sig hjá honum.

Við nánari skoðun á þessu prófi
fann ég út að hálfsystir Roburs var að taka þessa prufu
í keppnisflokki. Þessi tík er í eigu Jan Telhaug
og er undan sömu tík og Robur. Til lukku Jan.
Sjá hér:
29. mars. 2008
Fyrsti
standurinn.
Í dag upplifði ég fyrsta
sjálfstæða standinn hjá Ringó þar sem sannalega var fugl
fyrir framan hann. Ég náði að festa atvikið á
filmu en gengur eitthvað erfiðlega að koma því inn á
vefinn.
Á meðan ég var að koma mér á staðinn létti fuglinn og
hundurinn breikaði eins og nokkrir í prófinu í dag.
Hann fór þó ekki langt og fékk
gott knús þegar hann kom inn.
29. mars. 2008
Fundur
áhugafólks um enska setann.
Í kvöld var haldinn fundur um
málefni enska setans.Á
fundinn komu 8 manns og ræddu stöðu ES hér á landi.
Síðasti formaður DESÍ var þar á meðal og kann ég honum
bestu þakkir fyrir að mæta.
Ég held að fundarmenn hafi
allir verið sammál um að staða okkar tegundar hafi
veikst eftir að við fórum inn í FHD. Hún hefur ekki
styrkst.
Niðurstaða fundarins og
meirihluta þeirra sem hafa tjáð sig um það við mig í
mailum og öðrum skeytum í dag, var sú að mæla með því að
starfa áfram innan FHD enn um sinn en hefja starf á
okkar vegum til að kynna okkar stofn. Liður í því væri
að setja upp heimasíðu um enska setann og bauð ég mig
fram í það eftir að allir aðrir höfðu afþakkað það verk.
Þar væri okkar málefni kynnt
eins vel og kostur væri.
Þá var stungið upp á því á
þessum fundi að tengiliður notaði heimasíðuna til að
koma upplýsingum til okkar fólks og frá okkar fólki
líka. Hlutverk tengiliðs er meðal annars að boða svona
fundi þegar ástæða er til eða t.d. að boða menn í
sameiginlegar göngur þar sem málin yrðu rædd.
Að sinni verður því ekki af því að endurvekja DESÍ sem
ræktunardeild. Við sem viljum það höfum einfaldlega ekki
slagkraft í það.

Sigþór Bragason. Mynd V.Ó.
Ekki fékkst svar við því á
þessum fundi hverjir væru á leið út úr stjórn FHD. Alla
vega einn er á leið út við stofnum vorsteh deildar.
Fundurinn stakk upp á að mæla með Sigþóri Bragasyni til
stjórnarkjörs og tók hann þeirri áskorun vel.
Ljóst var á þessum fundi að það
er öllum hollt að setjast niður og ræða málin sem
oftast.
Nú bíðum við bara eftir að
fundur verði haldinn í FHD þar sem þeir sem vilja geta
sagt skoðun sína á því starfi sem fór fram á síðasta
starfsári. Það var ekki allt slæmt.
28. mars. 2008
Svar
frá formanni HRFÍ.
Ég sendi
fyrirspurn til formanns HRFÍ þess efnis hvort að hún
teldi það mögulegt að endurvekja DESÍ.
Formaðurinn sendi mér skeyti í dag sem ég túlka á þann
veg að okkur sé þetta opin leið ef menn kjósa svo.
Bréf hennar er samantekt á þeim reglugerðum sem snúa að
málinu og má þar meðal annars finna þetta:
Úr lögum HRFÍ:
VII. Ræktunardeildir
23. Félagsfundur HRFÍ getur lagt niður ræktunardeild ef:
a) Ræktunardeild fer skriflega fram á það.
b) Ræktunardeild sinnir ekki lögboðinni starfsemi vegna
lítillar virkni og fárra meðlima að mati stjórnar HRFÍ.
c) Ræktunardeild hefur ekki staðið við skyldur sínar
skv. lögum og reglum HRFÍ.
Áður en félagsfundur tekur til afgreiðslu tillögu um að
ræktunardeild skuli lögð niður, skulu forsvarsmenn
hennar fá tækifæri til að tjá sig um málið. Til þess að
leggja niður ræktunardeild, þarf 2/3 hluta atkvæða á
félagsfundi.
Þegar FHD
var stofnuð var DESÍ aldrei lögð niður með formlegum
hætti. Ég sem stjórnarmaður var aldrei spurður
álits. Ég lít svo á að því sé ekkert annað að
gera, ef fundarmenn kjósa svo í kvöld að halda áfram að
vinna í DESÍ.
Enginn
þeirra sem ekki mætir á fundinn getur haft áhrif á þá
ákvörðun sem fundurinn tekur. Það er því um að gera að mæta og segja
sína skoðun.
25. mars. 2008
Fundur
um málefni enska setans.
Nú er enn
eitt starfsárið að líða án þess að við eigendur enskra
seta höfum verið boðaðir á spjallfund um mál okkar
tegundar.
Ekkert upplýsingaflæði hefur verið í gangi til okkar frá
tengilið eða öðrum um mál okkar tegundar síðan DESÍ var
lagt niður.
Mér finnst að
kominn sé tími til að við setjumst niður og förum yfir
stöðu okkar nú eftir að það er ljóst að vorsteh eigendur
eru að fara úr FHD. Það er ekki sjálfgefið að við
höldum áfram á sömu braut við þessi tíðindi.

Kaldalóns Ringó með storminn í fangið. Þó að ég
segi sjálfur frá, verðugur fulltrúi sinnar tegundar.
Mynd V.Ó.
Ég hefði
viljað boða til spjallfundar með eigendum enskra seta á
næstkomandi föstudag 28. mars kl. 20.00 stundvíslega að
Skúlagötu 17, Viðskiptahúsinu. Við hliðina á Aktu –
taktu.
Við þurfum að
skiptast á skoðunum um okkar stöðu og kanna hug manna.
Endilega komið þessum boðum til þeirra sem eiga enska
seta. Reynt verður að koma upp símasambandi við þá
sem eru á landsbyggðinni.
Þá þurfið þið að senda mér mail eða hringja í 861-0110
og ég kem sambandi á.
Fundarefni:
Staðan í
málum fuglahundadeildar.
Staðan í ræktunarmálum. Hvaða möguleikar eru
framundan.
Eigum við að sameinast um fulltrúa í stjórn FHD eða
eigum við að fara þaðan út.
Tilnefning nýs tengiliðs ef þarf.
Skipan undirbúningsnefndar um endurvakningu DESÍ ef
það verður niðurstaðan.
Með von um
góða mætingu.
Vilhjálmur
Ólafsson
24. mars. 2008
Fuglar
á fugla ofan.
Ég er búinn
að fara tvisvar nú um páskana upp á svokallaðan línuveg ofan
við Gljúfrastein. Ég hef verið að finna nokkra fugla
þarna með Robur og fengið alveg dæmalaust fínar fuglavinnur
í sumum tilfellum. Ég hef svo leitt hvolpinn upp í
þetta og er að reyna að tengja þetta saman. Ég sé
mikinn mun milli daga og hvolpurinn er að hrúa inn reynslu.
Ég er búinn að fara með eigendum hinna hvolpanna nokkrum
sinnum að undanförnu og er að sjá hraða þróun hjá þeim líka.
Doppa var með í dag og hún er að smella inn í að leita vel.
Það hefur hjálpað að láta hana hlaupa með öðrum hundi.
Ég er búinn
að fá það staðfest að Saga er ekki búin að fara í annað próf
en þetta fyrsta, þar sem hún fékk 1. einkunn. Per
komst ekki á Andoy prófið. Hann er búinn að vera að
æfa vel um páskana og stefnir á fleiri próf á næstunni.
Ég var að fá
af því fregnir að búið væri að fá leyfi stjórnar HRFÍ fyrir
frestun á ársfundi FHD þangað til búið væri að stofna vorsteh
deild og þeir í raun farnir úr FHD. Samkvæmt reglum um
ræktunardeildir ber að halda fundinn í mars ár hvert.
Þar sem vorsteh menn eru nú að stofna deild um sína tegund
eru eigendur seta og pointera uggandi um sinn hag og vilja
fá að ráða sínum málum sjálfir.
Mér finnst þetta ekki óeðlilegt í ljósi þeirrar staðreyndar
að vorsteh-menn eru á leið úr þessum samtökum. Þá tel
ég að þeir eigi ekki að koma að skipun stjórnar FHD til
komandi ára. Ég er hins vegar ekki sáttur við að
fundinum sé frestað. Mér er spurn hvort að fresta eigi
fundinum fram yfir aðalfund HRFÍ þar sem stofnun vorsteh
deildar verður að líkindum samþykkt. Það mun ég ekki
samþykkja þegjandi.
Það hefði átt að láta það nægja að senda vorsteh eigendum
bréf og óska þeim velfarnaðar í sínu starfi, óska eftir góðu
samstarfi á komandi árum og fara fram á það við þá að þeir
sætu heima þegar við hinir skipuðum okkur stjórn til komandi
ára. Þeir hefðu án efa orðið við þeirri beiðni.
Ég mun sakna
þeirra vorsteh manna úr þessu starfi en ekki mun ég sakna
þess fólks sem mætti á síðasta ársfund og hefur aldrei mætt
í veiðipróf. Það verður varla staðið í þesslags smölun
aftur. Eða hvað?
21. mars. 2008
Pælingar á pasion.
Það hafa ekki
gefist margar stundir fyrir mig til að æfa hundana á þessari
vertíð og engin plön verið gerð varðandi próf á þessari önn.
Ég hef þó ekki vanrækt hundana algjörlega. Í gær fór
ég á heiðina og byrjaði með að lenda í hálfgerðu kapphlaupi
um fugl við ákafan hundaþjálfara sem var á heimleið.
Ég hörfaði undan og gaf þetta eftir, enda sá hinn fuglinn
fyrst. Hann er auk þess eldri og frekari. Og hundarnir
hans þurftu meir á þessu að halda.
Ég fór svo
lengra inn á heiðina og fann fyrsta fugl þrjá metra frá
bílnum. Robur fann svo tvo aðra fugla og notaði ég þá
til að leiða Ringó upp í standinn.
Ringó á það til að gera það sem mamma hans var vön að gera
að kúvenda á annan kanntinn. Ég þarf að vinna í því að
laga það ef það verður hægt. Það er gert með því að
ganga upp í vind og beina honum áfram og upp í vind
handvirkt nánast. Stoppa ef hann kúvendir en hrósa ef
hann gerir rétt. Þolinmæði er dyggð hundaþjálfarans.
Ég sá á síðu
FHD að nú á að fara að skrá árangra fuglahunda á heimasíðu
klúbbsins. Hvað eru komin mörg ár síðan ég setti grunn
af þessu inn á FHD síðuna og uppskar leiðindi fyrir?
Sennilega þrjú ár. En nú er þetta orðið í lagi.
Sennilega af því að það er einhver annar en ég sem stingur
upp á því. Jæja, batnandi mönnum er best að lifa.
Vonandi að það verði sátt um þetta núna. Alltént fagna
ég þessu.
Eins og gefur
að skilja hefur svona góður snjóavetur haldið mér uppteknum
í Bláfjöllum og jökulinn þar uppi er ekki nothæfur til að
þjálfa fuglahunda enn þá. Hvað sem síðar verður.

Vilhjálmur Ólafsson á fullu
blasti. Mynd ÍR.
Ég hef tekið
hraustlega á því í vetur og hef sjaldan verið í betra formi
skíðalega séð. Á þessari mynd sem tekin var á síðasta
sunnudag má sá að það er ekkert verið að læðast fram hjá
stöngunum. Þarna er kallinn með köntun, A-form á hné
og í flottri brunstöðu.
Ég hef alveg svakalega gaman af að etja kappi við
æfingakrakkana og þjálfarana og slæ hvergi af þó að árin
færist yfir.
Dóttir mín hafði mig í stórsvigi en ég hafði hana í svigi á
innanfélagsmóti ÍR. Mér finnst frekar líklegt að hún
hafi mig í báðum greinum næsta vetur.
20. mars. 2008
Sagan skráð í fleiri próf.
Ég hef séð
nafn Sögu skráð á fleiri próf í Noregi en ekki engið
staðfest hver árangur hennar hefur verið. Hún var
skráð í Andoy prófið en ég sé hana ekki á lista yfir úrslit.
Ég gæti ímyndað mér að Per hafi einhverra hluta vegna hætt
við þátttöku.
Ég læt inn fréttir af því um leið og þær berast.
9. mars. 2008
Kaldalóns Saga með 1. einkunn á Rjukan prófinu.
Ég var að
lesa það á Nesk síðunni að hún Kaldalóns Saga sem ég sendi
til Noregs var á veiðiprófi um helgina. Hún fékk 1.
einkunn
tutlan sú arna.

Kaldalóns Saga. Mynd
V.Ó.
Mikið
svakalega er ég glaður með það. Ég er ekki búinn að
heyra í Per enn þá en ég á von á að hann hringi í mig til að
segja mér af þessu.
9. mars. 2008
Æfingardagur í blíðunni.
Í dag fór ég
ásamt Magga Gunnlaugs, konu hans Siggu og Sigþóri Bragasyni
í æfingagöngu í blíðunni. Færið var frekar þungt en
hundarnir voru þó að vinna ágætlega.

Doppa á standi á væng.
Mynd Sigþór.
Einn fugl
sást á lofti hjá Ringó og tókst að stoppa hann við uppflugið
án þess að gengdarlaust elt fylgdi í kjölfarið.
Þetta var bara ánægjulegt og vonandi að fleiri slíkir dagar
fylgi í kjölfarið.

Maggi með Byr. Mynd
Sigga.
24. feb. 2008
Góð
helgi að baki.
Það var
frábært veður í Bláfjöllum í dag
Í dag var
keppt í svigi í við kjör aðstæður. Eftir fyrri ferð var
Fanney með bestan tíma en hún var með rásnúmer 2. Helga
með rásnúmer 14 var með annan besta tíma. Í seinni ferð
datt Fanney en Helga keyrði mjög vel og vann. Hún
þurfti reyndar að fara aftur upp vegna þess að ekki
náðist tími af henni í fyrstu tilraun. Hún varð því síðust keppenda
niður í seinni ferð en náði samt besta tíma í nokkuð
grafinni braut. Hún stóð sig mjög vel.

Helga María og Þórir á góðum degi í
Bláfjöllum. Mynd V.Ó.
Þórir kom sá og sigraði í sínum
flokki í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er á
palli í svona stóru móti og óhætt að segja að æfingarnar
í Noregi hafi gert honum gott.
Ég hef sjaldan séð eins
einlægt bros á barni eins og á honum á palli í dag.
23. feb. 2008
Æfingarbúðirnar skila árangri.
Í dag var haldið stórsvigsmót í Bláfjöllum
og var Helga að taka þátt. Hún vann í sínum flokki og
Fanney Rún var í öðru sæti.
Þórir varð í fjórða sæti í sínum flokki. Það má því
segja að æfingarnar hafi skilað sér vel í dag.

Fanney V.Ó. og Helga.
Mynd Birna.
Það er eins með þetta sport og
hundasportið að ef maður æfir vel þá kemur árangurinn í
ljós. Á morgun verður keppt í svigi. Þá reynir
vel á þær stöllur.
23. feb. 2008
Fékk
ekki úthlutað.
Ég var að fá senda meldingu frá UST.
Ég sótti um að fá að veiða hreindýr en það verður ekki
úr því á þessu ári sýnist mér.
Skeytið hljóðar svo.
Dregið var úr innsendum umsóknum um hreindýraveiðileyfi
þann 23. febrúar sl. Fjöldi leyfa var 1.333 og
fullgildar umsóknir sem bárust voru 3.038. Af þeim fengu
1.333 úthlutað dýri í fyrstu umferð.
Því miður
fékkst þú ekki úthlutað dýri í fyrstu tilraun. Af þeim
sem sóttu um hreintarfi á svæði 7 varst þú númer 235 en kvótinn var 70 dýr. Þetta þýðir að 164 eru á undan
þér í röðinni.
21. feb. 2008
Kominn
heim aftur.
Nú er ég kominn til baka eftir frekar
erfiðan túr til Noregs. Ég var með þrjá 12 ára
krakka í æfingabúðum með Bærums skiklubb frá Oslo.
Þetta er einn besti skíðaklúbbur Noregs og státar af
tveimur Ól-meisturum, þeim Hans Petter Buraas og Lasse
Kjus ef ég man rétt.

Ferðalangarnir, Þórir Ingólfsson úr Ármanni, fararstj. Helga
María og Fanney Rún Jónsdóttir úr ÍR. Mynd Ingólfur.
Ég hafði ekki nokkurn tíma til að sinna
örðu en þessum þremur efnilegu krökkum. Við lentum í
því að tvær töskur skiluðu sér ekki á bandið í Oslo.
Það reyndi því verulega á fararstjórann að redda nýjum
útbúnaði.

Helga í láns galla frá Bærums skiklubb, með leiguskó á fótum
og leiguhjálm á höfði. Mynd V.Ó.
Spennandi got í vændum.
Ég var að frétta að það væri búið að para
ES Francinis Amicolu aftur með Ablosi. Þetta er
eitthvað sem er verulega þess virði að teigja sig eftir.
Ef menn eru að leita að alvöru veiðihundum þá er ekki eftir
neinu að bíða að setja sig í samband við Kristinn Einarsson
í síma 696 3522. Veiðihundar fást ekkert úr betri
efnivið en þetta.
7. feb. 2008
Á leið
til Noregs.
Í næstu viku fer ég til Noregs með Helgu
í æfingabúðir. Við verðum við æfingar í bæ sem
heitir Ål og er ekki langt frá Geilo.
Ætlunin er að vera með Bærum Skiklubb á æfingum í 4
daga.
Það er stórt veiðipróf á sömu helgi í Rjukan. Það
er svona 4 tíma akstur á milli. Það væri freistandi að
kíkja á það en ég hef ekki trú á að ég nenni því.
Ég var að láta mig dreyma um að fá færi á að sjá Sögu en
það verður sem sagt tæplega af því.
Ég var að heyra að það væri frekar dræm þátttaka í
fyrsta prófi vetrarins sem halda á um helgina hér
heima. Það verður enginn opin flokkur en nokkrir
hvolpar eru skráðir til leiks. Guðjón
Arinbjörnsson verður dómari ef mínar upplýsingar eru
réttar.
Spáin er ekki góð fyrir laugardaginn en heldur skárri
fyrir sunndaginn.
17. jan. 2008
Hættur
í veiðiprófanefndinni.
Ég sagði mig úr nefnd á vegum FHD sem
hafði með veiðiprófin að gera skömmu fyrir áramót.
Ástæðan var sú að ég hef opinberlega ásakað formann FHD
um skemdarverkastarfsemi í minn garð og fleiri ræktenda.
Mér þótti ekki rétt að ég sæti í nefndum fyrir klúbbinn
á sama tíma og ég lýsti yfir vantrausti á formann hans.
Í kjölfarið fékk ég
skeyti þar sem mér var vísað úr þessari sömu nefnd eftir
ábendingu frá félagsmanni sem ekki vildi láta nafn síns
getið. Ég hef hins vegar 100% öruggar heimildir um
hver það var sem sendi inn þessa nafnlausu ábendingu.
Komst að því fyrir einskæra tilviljun. Sá maður er
ekki hátt skrifaður hjá mér í dag.
Ég sendi
svarskeyti á stjórnina og formann HRFÍ og lít á að þessu
máli sé lokið af minni hálfu.
Formaðurinn virðist ætla að sitja áfram
þrátt fyrir mjög alvarlegar ásakanir á hendur honum.
Hann verður bara að eiga það við sjálfan sig. Ekki
gæti ég gert slíkt í hans sporum.
12. jan. 2008
Nýtt
ár rennur úr hlaði.
Ég fór til Ítalíu á skíði annan jóladag
og var yfir áramótin í stórum hópi Ármenninga og KRinga.
Ferðin var mjög vel skipulögð og allir skemmtu sér hið
besta.
Við fórum til Bormio til að horfa á
brunkeppni í heimsbikar karla. Þar voru allar helstu
stjörnurnar mættar og Bode Miller fór með sigur af hólmi.
Þetta var frábær upplifun fyrir áhugamann um skíðaíþróttina
að sjá þessar helstu stjörnur í nágvigi.
   
Benjamin Raich
Hermann Maier
Sigurvegararnir.
Helga María.
Ég hitti fyrir tilviljun ungverskan
visluræktanda og áttum við skemmtilegt spjall saman.
Hann kemur minnst nálægt þjálfun sjálfur en hefur þess í
stað sérstaka þjálfara í vinnu við að þjálfa hundana.
Hann hefur verið að senda hunda út um allan heim og vildi
ólmur fá að vita eitthvað um hundamenninguna hér hjá okkur.
Kannski fæ ég eitthvað sent frá honum af myndum á næstunni.
Hver veit.
25. des. 2007
Rólegheit á jólum.
Ég fór í göngutúr með feðgana á
aðfangadag og tók nokkrar myndir af þeim. Ein af
þeim er á forsíðunni.
Ég er ekki mikill myndasmiður en hef þó gaman af þessu
og get sannarlega glaðst yfir því ef mér þykir vel hafa
tekist til.
Þegar ég sá Robur á forsíðumyndini á tölvunni hjá mér
datt mér Svarthöfði í Star Wars í hug.

Feðgarnir fyrir ofan
Vífisltaðavatn á Aðfangadag. Mynd V.Ó.
22. des. 2007
Monu
sárt saknað.
Ég var að taka til í möppu á tölvunni hjá
mér og fann mynd sem mér fannst bara ansi góð.

Það var alltaf mikil einbeiting í þessari
tík. Full mikil á köflum. Þarna er hún búin að vefja
taumnum um afturlappirnar og lætur það ekki trufla sig.
Ég fór í dag í smá gönguferð með feðgana en fann engan fugl
í dag. Fer aftur á morgun.
20. des. 2007
Doppa á golfvellinum.
Menn eru misvel í sveit settir með að
viðra hundana sína. Hann Sigþór hefur ágætis
aðstöðu út á Seltjarnanesi þar sem von er á öndum og
gæsum við hvert fótmál.
 
Doppa í rokinu um daginn. Þarna er hún á standi á endur.
Myndir Sigþór.
Sigþór er að nota endurnar til að láta
hundinn taka stand og gengur það ágætlega. Ég hef gert
þetta hér á túninu fyrir neðan mig líka og gildir einu hvort
um gæsir eða endur er að ræða. Það nýtist ágætlega.
16. des. 2007
Hlíðniæfingar í storminum.
Nú viðrar þannig að lítið er hægt að
gera á heiðinni. Ég fór þó í smá göngutúr hér
niður að tjörn og tók nokkrar myndir sem flestar
mistókust vegna þess að regn buldi á linsunni.

Draugar á bakkanum. Mynd V.Ó.
Ein myndin vakti athyggli mína. Það
er eins og tveir auka hundar séu á myndini með þeim Ringó og
Robur.
Ætli að það séu ekki tíkurnar tvær sem ég lét dýralækninn
svæfa fyrir mig.
9. des. 2007
Hvolpaæfing á heiðinni.
Ég tók góðan göngutúr með þeim Sigþóri
eiganda Doppu og Þórði eiganda Skutlu í dag.
Þessir hvolpar okkar eru svona á mörkum þess að fara að
kveikja á því hvert hlutverk þeirra á að vera í
framtíðinni.
Allir eru þeir þó farnir að leita eitthvað og það er að
verða ljóst að Ringó verður með slaglengd og áræðni í
stærra lagi.
Ég verð að vinna í því að gera honum það ljóst að við
erum saman í þessu. Hann á ekki langt að sækja
þetta.
Það var frekar kalt í dag en hressandi að
ganga. Eftir að við vorum búnir að fara stóran
fugllausan hring hittum við kall með móbotnóttan hund.
Skipti engum togum að sá tók sig til og kenndi okkur hinum
hvernig þetta á að fara fram. Verulega pirrandi þegar
svona sportarar sem þykjast vera orðnir svo heilagir að þeir
geti ekki skotið með öðru en tvíhleypu hlið við hlið og það
20 gauge koma og þvælast fyrir manni.
6. des. 2007
Stór,
já risastór mistök.
Stundum gerir maður stór mistök.
Ég var að átta mig á því í dag að ég gerði mjög stór
mistök þegar ég lét Kaldalóns Byr frá mér.
Ég hélt að Ringó væri flottasti kallhundurinn úr gotinu
útlitslega séð en ég verð að játa að það er hann ekki í
dag. Byr er miklu, miklu, miklu, miklu
flottari.
Ég sá hann í dag í fyrsta skipti eftir að
hann fór frá mér og ég verð að segja það eins og er að hann
er alveg "gekt" flottur mar.
J. Kræst, þvílík mistök að láta hann frá sér.
Maggi, any time, ef þú villt láta
hann....talk to meeeeeee......
Farðu að þjálfa hann fyrir sýningarnar Sigga......
Húsavíkur hvað? (-:
2. des. 2007
Enn
ein rós í hnappagatið.
Ég var að lesa inn á heimasíðu
NESK að Ingvar Rødsjø er stöðugt að hlaða á sig
vegtillum. Hundurinn hans Berkjestølen’s Hi-Treff
var með flest stig hjá NESK eftir árið og því útnefndur
besti veiðihundur hjá NESK 2007.
Tíkin í þriðja sæti, Rangelfjellets Miss Putte er undan
honum og unghundurinn Berguglas Hi-Trøkk sem er í fyrsta
sæti í unghundaflokki er undan honum líka þannig að
þessi hundur er að gefa af sér góð afkvæmi.
Ingvar á sjálfur þennan unghund og er að leggja mikla
vinnu í að þjálfa hann þessa dagana.
.jpg)
Kaldalóns Ringó á sínum
fyrsta standi á heiðinni 7 mánaða gamall. Tómstandur
var það reyndar. Mynd Sigþór.
Ég fór í göngu með Ringó bæði í gær og í
dag. Hann er að leita fanta vel og stuðaði upp fugli í
dag með unaðslega fallegri eftirför. Algjör unun á að
horfa, það sem sást til hans......
Nei án gríns, þá er þetta ekki það sem maður vill fá mikið
af á þessum tímapúnkti en getur alltaf komið fyrir.
29. nóv. 2007
Vertíðarlok.
Ég gekk til rjúpna með góðum félaga,
Albert Jónssyni á Skagaströnd í dag. Veður var ágætt og
slangur af fugli.
Ég var með Robur og Albert var með upprennandi stjörnu,
Pointerinn Vatnsenda Breka.
.jpg)
Albert í veiðiprófi með Snjófjalla
Birtu sem hann átti fyrir nokkru. Mynd V.Ó.
Við brendum okkur á því að ganga upp úr fuglinum en það var
í góðu lagi, veiðin var alveg nógu mikil, mómentin falleg og
við sáttir í dagslok.
Á leiðinni suður var vaxandi vindur og ég
lenti í mjög slæmu veðri undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi.
Nú er þessari rjúpnavertíð lokið hjá okkur Robur og óhætt að
segja að mikil reynsla hafi komið í sarpinn hjá okkur báðum.
25. nóv. 2007
Góður
veiðitúr.
Ég fékk símtal frá ungum manni sem er
ættaður frá Lindarbrekku í Berufirði sem eins og
kunnugir vita er nærri Djúpavogi.
Hann heitir Eiður Gísli Guðmundsson og starfar á
Grundartanga. Erindi hans var að forvitnast um
fuglahunda og reyndi ég að greiða úr erindi hans sem
best ég gat.
Eiður bauð mér að koma með sér til rjúpnaveiða austur á
firði og þáði ég það. Skemmst er frá að segja að
þetta var afar eftirminnileg ferð. Ekki fyrir það
að veiðin hafi verið mikil, heldur fyrir þá upplifun að
kynnast því að veiða með þessum framúrskarandi
veiðimanni verandi ekki eldri en hann er. Hann
hefur veitt frá því hann man eftir sér og er að ná
eftirtektarverðum árangri. Hann hefur haft góða
kennara í föður sínum og afa og veiðilöndin eru við
bæjardyrnar.
Þessi ferð var einnig góð fyrir þá upplifun að fá að
veiða í þessu stórkostlega landi sem Fossárdalurinn er.

Eiður Gísli Guðmundsson að
kíkja til rjúpna og notar í þetta skipti kíkinn á
veiðirifflinum til að spotta fugl. Mynd V.Ó.
Einhverra hluta vegna var ég ekki að ná
árangri þarna í rjúpnjaveiðinni en það skipti engu máli, ég
átti frábæra daga og vona innilega að ég eigi eftir að fá að
ganga þarna aftur síðar.
Einn af hápúntunum í ferðinni var að kynnast Öldu á
Eyjólfsstöðum í Fossárdal. Þvílíkur orginal. Ef
allir væru eins hreinskilnir og hún þá væri heimurinn betri
en hann er í dag.

Lítill lækur getur verið
listaverk við rétt skilyrði. Mynd V.Ó.
Við fengum þokkalegt veður og ég fékk
góðar æfingar með Robur. Við hófum fyrsta daginn með
standi á fjóra fugla eftir stutta göngu og tveir fuglar
lágu. Sóknin tókst líka vel og í raun gaf þetta von um
mikla veiði. En næsti standur lét bíða eftir sér.

Á þessari mynd má sjá hvernig
aðstæður eru. Það er hagi upp á hæðstu toppa og alveg
ótrúlega erfitt að koma auga á fuglinn. Mynd V.Ó.
Rjúpan virðist vera dreifð um allt, frá
dalbotni til efstu toppa. Skilyrðin eru rjúpunni
hagstæð þetta haustið. Það var því yfirferðin sem gaf
fugla þessa daga og svo það að vita hvar á að leita.
Það veit Eiður Gísli.
Ég vil þakka honum fyrir þessa frábæru ferð.
18. nóv. 2007
Göngutúr á Mosó.
Ég komst ekki til veiða um helgina sökum
annara verkefna. Ég fór þó í góðan göngutúr á
Mosfellsheiði í dag. Það er snjór yfir allri
heiðinni og sá fugl sem þar er mun vera dreifður um
allt. Ég fann tvo fugla á þriggja tíma göngu. Mér
þótti það helst til rírt. Ég var með þann litla
með í taumi og leyfði honum að spretta aðeins úr spori.
Hann er að verða ansi kröftugur og í dag sá ég hann í
fyrsta skipti velta föður sínum um koll í ærslafullum
leik í garðinum. Leikur þeirra er að verða jafnari
með hverjum deginum sem líður.
Það er alveg ómetanlegt að geta verið með tvo kallhunda
sem geta ærslast saman án þess að í odda skerist.
Geðið er það gott í þeim báðum að þetta er ekki
vandamál.
12. nóv. 2007
Leti í gangi.
Ég hef verið frekar latur við að skrifa á vefinn að undanförnu. Ég hef haft í nógu að snúast og fór í skemmtilega ferð til Hollands með dóttur minni um daginn. Það var ágætt að komast út úr viðjum vanans og fá um annað að hugsa um stund.
Ég verð að viðurkenna að það eru mikil viðbrigði að vera búinn að kveðja vinkonu mína til margra ára. Það er erfiðara en nokkur sá sem ekki hefur reynt getur ímyndað sér.
Mér var sent vísukorn til að hugga mig við. Það er svona:
Sannarlega gat ég það gengið á svig
að granda þér hundur minn tryggur.
Með rjúkandi byssu ég blíni á þig
sem blóðug í sandinum liggur.
Ég vil að mig dæmi hið skarpasta skyn,
ei skilningur veill eða hálfur.
Að leigja sér mann til að vega sinn vin
er verra en að gera það sjálfur.
|
Þetta er eins og talað út úr mínum
munni. Ég gat helst ekki fengið það af mér að koma þessu
verki yfir á annan aðila og gat ekki hugsað þá hugsun
til enda að sá hin sami klúðraði því.
Ég er búinn að fara tvisvar á rjúpu og er á góðri leið með að ná í soðið. Robur hefur verið að gera þokkalega hluti en bestur er hann þó þegar hann hefur hlaupið úr sér mestu spennuna. Ég held að ég verði að fara eins mikið með hann og mögulegt er til þess að fá hann til að vinna betur með mér. Það hefur viljað brenna við að hann hefur verið svolítið eiginráða.
Litli guttinn er að þroskast mjög vel og er hvers manns hugljúfi. Hann er að verða myndalegast i sveinn þó að ég segi sjálfur frá.
Ég á ekki von á öðru en að hann verði 1. einkunnar sýningardýr.
Nefið er í góðu lagi og veiðieðlið er á sínum stað.
Fór með hann hér niður á tún á laugardaginn. Hann var að hlaupa við vatnsbakkann og sá allt í einu gæsir á sundi og lét sig vaða á eftir þeim. Það var hrikalega flott stunga. Vildi óska að ég hefði náð því á mynd.
29. okt. 2007
Pemmican fyrir veiðiferðina.
Það hefur gengið vonum framar að selja
Pemmican orkufóðrið sem við tókum til prufu fyrir
haustið.
Það er gaman að segja frá því að Ásgeir Heiðar, sem
færði stigahæsta hund ársins til veiðiprófa í ár, hefur
fengið sér byrgðir fyrir tímabilið. Hann lofar
þetta í hástert og segir þetta vera það besta
"suppliment" fyrir hunda sem hann hefur prófað.

"Þetta er eitthvað annað en helvítis lifrarpilsan
mar....þeir fá bara drullu af því mar..." Ásgeir og
Nóra sýnist mér. Mynd V.Ó.
Ég er að fara til
Hollands á
skíði í morgunsárið og get því ekki afgreitt þetta í
vikunni en Guðjón getur redda þessu ef einhver vill fá sér
prufu í pokann. Hann er með síma 660-1926.
29. okt. 2007
Góður
dagur á heiðinni.
Ég átti góðan dag á Mosfellsheiðinni í
dag. Veðrið var eins og best gerist. Snjór
er yfir allri heiðinni og fugl dreifður um allt.
Robur átti marga standa og flest gekk vel upp.
Hann er allur að koma til kallinn og hann sýndi mér að
nefið er í góðu lagi.
Systi hans hún Lea átti líka góðan dag í Noregi í dag.
Hún náði 1. einkunn í skógarpufu í dag og er þar með
orðin gjaldgeng í sóru prufurnar. Rune Stadeland,
eigandi hennar hringdi í mig í dag og var vitaskuld
ánægður með daginn. Hann fékk 2. einkunn í gær og
1. í dag. Dómari í dag var Arne Abel Lunde og
sagði Rune að hann væri mjög góður dómari. Einn af
þeim bestu sagði hann. Þessi dómari kemur hingað
til lands í vor ásamt Arild Skeivik.
23. okt. 2007
Góð æfing en stutt.
Veðurfar hefur verið með eindæmum vott að undanförnu og þessu hefur oft fylgt dumbungur. Dagurinn er óðum að styttast og varla orðið gerklegt að fara eftir vinnu með hundana í móann. Ég fór þó áðan í smá göngutúr og fann 15 fugla hóp ofan við hesthúsin á Rjúpnahæð. Vonandi verða þær þarna í vetur þannig að hægt verði að skreppa eftir vinnu í klukkutíma eða svo.
Ég er búinn að vera með Robur í bölvuðu bulli í allt haust og kenni því um að hvolpastandið og bílskúrsdvölin hafi farið eitthvað skakkt í hann. Hann var orðinn neðstur í virðingastiganum og engin athyggli á honum. Nú er hann kominn ofar í tröppuna og engin tík að ráðskast með hann og nú fær hann mun meiri athyggli.
Ég er nú með báða hundana inn í húsi mestan part dags en ekki úti í bílskúr og þannig eru þeir meira í umgengni við okkur heldur en var.
Vonandi verðu þetta allt til bóta.
Ég tel mig sjá strax nokkurn mun á honum og vonandi að hann komi til baka og verði nothæfur í rjúpunni í haust.
Sá stutti fékk að ganga með í dag en ég er ekki farinn að sleppa honum neitt enn af viti. Ég er ekki kominn með sitt skipun inn nógu góða enn þá og það liggur ekkert á að fara að vinna í honum í móanum strax.
18. okt. 2007
Veiðiferð.
Í september fór ég í fyrsta sinn á hreindýraveiðar. Ég hafði fengið úthlutað kú á svæði 2 og var svo heppinn að góðvinur minn Guðjón Arinbjörnsson var með kú á sama svæði. Hann er búinn að fara nokkru sinnum á þetta svæði og því var ekki ónýtt fyrir mig að geta notið leiðsagnar hans í minni fyrstu ferð.
Við lögðum af stað á sitthvorum bílnum og vorum í samfloti. Þessi ferð var ekki kolefnisjöfnuð. (-:
Ástæðan fyrir þessu bruðli á eldsneyti var sú að við ætluðum að haga ferðum okkar á mismunandi hátt að hreindýraveiðunum loknum. Ég ætlaði að fara í Mývatnssveit og vera þar við gæsaveiðar og fleira. Guðjón þurfti hins vegar að fara suður strax að loknum hreindýraveiðum.
Við lögðum af stað að morgni laugardags 8. sept. og fyrsta stopp var Olís stöðin á Selfossi. Þar var fyllt á tanka og kaffibolli drukkinn á meðan ég hugsaði um hversu liprir þeir væru nú á þessum Olís stöðvum.
Af stað var haldið og ekki áð aftur fyrr en á Kirkjubæjarklaustri.
Þegar ég ætlaði að fara að borga eldsneytið þar komst ég að því að ég hafði gleymt veskinu á Selfossi.
Þá reyndi fyrst fyrir alvöru á það hversu liprir þeir eru á Olís.
Það var ekki nokkur séns á því að fá þá til að koma veskinu á einhvern sem væri á austurleið. Ég varð því að gera svo vel að snúa við og sækja veskið. Guðjón hélt áfram og ég mátti bæta 400 kílómetrum við ferðina.
Við lögðum svo af stað snemma morguns á veiðisvæðið sem var á Fljótsdalsheiði. Á fyrsta útsýnisstað sáum við hjörð sem var skammt frá veginum. Við bjuggum okkur af stað og leiðsögumaðurinn komsrt í færi eftir að hafa gengið 500 metra frá bíl. En þessi hjörð tók á rás áður en ég eða Guðjón komumst í færi, sem betur fer. Ég hefði ekki viljað að hreindýraveiðiferðinnni væri lokið á stundarfjórðungi.
Við tók spennandi eftirför sem bar ekki árangur og við snérum frá og létum öðrum eftir að eiga við þessa hjörð.
Við gengum til baka í bílinn og héldum lengra inn á heiðina. Við komum fljótlega auga á aðra hjörð og eftir hálftíma göngu komumst við í færi. Ég feldi mína kú á 75 metra færi og Guðjón tók sína á yfir 100 metrum.
Síðan var bíllinn sóttur og dýrunum komið í hann.
Leiðsögumaðurinn aðstoðaði okkur við að gera að dýrunum og síðan fengum við góðan kjötiðnaðarmann á Húsavík til að setja dýrin í vacumpakkningu.
Hér má sjá nokkrar myndir úr ferðinni. Ekki fyrir viðkvæma.
14. okt. 2007
Þroskast vel.
Ég hitti eigendur tveggja hvolpa frá Monu og Robur í dag. Það voru þeir Þórður með Skutlu og Sigþór með Doppu.
Við tókum smá labbitúr og röbbuðum saman um hvolpana okkar og miðluðum reynslusögum.
Þessar tíkur eru báðar að þroskast mjög vel, eru hressar og kátar og engin ástæða til annars en að gera ráð fyrir að þær verði flottir veiðihundar.
Skutla virðist ætla að verða geisilega hröð og er þegar farin að slá sér nokkuð langt út. Þórður verður að vera vel á verði gagnvart því að missa hana ekki of langt út frá sér. Þetta er efni í GQ hund.
Doppa er nokkuð dökk á skrokkinn en mér finnst hún vera æðislega flott. Það er karakter í þessari tík.
Því miður gleymdi ég myndavélinni heima en vonandi get ég myndað hvolpana næst þegar við hittumst.
10. okt. 2007
Nýjar vörur.
Við fluttum inn tilraunasendingu af kraftmat fyrir vinnuhunda og einnig laxalýsi fyrir hunda og ketti nú fyrir skömmu.
Vörurnar eru frá dönsku fyrirtæki sem er að framleiða hundafóður og fleira því tengt.
Þetta heitir Krunch. Smellið á nafnið og þá getið þið fengið upplýsingar um vöruna.
Kraftmaturinn er samþjappaður orkubiti sem lítur út eins og súkkulaði stykki.
Þetta gefur hundinum auka kraft til að takast á við erfiðan vinnudag.
Innihaldið er aðallega fita, prótein og sykur.
Við gáfum nokkrum þátttakendum prufu af þessu á síðasta veiðiprófi haustsins og létu þeir vel af þessu.
Þetta er í handhægri pakkningu og kemur algjörlega í staðinn fyrir sláturkeppinn.
Þeir sem hafa áhuga á að prufa þetta á komandi veiðitímabili er velkomið að setja sig í samband.
Lýsið er sérhannað fyrir hunda og ketti. Það er ekki með eins mikið af A og D vítamínum og þorskalýsi en er mjög ríkt af omega-3 og omega-6 fitusýrum sem eru mjög nauðsynleg fyrir hunda og ketti.
Það er mjög algengt að dýrin fá ekki nóg af þessum fitusýrum úr fóðrinu. Dagleg notkun á lýsi á að hjálpa til við að gefa fallegan feld og á einnig að styrkja ónæmiskerfið svo það helsta sé nefnt.
8. okt. 2007
Slæmar fréttir.
Ég er með heldur leiðinlega fréttir ykkur til handa.
Eftir miklar sálarkvalir undanfarnar vikur lét ég tíkina mína, hana Mónu fara í gær. Dóttir hennar, Bylgja fór sömu leið.
Þetta var erfið ákvörðun og enn erfiðari framkvæmd. Erfiðari en ég hefði getað ímyndað mér fyrirfram.
4. okt. 2007
Í tómu tjóni.
Ég er búinn að vera í miklu basli með heimasíðuna mína að undanförnu. Ég tók hana út úr Frontpage aðgangi og setti hana í ftp format. Einhver böggur var á tengingunni þannig að ég náði ekki að vista breytingar sem ég gerði.
Vonandi er þetta komið í lag núna.
Mikið hefur gerst síðan ég lenti í þessu basli með síðuna og leitt að geta ekki miðlað því til ykkar.
Mývatnsprófið gekk vonum framar og en ekki reið ég feitum hesti frá því með mína hunda að þessu sinni.
Það bar þó smá gleði í bú mitt að framkvæmd prófsins tókst afbragðs vel og þessi frumraun mín sem prófstjóri tókst einnig vel.
Nú er Bylgja komin til mín aftur og er ég að leita að einhverjum til að taka hana. Þetta er mikið efni sem má ekki fara forgörðum.
Hún er mjög hlíðin og er komin með gott innkall. Hún situr við skipun og er hress og kát. |